Evrópskir kennarar fordæma innrás Rússa í Úkraínu

Fréttir|8. júlí 2022

Erfið staða Úkraínu var til umræðu á ráðstefnu ETUCE sem fram fór fyrr í vikunni. Formaður KÍ ávarpaði fundinn og sagði kennara, sem aðra, þurfa að sýna þrautseigju og vera rödd Úkraínu. „Þú stöðvar ekki illskuna með því að þegja,“ sagði formaður KÍ meðal annars í ræðu sinni.

Evrópsku kennarasamtökin, ETUCE, krefjast þess að Rússar dragi herlið sitt þegar í stað til baka frá Úkraínu. Samtökin fordæma innrás Rússa í Úkraínu og allan stuðning við Rússa.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem ETUCE sendi frá sér í morgun, í kjölfar ráðstefnu samtakanna sem fór fram í Liege í Belgíu fyrr í vikunni. Ráðstefnan var sótt af fulltrúum 127 stéttarfélaga kennara sem tilheyra ETUCE. Yfirskrift ráðstefnunnar var Virkjum gæðamenntun.

Samtökin lýsa jafnframt áhyggjum af stöðu skóla- og menntamála í Úkraínu enda herma heimildir að börnum á hernumdum svæðum sé meinað að ganga í skóla og auk þess séu dæmi um að börn hafi verið flutt nauðug til Rússlands. Bent er á mikilvægi stuðnings við kennara og skólafólk sem sætir kúgun fyrir að tala fyrir friði og gegn stríðinu í Úkraínu. ETUCE hvetur Evrópuþjóðir til að taka á móti öllum flóttamönnum frá Úkraínu og að tryggt sé að börn á flótta njóti vandaðrar menntunar við hæfi.

Menntun er öflugasta vopnið

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, ávarpaði ráðstefnuna og sagði fulltrúa KÍ taka heils hugar undir ályktun fundarins. „Við sem kennarar verðum að taka ábyrgð á því að leiða umræður þegar illska kemur upp í samfélaginu, illska sem hefur beinst að meginstoðum samfélagsins, þar á meðal skólum, í árásum Rússa á Úkraínu. Þú stöðvar ekki illskuna með því að þegja. Ég treysti stjórn ETUCE til að hækka rödd sína reglulega hvar og hvenær sem hún getur,“ sagði Magnús Þór í ávarpi sínu.

Magnús Þór sagði ljóst allir þyrftu að hækka rödd sína á heimavelli, innan hvers samfélags og í skólakerfinu. „Við, sem fulltrúar stéttarfélaga og einstaklingar, verðum líka að vera tilbúin að leiða þegar kemur að því að taka á móti börnunum frá Úkraínu og veita þeim þá menntun sem þau eiga rétt á. Við skulum muna eftir orðum Nelson Mandela þegar hann sagði að menntun væri öflugasta vopnið ​​sem hægt er að nota til að breyta heiminum.

Við höfum séð að árásarmaðurinn Pútín er tilbúinn til að halda áfram aðgerðum sínum í langan tíma og því treysti ég okkur öllum til að sýna þrautseigju og vera rödd Úkraínu í mikilvægum hlutverkum okkar sem kennarar og hætta ekki fyrr en illskan hefur verið rekin heim til sín,“ sagði Magnús Þór.

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, sótti ráðstefnuna ásamt Jónínu Hauksdóttur, varaformanni KÍ, og Önnu Maríu Gunnarsdóttur, fyrrverandi varaformanni KÍ.