Evrópski tungumáladagurinn - kynningar í skólum

Í ljósi aðstæðna og samkomuhafta stendur kennurum til boða að nálgast þegar tilbúið efni á glærum.
Evrópska tungumáladeginum verður að venju fagnað þann 26. september næstkomandi.
Á Íslandi er dagurinn að þessu sinni tileinkaður tungumálum Rómafólks. Ástæða þess er ekki hvað síst væntanleg útgáfa bókar um uppruna, tungumál og bókmenntir Rómafólks á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og Háskólaútgáfunnar.
Í ljósi aðstæðna og samkomuhafta stendur kennurum til boða að nálgast þegar tilbúið efni á glærum. Þar er að finna almenna kynningu á sögu og menningu sígauna, ásamt tónbroti og upplestri á frumtextum og þýðingum smásagna til að kynna forvitnileg sérkenni tungumála þeirra fyrir nemendum. Efnið verður aðgengilegt hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur frá 20. september n.k. Vinsamlegast hafið beint samband við Völu.
Til viðbótar er hægt að nálgast nýútkomin veggspjöld til að vekja athygli á deginum og hengja upp í skólunum. Veggspjöldin eru framlag ECML í Graz og þau má nálgast hjá Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands, í Veröld - húsi Vigdísar. Á heimasíðu ECML er að auki ríkulegt safn leikja, þrauta og upplýsinga um tungumál í tilefni dagsins.
Kennarar eru hvattir til að halda upp á Evrópska tungumáladaginn, hver með sínum hætti, tveimur virkum dögum fyrir og/eða eftir laugardaginn 26. september, 2020.