eTwinning í 10 ár – góður árangur íslenskra skóla

Fréttir|28. maí 2015

eTwinning er Evrópuáætlun um rafrænt skólasamstarf á fyrstu þremur skólastigunum og er hluti Erasmus+, menntaáætlunar ESB. Verkefninu var hleypt af stokkunum í byrjun árs 2005 og hefur Ísland tekið þátt frá upphafi. Á þessum tíma hafa hátt í 1.000 íslenskir kennarar skráð sig í eTwinning, samstarfsverkefnin sem Íslendingar hafa tekið þátt í telja yfir 500, og fjöldi kennara hefur sinnt starfsþróun á netnámskeiðum og vinnustofum hér heima og í Evrópu. Íslenskir skólar hafa einnig unnið til margvíslegra viðurkenninga, nú síðast Grunnskóli Bolungarvíkur sem hlaut tvenn verðlaun á Evrópuverðlaunahátíð eTwinning í Brussel 7. maí sl.

eTwinning slítur barnsskónum
eTwinning er líklega stærsta starfssamfélag kennara og skólafólks í heiminum en í dag telja skráðir þátttakendur um 310.000, samstarfsverkefnin 41.000 og skólarnir 140.000. Í gegnum eTwinning er hægt að komast í samband við evrópska kennara, taka þátt í einföldum samstarfsverkefnum, fara á netnámskeið sér að kostnaðarlausu og sækja um styrki til að komast á evrópskar vinnustofur um upplýsingatækni og kennslu. Kennarar sem skrá sig í eTwinning ganga því inn í öflugt skólasamfélag þar sem miklir möguleikar eru á starfsþróun.

Hver og einn skráir sig sem einstaklingur og fær strax aðgang að eigin svæði þar sem hægt er að leita að samstarfskennurum, skrá sig á netnámskeið og taka þátt í þemahópum, svo nokkuð sé nefnt. Frá því að eTwinning var hleypt af stokkunum árið 2005 hafa hátt í 1.000 íslenskir kennarar skráð sig. Af þeim hefur um þriðjungur verið virkur inni á svæðinu á einn eða annan hátt.

Einföld samstarfsverkefni milli skóla eru kjarninn í eTwinning. Verkefni geta verið hvernig sem er (varað í stuttan eða langan tíma og farið í gang hvenær sem er á skólaárinu) svo lengi sem þau eru hluti af kennslu skólans og falla að námsskrá. Bryddað var upp á þeirri nýbreytni síðasta haust að heimila samstarf milli skóla innanlands en fram að því hafði samstarf a.m.k. tveggja Evrópulanda verið skilyrði.

Landskrifstofur eTwinning standa reglulega fyrir starfsþróunarvinnustofum víða um Evrópu. Hér á landi hafa verið haldnar þrjár slíkar: tvær norrænar vinnustofur, í Reykjavík 2009 og í Hvalfirði 2014, og haustið 2013 komu um eitt hundrað manns, alls staðar að úr Evrópu, til Reykjavíkur á evrópska vinnustofu fyrir stærðfræðikennara. Síðasta áratuginn hafa yfir 200 íslenskir kennarar fengið styrki til að sækja slíkar vinnustofur og aðra evrópska viðburði á vegum eTwinning.

Hvers vegna eTwinning?
eTwinning er fyrst og fremst ný aðferð. eTwinning samstarfsverkefni víkka sjóndeildarhring bæði nemenda og kennara og auka færni þeirra á ýmsa vegu. Kennarar nýta sér tæknina til að gera skólastarfið fjölbreyttara, skyggnast inn í evrópskar skólastofur og sjá hvað erlendir kennarar og nemendur eru að gera og kynnast menningu annarra landa. eTwinning er þannig góð leið fyrir kennara til að þróa sig í starfi og til þess að efla frumkvæði og áræði nemenda. Auðveldlega má tengja verkefnin við margar námsgreinar (eins og eðlisfræði, stærðfræði, landafræði, lífsleikni, tungumál eða listkennslu, svo nokkuð sé nefnt).

Í eTwinning er lögð áhersla á kennslufræði sem byggir á samvinnu og fjölbreyttum verkefnum. eTwinning er starfssamfélag þar sem þátttakendur miðla reynslu og þekkingu sín á milli í rafrænum samskiptum og í einföldum samstarfsverkefnum milli skóla. Þar fyrir utan getur þátttaka nemenda í þessu rafræna samtarfi aukið stafræna borgaravitund og tilfinningu fyrir fjölmenningu þar sem í flestum tilfellum er verið að vinna með erlendum skólum

Íslenskir skólar vinna til verðlauna
Hægt er að sækja um að fá viðurkenningu fyrir góð verkefni bæði hér heima og í Evrópu. Stærsta viðurkenningin er veitt ár hvert á Evrópuverðlaunahátíð eTwinning. Hér hafa verkefni sem íslenskir skólar hafa tekið þátt í gert það gott, en á hverju ári eru yfir eitt hundrað verkefni skráð í keppnina. Eftirfarandi skólar hafa hlotið verðlaun:

  • 2009: Leikskólinn Furugrund, Fjóla Þorvaldsdóttir: 1, 2 Buckle my Shoe: Önnur verðlaun í flokki tileinkuðum stærðfræði og vísindum.
  • 2010: Flataskóli, Kolbrún Svala Hjaltadóttir o.fl.: Schoolovision! Verðlaun í sérflokki um skapandi notkun upplýsingatækni.
  • 2013: Grunnskóli Bolungarvíkur, Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir, Soffía Vagnsdóttir o.fl.: BELL Business Economics Language Learning: Önnur verðlaun í flokki 16-19 ára (verkefnið fléttaði eTwinning saman við Comenius samstarf).
  • 2013: Hofsstaðaskóli, Anna Magnea Harðardóttir: Intercultural dialogue through fairy tales, drama and art: Fyrstu verðlaun í sérflokki um fjölmenningu.
  • 2013: Flataskóli, Kolbrún Svala Hjaltadóttir o.fl.: Schoolovision! Verkefnið fékk sérstök verðlaun fyrir einstakt framlag til eTwinning síðustu 5 árin.
  • 2014: Leikskólinn Holt, Anna Sofia Wahlström: Talking Pictures: Önnur verðlaun í flokki 4-11 ára.
  • 2015: Grunnskóli Bolungarvíkur, Zofia Marciniak: Art Connects Us: Önnur verðlaun í flokki 4-11 ára og sérstök verðlaun sem besta eTwinning verkefnið í Evrópu 2015.

Árangur Grunnskóla Bolungarvíkur og Zofiu Marciniak er eftirtektarverður, en fyrir utan verðlaun í sínum flokki hlaut verkefnið óvænt sérstök verðlaun sem besta eTwinning verkefnið í Evrópu 2015, en valið fer fram með leynilegri kosningu og er tilkynnt á staðnum. Zofia tók á móti verðlaununum ásamt samstarfskennara og nemendum á verðlaunahátíð í Brussel 7. maí sl. Eins og titillinn gefur til kynna fjallaði verkefnið um listina í víðu samhengi. Í gegnum listsköpun, listasögu og fleira var fjöldi greina tengdur saman, svo sem listir, saga, tónlist, dans, ritlist, upplýsingatækni og enska.

eTwinning – upplýsingar og stuðningur
Stuðningur er lykilatriði í eTwinning en í hverju landi er landsskrifstofa sem styður þátttakendur endurgjaldslaust. Hér á landi gegnir Rannís því hlutverki. Einnig er hægt að leita til eTwinning fulltrúa víða um land, starfandi kennara með mikla reynslu af eTwinning. Við hvetjum alla til að skrá sig og kanna möguleikana sem eTwinning hefur upp á að bjóða. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu landsskrifstofunnar og aðalsíðu eTwinning í Evrópu: www.etwinning.is og www.etwinning.net.

Guðmundur Ingi Markússon
verkefnisstjóri hjá Landsskrifstofu eTwinning, Rannís

 

Greinin birtist í Skólavörðunni, 4. tbl. 2015. Hægt er að lesa Skólavörðuna hér, eða sækja Skólavörðuappið í App Store eða á Google Play.