ETUCE hvetur skólafólk til að deila góðum verkefnum og hugmyndum

Viltu kynna þér góða starfshætti eða nýstárleg verkefni? Þá er hægt að leita svara í nýjum gagnagrunni ETUCE.
Viltu kynna þér góða starfshætti eða nýstárleg verkefni? Þá er hægt að leita svara í nýjum gagnagrunni ETUCE.
Gagnagrunnur um góða starfshætti í skólum var settur í loftið í morgun. Það eru ETUCE (Evrópusamband kennarafélaga) sem stendur að gagnagrunninum en honum er ætlað að geyma framtaks- og þróunarverkefni, árangursríkar herferðir, nýstárleg verkefni tengd skólastarfi og auk þess efnivið sem gagnast stéttarfélögum kennara við kjarasamningagerð.
Forsvarsfólk ETUCE hvetur kennara, stjórnendur og skólafólk almennt til að taka þátt í uppbyggingu vefsins – með því að deila efni sem fjallar um góða og vandaða starfshætti í kennslu.
Gagnagrunnurinn er vistaður á vefsíðu ETUCE og er afar notendavænn. Auðvelt er að leita að efni eftir löndum, samtökum og efnisorðum.
Þá segir í frétt ETUCE að markmiðið sé að byggja upp ríkulegt og gagnlegt safn af reynslusögum víðs vegar að úr Evrópu – sem vonandi getur reynst öðru skólafólki vel og eða hrint af stað nýjum hugmyndum.