Erum að svara kalli úr skólakerfinu

Forvarnir og fræðsla er námskeið á vegum Menntafléttu. Katrín Ólafsdóttir, sem er önnur þeirra sem standa að námskeiðinu, segir að mikið ákall hafi verið um endurmenntun í tengslum við kynbundið ofbeldi og hvernig best sé að vinna með ungu fólki til að uppræta slíkt ofbeldi.
Námskeið Menntafléttunnar Kynbundið ofbeldi: Forvarnir og fræðsla er tilkomið fyrst og fremst vegna ákalls frá starfandi kennurum um aukna fræðslu í tengslum við kynbundið ofbeldi, sem og háværa kröfu samfélagsins um aukna þekkingu kennara á þessum málum. Ég og samstarfskona mín, Eyrún Ólöf Sigurðardóttir, vorum því fengnar til þess að setja námskeiðið saman og það hefur farið ljómandi vel af stað,” segir Katrín Ólafsdóttir, framhaldsskólakennari og doktor í gagnrýnum fræðum.
„Það hefur verið hávært ákall um bætta menntun starfsfólks skóla í tengslum við bæði kynfræðslu og kynbundið ofbeldi. Bæði hefur þetta komið fram í skýrslum unnum á vegum menntamálaráðuneytis sem og óformlega í tengslum við kennaranám, endurmenntun starfsfólks skóla og frá nemendum sjálfum. Á námskeiðinu leggjum við áherslu á að svara þessu ákalli um bætta fræðslu um málefnið og um leið það hvernig við sem vinnum með ungu fólki getum unnið að og bætt forvarnastarf með það að markmiði að uppræta slíkt ofbeldi. Úr varð heildstætt námskeið sem tekur á þessum samfélagslega vanda og hvernig hann tengist okkur sem vinnum í skólakerfinu, burtséð frá því hversu gamlir nemendur eða skjólstæðingar okkar eru.“
Katrín segir að það hafi komið þeim á óvart hversu fjölbreyttur hópur sækir námskeiðið.
„Þátttakendur koma alls staðar að úr skólasamfélaginu og af öllum skólastigum og má nefna skólahjúkrunarfræðinga, reynda kennara og fólk úr frístundastarfi. Eitt það fallegasta við þetta námskeið er einmitt hvað það nær til fjölbreytts hóps.“
Fjölbreyttir áhersluþættir
Katrín segir að það sé farið skipulega í áhersluþætti námskeiðsins.
„Við byrjum á að tala um rót kynbundis ofbeldis sem liggur auðvitað í þessum stöðluðu kynjaskiptu hugmyndum um hvernig stúlkur og drengir eigi að haga sér og koma fram. Þannig að við byrjum svolítið á að velta fyrir okkur kyngervinu og auðvitað kynjatvíhyggjunni og hinni skyldubundnu gagnkynhneigð og þessum hugmyndum um það hvernig við eigum að haga okkur og vera. Hverjir fá pláss og hverjir verða út undan? Þar erum við bæði að biðja fólk um að líta í eigin barm og svo að horfa í kringum sig; hvernig sér það þessi hlutverk raungerast hjá unga fólkinu sem það er að vinna með? Hvernig ítrekum við þessi mynstur sjálf með okkar eigin framkomu og hegðun? Hverju getum við breytt? Svo tölum við um hvað eru heilbrigð samskipti ungs fólks og hvað felist í heilbrigðri kynhegðun.
Þegar búið er að leggja þennan grunn færum við okkur yfir í erfiðari mál og skoðum allt það sem getur komið upp á og kallast kynbundið ofbeldi. Við tölum skipulega um fjölbreyttar og ólíkar birtingarmyndir ofbeldis, hvernig samfélagið varpar gjarnan fram tilteknum steríótýpískum birtingarmyndum ofbeldis sem oft eiga ekki við rök að styðjast, af hverju það gerist og hvaða áhrif það hefur á skilning okkar á ofbeldi."
Með aukinni samfélagslegri meðvitund um kynbundið ofbeldi fjölgar svo því starfsfólki sem vill vinna að því að uppræta vandann.
Að lokum veltum við því fyrir okkur hvernig samfélag okkar bregst við sögum af ofbeldi, köfum ofan í bakslag sem gjarnan gerir vart við sig þegar kynbundið ofbeldi er til umræðu, til dæmis í andspyrnu gegn #metoo hreyfingunni, og hvernig samfélagsleg viðhorf móta það hvernig við meðtökum og túlkum frásagnir af ofbeldi, sem og auðvelda okkur – eða gera okkur erfitt fyrir – að bregðast við slíkum frásögnum.
Við skoðum líka hinseginleika og jaðarsetningu ólíkra hópa í okkar samfélagi. Við tökum skref til baka og skoðum ofbeldi í víðara samhengi en kynjatvíhyggju og gagnkynhneigð og fáum til okkar gesti sem hjálpa okkur að ígrunda ofbeldi í tengslum við meðal annars hinsegin ungmenni.
Það er mikil eftirspurn eftir bæði þessari fræðilegu þekkingu, en líka betri tækjum og tólum til þess að takast á við flóknar og vandmeðfarnar umræður, og ráðleggingum um hvernig megi sporna við vandanum. Það er þetta kall úr skólakerfinu í víðu samhengi sem við erum að svara með þessu námskeiði.“
Gríðarlega útbreitt
Katrín er spurð hvaða áhrif hún vonist til að þetta og sambærileg námskeið hafi í skólakerfinu til lengri tíma litið.
„Ég myndi segja að ákallið núna, annars vegar af vettvangi og hins vegar úr samfélaginu, tengist aukinni samfélagslegri meðvitund um þann stóra vanda sem kynbundið ofbeldi er. Með kröfum aktívista og ungs fólks um samfélagslega viðurkenningu á umfangi vandans hafa æ fleiri litið inn á við og áttað sig á því að aukinnar fræðslu er þörf á öllum stigum samfélagsins. Hvað varðar skólakerfið hefur sú krafa lengi verið hávær að kennarar þurfi aukna fræðslu um jafnréttismál, þar með talið kynjafræði. Með aukinni samfélagslegri meðvitund um kynbundið ofbeldi fjölgar svo því starfsfólki sem vill vinna að því að uppræta vandann. Þau sækjast eftir fræðslu í formi endurmenntunar til þess að geta borið kennsl á vandann og unnið að fræðslu með sínum hópum og á sínum starfsstöðvum. Við viljum jú öll lifa í betra samfélagi þar sem ofbeldi hefur verið upprætt.“
„Þannig er það von mín að þetta námskeið svari kalli þess hóps sem er búinn að fara í gegnum sitt nám, er starfandi á vettvangi og þarf tól og tæki til þess að takast á við nýtt vandamál. Við leggjum áherslu á að þeir sem námskeiðið sæki fái með sér veganesti í áframhaldandi vinnu á sinni starfsstöð. Þannig geta þátttakendur eflt starfið á sínum starfsstöðvum. Þetta snýst auðvitað í grunninn um að efla jafnréttislæsi þátttakenda með því að vekja athygli á ákveðnum þáttum í okkar samfélagsgerð sem geta stuðlað að mismunun og jafnvel ofbeldi.“
„Þannig að von mín er að með námskeiðinu séum við að hjálpa þátttakendum að verða betur læsir á umhverfi sitt en líka að veita þeim tól og tæki til þess að vinna með á vettvangi, bæði gagnvart nemendum og samstarfsfólki, í tengslum við kynbundið ofbeldi og betra jafnréttislæsi. Saman getum við bætt skólakerfið til lengri tíma.“
„Kynbundið ofbeldi er gríðarlega útbreitt og alvarlegt vandamál í okkar samfélagi. Ég hvet því alla sem vinna með ungu fólki til þess að sækja sér fræðslu um þessi mál. Ungt fólk leitar gjarnan til fullorðinna sem þau treysta með vandamál sín, oft einmitt starfsfólks í skóla og frístundastarfi, og þau fara ekki í manngreiningarálit um það hvort viðkomandi kenni smíði, samfélagsfræði eða starfi í frístund. Þá er starfsfólk í skóla og frístundastarfi oft í góðri stöðu til þess að grípa inn í ef grunur vaknar um erfiðleika. Þá er mikilvægt að þekkja birtingarmyndir ofbeldis og möguleg bjargráð.“
Katrín segist hvetja sem flesta til að skrá sig á námskeiðið að ári. „Námskeiðið á að vera bæði fræðilegt og praktískt. Við endum allar lotur á því að rétta fólki verkefni þannig að þátttakendur geti æft sig og mátað þessa nýju þekkingu við starfsdag sinn. Við reynum þannig að hjálpa þátttakendum að efla þekkingu sína og læsi út frá sínum aðstæðum. Þetta er þessi blanda af fræði og praktík sem er svo mikilvæg.“
Viðtalið við Katrínu birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2022