Eru danskir skólar að bregðast börnum innflytjenda?

Fréttir|29. maí 2015

Stór hluti ungmenna, einkum pilta, af erlendum uppruna í Danmörku á í erfiðleikum í námi og hættir í skóla áður en lögbundnu skyldunámi lýkur.

Borgþór Arngrímsson skrifar frá Kaupmannahöfn: 

Umræða um innflytjendur er ekki ný af nálinni í Danmörku. Þegar höfundur þessa pistils var í námi í Kaupmannahöfn fyrir þrjátíu og fimm árum var í fjölmiðlum talsvert fjallað um innflytjendur. Þá voru Tyrkir lang stærsti innflytjendahópurinn en á árunum 1960 - 1973 fluttu þúsundir Tyrkja til Danmerkur. Fyrst voru það einkum karlmenn í atvinnuleit (þá var næga vinnu að fá), sem margir hverjir ílentust í landinu. Þeir sem voru giftir fyrir fengu konur og börn til sín, aðrir giftust og eignuðust börn. Tyrkirnir stunduðu sína vinnu og voru þannig tannhjól í gangverki samfélagsins en þeir héldu sig gjarnan út af fyrir sig og umgengust fyrst og fremst aðra Tyrki, og aðlöguðust þannig ekki dönsku samfélagi nema að mjög takmörkuðu leyti. Þótt ýmsir lýstu áhyggjum vegna þessa breytti það engu. Í dag eru um 60 þúsund manns af tyrkneskum uppruna búsett í Danmörku, fjölmennastir innflytjenda, en alls eru tæplega ellefu prósent íbúa Danmerkur af erlendum uppruna.

Lærðu ekki af mistökunum
Mogens Lykketoft, forseti danska þingsins og fyrrverandi utanríkisráðherra, sagði fyrir nokkrum árum í viðtali við pistlaskrifara að þegar Tyrkirnir komu til landsins á sínum tíma hefðu menn talið heppilegt að þeir byggju á sama svæði, eða í sama hverfi. Hugsunin var sú að þeir myndu hjálpast að á meðan þeir væru að kynnast þjóðfélaginu. Þetta hefðu verið mistök, þeir hefðu nefnilega aldrei kynnst og aðlagast danska þjóðfélaginu en þess í stað myndað sitt eigið samfélag, nær eingöngu umgengist landa sína og til dæmis aldrei lært dönsku almennilega. Af þessu hefði átt að draga lærdóm en það hefði því miður ekki orðið.

Um miðjan tíunda áratuginn kom mikill fjöldi erlendra ríkisborgara til Danmerkur og margra annarra Evrópulanda. Í þeim hópi var flóttafólk frá gömlu Júgóslavíu fjölmennast. Á allra síðustu árum hefur flóttafólk streymt til Danmerkur frá Líbanon, Sýrlandi, Írak og fleiri löndum. Allt á þetta fólk það sameiginlegt að hafa flúið ættland sitt, sumt vegna stjórnmála- eða trúarskoðana, en aðrir einfaldlega að flýja þá upplausn og skálmöld sem ríkir í heimalöndum þeirra. Það sem gerðist með Tyrkina og Mogens Lykketoft kallaði mistök hefur endurtekið sig, fólk sem á t.d. uppruna sinn að rekja til Íraks leitar eftir að búa í nágrenni við aðra Íraka o.s.frv. Hin mikla fjölgun innflytjenda að undanförnu hefur orðið til þess að allt sem þeim viðkemur verður meira áberandi í samfélaginu. Þetta fólk á sér allt draum um betra líf í friði og öryggi.

Tungumálakunnátta og menntunarleysi
Hjá þeim, sem Danir kalla innflytjendur, að Tyrkjum undanskildum, er atvinnuleysi mun meira en hjá öðrum þjóðfélagshópum. Fyrir þessu eru margar ástæður. Lítil dönskukunnátta og takmörkuð menntun eru taldar valda mestu um þetta ástand.

Samhliða þeirri miklu aukningu innflytjenda sem orðið hefur á síðustu árum hafa sjónir yfirvalda í síauknum mæli beinst að karlmönnum í hópi innflytjenda, einkum ungum mönnum. Þeir eru sá þjóðfélagshópur sem hvað erfiðast á uppdráttar. Í skýrslu sem prófessor við háskólann í Álaborg vann að beiðni danska félagsmálaráðuneytisins kemur fram að árið 2013 var meðaleinkunn grunnskólabarna af erlendum uppruna næstum tveimur heilum (á danska tólf kvarðanum) lægri en þeirra sem eiga innfædda danska foreldra. Þetta er sami munur og tíu árum fyrr. Það vakti sérstaka athygli að meðaleinkunn stúlkna af erlendum uppruna hafði hækkað en pilta hins vegar lækkað. Þessi niðurstaða kom ekki á óvart en olli hins vegar miklum vonbrigðum því að á undanförnum árum hafa miklir fjármunir verið notaðir til að jafna þennan mun. Sérkennsla og margs konar aðstoð hefur ekki dugað til. Nýlegir voðaatburðir Í Kaupmannahöfn hafa orðið til að umræða um þessa hluti hefur blossað upp og áðurnefndur Mogens Lykketoft sagði í blaðaviðtali fyrir nokkrum dögum að þótt orð væru til alls fyrst, dygðu þau ekki ein og sér heldur yrðu athafnir að fylgja.

Í áðurnefndri skýrslu kemur líka fram að það er ekki einungis meðaleinkunn piltanna sem lækkar. Þeim hefur nefnilega fjölgað mjög sem detta út úr skóla áður en grunnskólanáminu lýkur (og teljast því ekki með í meðaltalsreikningnum). Það er þessi sístækkandi hópur sem veldur sérstökum áhyggjum.

Hverjar eru ástæðurnar?
Þessari spurningu reyndi áðurnefndur prófessor í Álaborg að leita svara við. Hann ræddi við fjölmarga pilta sem allir áttu það sameiginlegt að búa í svokölluðum innflytjendahverfum í Kaupmannahöfn og fleiri borgum í landinu. Prófessorinn sagði í skýrslu sinni að ákveðin mynd blasti við þegar svörin væru skoðuð. Piltarnir hefðu allir lýst óskum sínum um að menntast, öðlast virðingu í samfélaginu og fá vel launuð störf. Fyrstu árin í grunnskólanum gengur flest sæmilega, meðal annars vegna mikillar aðstoðar við námið. Eftir því sem ofar kemur í grunnskólann fer ástandið að breytast. Piltarnir sjá að leiðin til menntunar og vel launaðra starfa er bæði löng og ströng og þeim verður, með auknum þroska, betur ljós staða sín og sinna í samfélaginu. Þeim finnst þeir tilheyra hópi sem þjóðfélagið vill sem minnst vita af og að þá sem ráða skorti vilja til úrbóta. Tungumálið er líka verulegur þröskuldur. Þegar við þetta bætist svo að námið gengur ekki sem skyldi missa piltarnir móðinn og hætta einfaldlega í skólanum. Verstir séu samt fordómarnir, margir Danir líti á innflytjendur og afkomendur þeirra sem hálfgert vandræðafólk sem best sé að vita sem minnst um og hafa sem allra minnst samneyti við.

Það er ekki hlaupið að því fyrir ungan mann sem dottið hefur út úr skóla að fá vinnu. Helsta vonin er í gegnum fjölskyldu- eða ættartengsl, þá iðulega við smáfyrirtæki í verslunar- og veitingarekstri, bílaviðgerðum eða ýmis konar þjónustu. Flestra þeirra sem ekki fá vinnu með þessum hætti bíður fátt annað en iðjuleysi og hangs með vinunum sem eins er ástatt um. Foreldrunum er ljóst að hangs á götum og torgum er ekki það æskilegasta en geta lítið að gert.

Reyna að öðlast viðurkenningu í hópnum
Félagsfræðingurinn Hakan Kalkan, sem er af kúrdískum uppruna, hefur um átta ára skeið fylgst náið með ungum mönnum af erlendum uppruna sem hafa dottið út úr skóla eða hætt námi eftir að skyldunámi lauk og ekki fengið vinnu. Piltarnir sem Hakan Kalkan hefur rætt við og fylgst með búa allir á Norðurbrú í Kaupmannahöfn, flestir hjá foreldrum sínum. Á Norðurbrú er hlutfall íbúa af erlendum uppruna hátt.
Kalkan segir að þeir yngstu á götunni leiki iðulega tveim skjöldum. Þeir séu notalegir heima fyrir og aðstoði við eitt og annað, en svo fari þeir út og hitti vinina. Þar eru líka eldri piltar sem verða fyrirmynd hinna yngri. Eldri piltarnir stunda alls kyns smáþjófnaði til að afla sér fjár og þeir yngri læra af þeim. Þeir sem lengst ganga öðlast virðingu hinna og dragast þannig inn í heim smákrimmanna. Eftir því sem lengra líður skiptir fjölskyldan minna máli en vinirnir verða númer eitt. Margir leiðast svo út í alvarlegri afbrot. Hugsunarhátturinn breytist líka því ungum manni sem sér ekki neina framtíð verður sama um allt og alla, líka sjálfan sig og eigið líf. Atburðirnir í Kaupmannahöfn um miðjan febrúar síðastliðinn eru sorglegt dæmi um til hvers slíkt getur leitt.

  • Greinin birtist í Skólavörðunni, 4. tölublaði 2015. Skólavarðan er aðgengileg á pdf-formi en einnig er handhægt að lesa hana í Skólavörðuappinu sem fæst í App Store og á Google Play.