Eru danskir háskólar að breytast í menntaskóla...

Fréttir|28. apríl 2015

... og  af hverju vill ungt fólk í Danmörku ekki leggja stund á iðnám?

Umræður og fréttir um skólamál hafa verið áberandi í dönskum fjölmiðlum á undanförnum mánuðum. Fyrir skömmu var hart tekist á um fyrirkomulag kennslu, viðveru kennara og heimavinnu og tengdist það kjarasamningum kennara. Annað hefur þó verið fyrirferðarmeira í miðlunum að undanförnu, undirbúningur stúdenta fyrir háskólanám og spurningin um af hverju svo fá ungmenni vilja leggja stund á verknám.

Það var dagblaðið Berlingske sem hóf þessa umræðu með margra tölublaða greinaflokki og flest hin dagblöðin blönduðu sér fljótlega í hana, ásamt danska útvarpinu. Samkvæmt könnun sem Berlingske gerði meðal rúmlega tólf hundruð háskólakennara hafa fjórir af hverjum tíu kennurum, á síðastliðnum þremur árum, endurskipulagt kennslu sína vegna þess að nemendur hafa ekki haft kunnáttu og eða getu til að takast á við námsefnið. Í könnuninni kom líka fram að þetta væri mikil breyting frá því sem áður var. Könnunin var nafnlaus, en einn „gamalreyndur prófessor“ eins og hann kallaði sig sagði að fyrir tíu til fimmtán árum hefði ekki komið til greina að háskólakennarar önsuðu slíku enda hefði það aldrei komið til tals. Í könnun Berlingske kom enn fremur fram að háskólakennararnir teldu að einn af hverjum tíu sem lokið hefði stúdentsprófi og fengið inngöngu í háskóla ætti ekkert erindi þangað, væri allsendis ófær um að stunda nám á háskólastigi, skorti bókstaflega allt sem til þyrfti og dytti þess vegna fljótlega út.

Engar kröfur um lágmarkseinkunn í menntaskólana

Undanfarið hafa flokkarnir á danska þinginu eytt miklum tíma í að ræða umbætur á menntaskólakerfinu, þ.e. kennslunni, einkunnagjöf o.fl. Meðal þess sem mikið hefur verið rætt er hvort rétt væri að gera kröfur um lágmarkseinkunnir fyrir inngöngu í menntaskóla, til dæmis í dönsku og stærðfræði. Stjórnarandstöðuflokkarnir eru hlynntari slíkum kröfum og segja mikilvægt að þora að gera kröfur. Sumir þeirra hafa nefnt einkunnina 7 í stærðfræði (hæst er gefin einkunnin 12 í dönskum skólum) og 4 í dönsku. Þetta vilja stjórnarflokkarnir ekki, segja að möguleikar margra til að komast í menntaskóla myndu skerðast. Margar ástæður geti verið fyrir því að ungu fólki gangi ekki vel í grunnskólanum og rannsóknir sýni að mörgum sem koma í menntaskóla með slakar einkunnir vegni mjög vel í menntaskólanámi. Ef settar yrðu reglur um lágmarkseinkunnir myndi það útiloka stóran hóp (um 15%) frá því að komast beint í menntaskóla eftir grunnskólanám. Sá hópur þyrfti að bæta við sig námi til að uppfylla kröfurnar og það yrði þá til að seinka því fólki um að minnsta kosti eitt ár. Eftir langar og tímafrekar umræður í danska þinginu náðist ekki samkomulag um lágmarkseinkunnir og allt verður því óbreytt: þeir sem ná grunnskólaprófinu geta hér eftir sem hingað til hafið menntaskólanám. Og þeim sem það velja fjölgar stöðugt.

Og hvað svo?


Kunnugleg umræða fer nú fram í Danmörku um hversu vel nemendur sem útskrifast úr menntaskólum þar í landi eru í stakk búnir til að takast á við háskólanám. Ljósmynd: Jacob Nielsen.

Margir þeirra sem um þessi mál hafa fjallað að undanförnu telja að sökum þess að menntaskólarnir verði að taka við öllum sem ná grunnskólaprófinu lækki „standardinn“. Skólarnir lagi sig einfaldlega að nemendahópnum og þegar engrar lágmarkseinkunnar sé krafist verði útkoman þessi. Þá hefur verið bent á að hægt sé að samræma stúdentsprófið þannig að það verði eins konar „landspróf“. Mjög skiptar skoðanir eru um þá leið. Sumir hafa bent á að þá fari kennslan að beinast of mikið í þá átt að miða allt við stúdentsprófið og milli skólanna myndist eins konar keppni, en aðrir telja slíkt einungis af því góða.

Háskólamenn kvarta

Hver sem ástæðan kann að vera eru háskólakennarar sammála um að háskólakennslan hafi færst neðar, eins og þeir orða það. Duglegu og samviskusömu nemendurnir séu vissulega til staðar „Danskir stjórnmálamenn leggja aukna áherslu á að nemendur fari hratt gegnum nám og komist sem fyrst út á vinnumarkaðinn“ eins og áður en þeim slöku hafi hins vegar fjölgað mjög og það dragi kennsluna niður. Tölurnar um fjölda nemenda sem byrja í háskólanámi segja sína sögu, árið 2006 hófu um það bil 20 þúsund nemendur háskólanám í Danmörku, 2014 voru þeir tæplega 30 þúsund. Ralf Hemmingsen, rektor Kaupmannahafnarháskóla, og Hanne Leth Andersen, rektor Háskólans í Hróarskeldu, skrifuðu langa grein um þessi mál sem birt var í Berlingske. Þau vilja alls ekki fallast á að byrjunarnámið í háskólunum líkist æ meira menntaskólanámi en segja vissulega rétt að í byrjunarnáminu fari nú meiri tími í „upprifjun“ eins og þau orða það. Þau nefna líka að stjórnmálamenn hafi á undanförnum árum lagt mikla áherslu á að fleiri afli sér háskólamenntunar og þrýst á háskóla landsins að taka inn æ fleiri nemendur. Það er yfirlýst stefna núverandi stjórnar að sem flestir afli sér háskólamenntunar og árið 2020 fari að minnsta kosti 25% hvers árgangs sem lýkur grunnskólaprófi í lengra háskólanám. Rektorarnir tveir segja líka í áðurnefndri grein að tímapressan sé alltaf að aukast, stjórnmálamennirnir leggi aukna áherslu á að nemendur fari hratt gegnum námið og komist sem fyrst út á vinnumarkaðinn. Þetta, ásamt minni fjárveitingum til skólanna, hljóti að hafa áhrif.

Lektor við Kaupmannahafnarháskóla skrifaði fyrir skömmu grein í Háskólablaðið þar sem hann fjallar um minnkandi aga og áhuga stúdenta. Hann segir að í námskeiðum þar sem 120 eru skráðir mæti að jafnaði um það bil 30. Svo séu nemendur sem mæti sjaldan eða aldrei í tímana að agnúast út í kennarana og gefi þeim laka einkunn í nemendamati (þar sem nemendur meta kennsluna og kennarana). Kennari sem fái slaka útkomu úr nemendamatinu sé svo krafinn skýringa á henni hjá yfirstjórninni. Margir háskólakennarar hafa tekið undir þetta. Mörgum skólamönnum þykir stjórnmálamennirnir sýna skólamálum lítinn áhuga, nema kannski helst þegar kosningar nálgast en hér í Danmörku fara þingkosningar fram síðar á árinu, í síðasta lagi fyrir miðjan september.

Færri vilja munda rörtöngina og sveifla múrskeiðinni

Eftir að nemendum í iðnnámi hafði fækkað um margra ára skeið varð skyndilega breyting á árið 2013 en það ár fjölgaði iðnnemum talsvert. Engar augljósar skýringar blöstu við en afleiðingar kreppunnar voru þó taldar líklegastar. Það vakti athygli að nýnemarnir voru eldri en áður, eða með meðalaldur upp á rúmlega 20 ár. Þessi „uppsveifla“ stóð þó ekki lengi og í dag hefur iðnnemum aftur fækkað. Landssamband danskra iðnað- armanna dregur upp dökka mynd af ástandinu og telur að með sama áframhaldi muni vanta um 90 þúsund iðnaðarmenn árið 2030. Fækkunin nær til allra greina, en áhuginn er minnstur fyrir námi í pípulögnum og múrverki. Stjórnarmaður í iðnaðarmannasamtökunum sagði að einhverra hluta vegna þætti ekki fínt að vera iðnaðarmaður. Því hugarfari þyrfti að breyta þótt það væri sjálfsagt hægara sagt en gert. 

Borgþór Arngrímsson

 

Greinin birtist í Skólavörðunni, tímariti Kennarasambands Íslands. Lestu tímaritið hér. 

Skólavarðan í Apple-Store

Skólavarðan í Google Play

Skólavarðan á netinu