Erindi um kvíða barna

Fréttir|28. apríl 2020

Í erindinu verður fjallað um eðli og birtingarmynd kvíða hjá börnum/unglingum eftir mismunandi aldursskeiðum.

Miðvikudaginn 6. maí 2020, kl. 17 stendur Félag sérkennara á Íslandi fyrir erindi um kvíða barna.

Erindið verður haldið á þessari slóð.

Kvíði er eðlileg tilfinning og einskonar viðvörunarkerfi sem hjálpar börnum og unglingum að forðast hættur og vera betur í stakk búin að takast á við áskoranir í daglegu lífi. Þetta viðvörunarkerfi á þó til að bila og fara af stað í tíma og ótíma þó engin hætta sé á ferðum og koma í veg fyrir eðlilegan þroska, þátttöku í daglegu lífi og trufla nám og félagsleg samskipti.

Í erindinu verður fjallað um eðli og birtingarmynd kvíða hjá börnum/unglingum eftir mismunandi aldursskeiðum. Skoðaðar helstu orsakir og viðhaldandi þætti og hvaða leiðir eru gagnlegar til að takast á við kvíðavanda barna og unglinga á hjálplegan hátt.

Í lokin má koma með spurningar sem brenna á fólki, enda algengt að starfsfólk skóla sé að glíma við samskonar vanda víða og því gott að heyra spurningar frá öðrum og fá samtal um efnið.

Fyrirlesari er Berglind Brynjólfsdóttir sálfræðingur hjá Sálstofunni.

 

Stjórn Félags sérkennara á Íslandi.