Erfitt að vinda ofan af einkavæðingu

Fréttir|14. október 2015

Berglind Rós Magnúsdóttir lektor segir að ýmis stefnumið ógni faglegu sjálfstæði kennara, fjölbreytni og lýðræði í skólastarfi.

Berglind Rós Magnúsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, lauk nýlega doktorsprófi frá Cambridge háskóla í Bretlandi. Í upphafi doktorsnáms stundaði hún nám í Cornell háskólanum í Bandaríkjunum, í bænum Íþöku. Hún segist strax hafa fengið áhuga á að kynnast því sem var að gerast í menntamálum á svæðinu og fór því að kynna sér málið og þessi efniviður varð að lokum doktorsverkefnið.

 „Mjög hátt hlutfall íbúanna í Íþöku er háskólamenntað, enda er þetta samfélag sem snýst meira og minna um þá tvo háskóla sem eru í bænum. Þarna búa margir sem eru vel að sér um kerfisbundið misrétti milli ólíkra hópa samfélagsins og tala markvisst gegn rasisma og misrétti. Bæjaryfirvöld og yfirvöld skólamála voru þegar ég bjó þarna farin að horfast í augu við óæskileg langtímaáhrif menntamálastefnu sem tengja má við markaðsvæðingu. Í bænum voru starfræktir sjö grunnskólar og þrátt fyrir þessa meðvitund voru í einum þeirra samankomnir nær allir svörtu nemendurnir í bænum og um 80% nemenda skólans bjuggu undir fátæktarmörkum. Á hinum endanum voru svo tveir „fyrirmyndarskólar“ og þangað sendu t.d. flestir prófessorarnir við háskólana börnin sín, þannig að það var mjög mikið ójafnvægi varðandi menningarblöndun nemenda í þessum skólum en rannsóknir hafa sýnt að félagslegt og menningarlegt samhengi hefur ekki minni áhrif á mældan árangur skóla en innri þættir skólastarfs. Síðan kemur í ljós að þrátt fyrir alla rétthugsunina þá vilja þeir sem eiga börn í „góðu skólunum“ ekki missa neitt af sínum forréttindum, og það var einmitt dálítið sjokkerandi að fólk sem skilgreindi sig sem svona „liberal“ og fordómalaust átti erfitt með að brjóta upp þetta aðgreiningarmynstur í sínu nærum hverfi. Þegar svo leið á rannsóknina fór ég betur að átta mig á ástæðum þess, því í markaðsvæðingunni ríkir eins konar foreldraræði (parentocracy) í skólunum þar sem þeir eru neytendur á menntamarkaði en skilaboðin voru einfaldlega þau að ef þú sem foreldri nýttir ekki rétt þinn til hins ítrasta til að velja „rétt“ út frá þeim viðmiðum og stöðlum sem mótuðu samkeppnina og skapa barni þínu forskot á menntamarkaði með öllum tiltækum ráðum þá varstu einfaldlega vont foreldri.“

Þannig að þetta fólk vildi laga vandann alls staðar nema hjá sjálfu sér?
„Já, það var augljóslega mjög erfitt fyrir marga að horfast í augu við þessar afleiðingar og það er hluti af vandanum. Þegar skólakerfið hefur fengið að þróast með þessum hætti er mjög erfitt að brjóta það upp. Ef menn hafa fengið að upplifa forréttindi á ákveðnu sviði þá er svo erfitt að gefa þau eftir. Slík stétta- og menningaraðgreining hefur síðan augljós langtímaáhrif, því í þessa skóla ganga börn niður í sex ára gömul. Í þessu kerfi eru þau þá annars vegar að umgangast að mestu börn sem búa við jafnmikla fátækt og þau sjálf, eða þá að þau hitta nær eingöngu elítukrakkana og halda að heimurinn sé bara svona. Elítubörnin eru svo þau sem eiga eftir að stjórna landinu, börn sem skólakerfið skilar út í samfélagið með takmarkaða innsýn í það hvernig heimurinn er fyrir þá sem ekki búa við sams konar forréttindi.“

Skólakerfið er ekki einsleitt
Berglind Rós segir að hér á landi sé aðeins að finna anga af þessari hugsun á grunn- og framhaldsskólastiginu. Almennt státi Íslendingar, eins og aðrar Norðurlandaþjóðir, af frekar blönduðu grunnskólakerfi en með því að stilla almenningsskólum upp sem samkeppnisaðilum um nemendur þar sem reglulega eru gefnar út árangurstöflur út frá örfáum samræmdum stöðlum sé ýtt undir einsleitari hverfa- og skólasamsetningu og það hafi einnig verið að þróast með slíkum hætti hér á síðustu
árum.

„Við erum þó enn með ólíka hópa fólks saman í hverfum og blandaða skóla, sem einmitt hefur verið sýnt fram á að ýti undir jöfnuð og í raun meiri og betri almennan árangur. Gagnrýnendur kerfisins túlka þetta síðan yfir í eitthvað slæmt, þ.e. að kerfið sé einsleitt og telja það vandamál að það muni ekki meiru í meðalárangri milli skóla því það ýti ekki nógu markvisst undir samkeppni á milli þeirra. Það er í raun jákvætt að ekki sé meiri árangursmunur milli skóla og er í raun merki um að við erum enn með talsverða menningarlega fjölbreytni innan hvers skóla, þótt mér finnist þróunin á síðustu árum mikið áhyggjuefni hér í Reykjavík, þ.e. að eitt hverfi sé með yfir 50% foreldra með háskólapróf og annað hverfi með um 10% og eins hefur einkareknum skólum (charter schools) fjölgað talsvert en erlendar rannsóknir sýna að þeir ýta undir þá hugmynd að líta á menntun sem einkahagsmuni og eru taldir ýta undir aðgreiningu af þessu tagi. Það má ekki gleyma því að fjölbreytni í nemendahópum gefur möguleika á miklum námstækifærum í skólanum og svo í leik og starfi meðfram skóla. Um leið og þú ert kominn með einsleitan félagslegan bakgrunn í einstökum skólum, eins og í dæminu sem ég nefndi áðan, þá ertu kominn í vandræði því það er raunveruleg einsleitni fyrir börn. Niðurstaðan sem ég komst að í gegnum rannsóknir mínar er að þegar búið er að markaðsvæða hugsunina um skólastarf, þ.e. að almannahagsmunir víkja fyrir einkahagsmunum og allt snýst um „mitt barn“ þá elur það á menningarlegri aðgreiningu og það er erfitt að snúa henni til baka.“

Skapandi greinar settar til hliðar
Berglind skoðaði einnig áhrif breytinga sem gerðar voru á bandaríska menntakerfinu í kjölfar þess að George W. Bush, þáverandi Bandaríkjaforseti, staðfesti árið 2002 lagabálkinn „No Child Left Behind“ sem ætlað var að bæta lestrarkennslu í almenningsskólum.

„Í gegnum þessa stefnu var í bandarískum skólum lögð meiri áhersla en áður á bókfögin, sérstaklega stærðfræði og læsi. Þarna var komin þessi sterka lestrarstefna í gegnum „No Child Left Behind“ sem tók á margan hátt yfir skólastarfið, en áherslan var á grunngreinarnar, þ.e. þá þætti í þeim sem hægt væri að mæla. Í þeim skóla í Íþöku sem hafði hæst hlutfall þeirra nemenda sem stóð höllum fæti voru nánast engar kennslustundir í textíl, hönnun og smíðum. Það var mjög lítill tími settur í myndlist og það voru engir fastir tímar í tónmennt. Í raun voru list- og verkgreinar og erlend tungumál talsvert sett í hendurnar á foreldrafélögum skólanna og þá fór námsframboðið að ráðast af menningarauði og tíma þeirra foreldra sem stóðu að skólanum og hversu margar heimavinnandi húsmæður gátu komið inn í skólana á dagvinnutíma til að vinna ókeypis og sinna verkefnum sem kennarar fá greitt fyrir hér.
Elítuskólarnir höfðu svo marga slíka foreldra að það var jafnvel erfitt fyrir allar mæðurnar að komast að með sitt. Sá skóli sem hafði minnst hlutfall háskólamenntaðra foreldra og hæst hlutfall mæðra sem þurfti að vera í ósveigjanlegri vaktavinnu og mörgum störfum til að ná endum saman stóð ekki vel í slíku menntakerfi. Allir kennararnir sem ég talaði við um þessi mál voru að berjast fyrir því að fá faglegt sjálfstæði til að kenna út frá þeim fræðum og hugmyndum sem einkenna uppeldis- og kennslufræði og hafa sýnt sig að skipta máli fyrir árangur, sjálfstæði barna, sköpunarkraft og vellíðan í skólum og taka tillit til þess félagslega samhengis sem einkenndi þeirra bekkjarsamfélag. Þetta er eitthvað sem við þurfum virkilega að velta fyrir okkur í þessari sterku samræmingarumræðu hér heima. Kennarar eru margir hverjir ekki hrifnir af því að fá svona „uppskriftir“.

En stjórnmálamenn vilja gera breytingar og setja mark sitt á kerfið?
„Algerlega og það þarf ekki að vera neikvætt ef það er gert í samvinnu við fagfólkið – en það eru athyglisverðar mótsagnir í stefnumiðum ríkjandi afla sem tala fyrir auknu frelsi en eru um leið með stefnumið í átt að aukinni miðstýringu.“


Berglin Rós Magnúsdóttir, lektor við Menntavísindasvið
Háskóla Íslands. 

Berglind Rós segir margt í orðræðunni nú sem minni áhvernig George Bush talaði fyrir „No Child Left Behind“ lögunum. „Fullyrðingar eins og „hver getur verið á móti því að efla læsi“ voru notaðar ytra á sínum tíma og sú setning hefur einmitt heyrst í umræðunni hér að undanförnu. Sem er einmitt það sem þessir einsleitnisinnar gera, þ.e. nýta sér réttlætis- og frelsishugtök til að skapa aukna miðstýringu. Mér finnst síðan afar merkilegt að þegar búið er að rannsaka afleiðingar þessara breytinga í Bandaríkjunum á sínum tíma, og í raun sýna fram á neikvæðar afleiðingar þeirra fyrir skapandi og lýðræðislegt skólastarf, að við Íslendingar ætlum að endurtaka svipaðan leik. Þarna voru kennurum settar mjög þröngar skorður um hvað þeir ættu að gera og hvernig þeir ættu að kenna. Í kjölfarið áttu allir nemendur að ná ákveðnum lágmarksviðmiðum og framförum frá einu ári til annars, sem gerðist ekki jafn auðveldlega og gert var ráð fyrir því málin eru flóknari en svo. Rannsóknir hafa reyndar sýnt að eftir að þessar breytingar sem gerðar voru á skólastarfinu í Bandaríkjunum í gegnum NCLB batnaði hinn mældi árangur til skamms tíma en langtímaáhrifin voru víða lítil sem engin. Skaðinn sem getur orðið á faglegu og fjölbreytilegu starfi í skólunum er að mínu mati of mikill til að fara í þennan leiðangur. Það er líka hætta á að menn fái kennarastéttina upp á móti sér þegar tekið er á þennan hátt fram fyrir hendurnar á fagfólkinu sem starfar í skólunum. Ekki viljum við lenda í vandræðum líkt og í Bandaríkjunum þar sem reyndir og góðir kennarar sem eru vanir faglegu sjálfstæði og heildstæðri nálgun í kennslu hafa unnvörpum sagt upp störfum því þeir finna sig ekki í starfi lengur.“

Lýðræðisskerðing með Menntamálastofnun
Eins og kunnugt er blandaðist Menntamálastofnun inn í umræðuna um læsisátak menntamálaráðherra, þegar stofnunin birti rannsókn sem taldi sig sýna fram á slæma reynslu af verkefninu „Byrjendalæsi“ ásamt tölum um versnandi lestrarkunnáttu grunnskólabarna. Niðurstöður og framsetning stofnunarinnar voru í framhaldinu gagnrýndar harðlega.

„Í fysta lagi þá reyndu þeir að blekkja almenning með grafík. Tökum niðurstöður PISA sem dæmi, en gefið var í skyn að leskunnátta væri að versna og staðan árið 2012 væri sérstaklega slæm. Hún er hins vegar ekkert verri en hún var árið 2006. Þá varð þó ekki sami tryllingurinn, enda sýnist mér í dag verið að nota efnhagshrunið og ótta fólks við að standast ekki samkeppnishæfni til að knýja fram gríðarlegar kerfisbreytingar. Í umræðunni kemur aldrei fram að sveiflur í gengi í PISA prófunum eru mjög algengar víða um lönd. Ástæðurnar geta verið gríðarlega margar og flóknar. Nú er ég ekki að segja að við gætum ekki staðið okkur betur eða að það megi ekki gagnrýna byrjendalæsi en það er hins vegar galið að segja við þjóðina að skýringin á árangursflöktinu sé einfaldlega sú að kennarar kunni ekki að kenna, þeim sé ekki treystandi og því þurfi ráðherra að grípa inn í og handstýra þessu ofan frá. Það eru ýmis önnur grunnkerfi í okkar samfélagi sem hafa verið flöktandi á síðustu árum og snúa að efnahag og velferð, en á það er ekki minnst sem hugsanlega skýringu. Skólinn er ekki eyland í samfélögum.“

Illa staðið að nýrri Menntamálastofnun
Berglind óttast að hlutverk Menntamálastofnunar mótist um of af þessari löngun ráðherra til að handstýra skólakerfinu en slíkar stofnanir þurfi að ávinna sér traust fagstéttanna með því að vera sjálfstæðar gagnvart ráðherravaldi hverju sinni.
„Þegar á að umbylta menntakerfi í grunnfögunum er hentugt fyrir þá sem leiða þær breytingar að hafa námsgagnagerð og námsmat á einum stað. Þar með er hægt að útbúa og innleiða námsefni sem passar við þá hugmyndafræði sem á að innleiða og þær áherslur sem á að mæla. Það er fleira sem veldur mér áhyggjum. Ég sendi til dæmis inn umsögn um frumvarpið um stofnunina þar sem ég gagnrýndi að öll lýðræðisaðkoma kennara og annarra aðila úr skólasamfélaginu væri afnumin. Það er engin eiginleg stjórn yfir stofnuninni heldur heyrir forstjóri hennar beint undir ráðherra. Það þýðir til dæmis að þegar stofnunin gaf út þessa meintu rannsókn á byrjendalæsi þá var engin stjórn sem gat komið saman og sagt við forstjórann að svona slæleg vinnubrögð og framganga af þessu tagi gengju ekki. Eftir gagnrýni í umsögn minni og annarra aðila setti Alþingi inn ákvæði um sýndarsamráð sem fól í að þessir aðilar fengju formlegan fund með forstjóranum einu sinni á ári til að ræða málin. Eins fannst mér einkennilega staðið að ráðningu forstjórans og því rými sem honum var gefið til að að vinna að markmiðum stofnunarinnar löngu áður en lög um hana voru samþykkt á Alþingi. Forstjórinn, sem áður starfaði fyrir ráðherra og ritstýrði m.a. hvítbók hans, var valinn til starfsins umfram aðra umsækjendur með kennarapróf og –reynslu og doktorspróf á sviði stofnunarinnar.“

Viðtalið við Berglindi Rós birtist í Skólavörðunni, 5. tbl.
Hægt er að lesa Skólavörðuna í smáforriti sem
má nálgast í App Store og Google Play.
Einnig er þægilegt að lesa Skólavörðuna á netinu.