Erfiðustu spurningarnar koma ekki á prófi

Fréttir|26. janúar 2014

Kennarasamband Íslands efnir til málþings um hvernig nýta megi list- og verkgreinar til að efla menntun. Þingið verður haldið á Grand Hótel Reykjavík 17. febrúar næstkomandi. Framkvæmdastjórn skólamálaráðs KÍ sér um skipulagningu málþingsins og koma öll skólastig/skólagerðir þar að, þ.e. leikskólinn, grunnskólinn, framhaldsskólinn og tónlistarskólinn.

Þetta verður öðruvísi málþing en fólk á að venjast vegna þess að sköpun í víðum skilningi verður áberandi í dagskránni í bland við fyrirlestra og samræður og verða allir málþingsgestir virkjaðir á einhvern máta. Þetta verður ógleymanlegur dagur og um að gera að storma á Grand Hótel og sækja sér verkfæri í kistuna – verkfæri til að gera skólastarfið litríkara, meira skapandi og árangursríkara.

Aðalfyrirlesari á málþinginu verður Dr. Linda Nathan, stofnandi og fyrrverandi skólastjóri Boston Arts Academy. Linda starfar aðallega sem fræðimaður og ferðast vítt og breitt um heiminn með fyrirlestrahald. Hún nefnir fyrirlestur sinn „Why arts - fyrir kennara á Íslandi“. Að hennar erindi loknu verða þrír sérfræðingar með stutt innlegg. Í framhaldi af því verða pallborðsumræður. Þar gefst málþingsgestum tækifæri til að spyrja framsögumenn spjörunum úr.

Málþingið, verður sem fyrr segir 17. febrúar næstkomandi og stendur frá 13 til 17. Dagskrá og nánari upplýsingar verða birtar síðar. Málþingið er opið öllum áhugasömum.