Er þinn skóli UNESCO-skóli?

Mikill kraftur hefur verið í UNESCO-skólaverkefninu hér á landi undanfarin ár og aukinn áhugi skóla á að taka þátt. Skólarnir eru nú rúmlega 20 talsins, leikskólar, grunnskólar og framhaldsskólar, og það er stefnt að því að þeir verði hátt í 60 í haust,“ segir Kristrún María Heiðberg, verkefnastjóri UNESCO-skóla á Íslandi.
UNESCO-skólar leggja áherslu á alþjóðasamvinnu, starfsemi Sameinuðu þjóðanna (SÞ), heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun og frið og mannréttindi. „Margir skólar eru nú þegar að vinna með heimsmarkmiðin án þess kannski að gera sér grein fyrir því. Flestir skólar eru til dæmis að vinna með frið, jafnrétti, nemendalýðræði, umhverfis- og loftslagsmál en þetta eru allt málefni sem falla undir heimsmarkmiðin. Heimsmarkmiðin snerta allt okkar líf, málið er kannski aðallega að finna þessar tengingar,“ segir Kristrún.
UNESCO-skólaverkefnið er eitt af elstu skólaverkefnum í heimi, starfrækt frá árinu 1953. Skólarnir eru um 12 þúsund talsins í um 180 löndum. Verkefnið hér á landi er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu og styður við framgang aðgerðar 8 í menntastefnu stjórnvalda, raddir unga fólksins – virkt nemendalýðræði á öllum skólastigum, auk þess að styðja við stefnu um barnvænt Ísland og efla lýðræðis- og mannréttindamenntun. Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hefur umsjón með UNESCO-skólaverkefninu.
Gæðastimpill fyrir skóla
Að sögn Kristrúnar er mikill gæðastimpill fyrir skóla að vera UNESCO-skóli og mikill ávinningur að taka þátt. „Skólarnir hafa aðgang að fjölbreyttu og vönduðu námsefni, deila með sér verkefnum og hugmyndum, fá tækifæri til að heimsækja erlenda skóla, taka þátt í ráðstefnum víða um heim og margt fleira. Þess má einnig geta að hópur kennara úr nokkrum UNESCO-skólum hér á landi fór nýlega á ráðstefnu á Lanzarote til að kynna sér verkefni um heimsmarkmiðin og sjálfbærni.“
UNESCO-skólar verða að uppfylla ákveðin viðmið, að halda upp á tvo alþjóðadaga SÞ á hverju skólaári, halda viðburði tengda SÞ, taka þátt í Heimsins stærstu kennslustund og skila stöðuskýrslu um verkefnið. „Ég starfaði sjálf lengi sem kennari og veit því að kennurum finnst ekki alltaf tími eða kraftur til að byrja á nýjum verkefnum. Ég hef því lagt áherslu á það hjá skólum sem vilja koma inn í verkefnið að fara yfir það sem þegar er verið að gera, sem er oft heilmikið, og tengja það við áherslur UNESCO-skóla. Síðan er hægt að vinna út frá því og taka næstu skref. Skólar í verkefninu eru einnig að vinna saman og nýta sér góða reynslu annarra, þannig að ekki þurfi alltaf að finna upp hjólið. Verzlunarskóli Íslands, sem er UNESCO-skóli, hefur til dæmis verið með sérstakan áfanga um heimsmarkmiðin fyrir 1. árs nemendur, sem fékk tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna árið 2023.“

Hress hópur kennara á námskeiði um heimsmarkmiðin
Fjölbreytt og gott námsefni
UNESCO-skólar eru með sérstakan skólavef þar sem finna má fjölbreytt og vandað námsefni fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Á vefnum, sem er öllum opinn, er meðal annars námsefni um flóttafólk sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Félag Sameinuðu þjóðanna gáfu út haustið 2023. Að sögn Kristrúnar er markmiðið að veita skólum og kennurum tæki og tól til að fræða börn og ungmenni á Íslandi um fólk sem neyðist til að flýja heimili sín. Tekist er á við ýmis málefni tengd flóttafólki, sem nú eru í brennidepli í pólitískri og opinberri umræðu og geta jafnvel átt það til að stuðla að sundrung og fordómum gagnvart innflytjendum og flóttafólki. Efnið má nálgast hér.
Eitt af stærstu verkefnum UNESCO-skóla er Heimsins stærsta kennslustund (World Largest Lesson) sem er árlegt átak styrkt af UNESCO og snýr að kennslu á heimsmarkmiðunum. „Markmiðið er að efla vitund nemenda og hvetja þá til aðgerða er kemur að sjálfbærri þróun og heimsmarkmiðunum. Undanfarin ár hefur verið lögð áhersla á loftslagsmál og hvernig ungt fólk getur lagt sitt af mörkum til að styðja við aðgerðir í loftslagsmálum,“ segir Kristrún.
Vinsæl námskeið fyrir kennara
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hefur síðastliðin þrjú ár haldið haustnámskeið fyrir kennara og skólastjórnendur um heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun. Námskeiðið, sem ætlað er fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, hefur notið mikilla vinsælda og færri komist að en vildu. „Á námskeiðinu er farið í merkingu og markmið heimsmarkmiðanna og hvernig hægt er að nota þau í kennslu. Kennurum hefur oft fundist vanta tæki og tól til að vinna með heimsmarkmiðin og námskeiðið hefur einmitt komið til móts við þá eftirspurn,“ segir Kristrún.
Eins og áður segir er mikill áhugi hjá skólum að gerast UNESCO-skólar. „Nokkrir skólar og sveitarfélög eru í umsóknarferli og ef allt fer sem horfir má búast við að um 35 skólar bætist við næsta haust. Þá verða UNESCO-skólar hér á landi orðnir hátt í 60 talsins. Þess má geta að UNESCO-skólar í Bretlandi eru um 200 talsins. Þetta er mikil og ánægjuleg fjölgun og frábært að skólar séu að leggja aukna áherslu á þessi mikilvægu málefni,“ segir Kristrún að lokum.
