Er óskalistinn klár?

Félagsmenn KÍ geta lagt fram óskir sínar um orlofshús fyrir næsta sumar frá og með þriðjudaginum 22. febrúar.
Opnað verður fyrir leigu á sumarhúsum Orlofssjóðs klukkan 12:00 næstkomandi þriðjudag, 22. febrúar. Félagsmenn geta þá lagt fram óskalista en í þessari umferð er einvörðungu um vikuleigu að ræða. Hægt er að velja sex eignir.
Þau sem sækja um hús fá tölvupóst mánudaginn 14. mars þar sem tilkynnt er hvort og þá hvaða eign viðkomandi fær úthlutað. Greiða þarf leigugjaldið í síðasta lagi á hádegi fimmtudaginn 17. mars 2022. Sama dag, klukkan 18, verður opnað fyrir bókanir flakkara en þar er fyrirkomulagið einfalt; fyrstur kemur, fyrstur fær.
Nánar um úthlutunarreglur og fyrirkomulag sumarbókana
Félagsmenn eru hvattir til að skoða Íslandskortið og kynna sér hvað er í boði á Orlofsvefnum. Auk sumarhúsa og orlofsíbúða geta félagsmenn nýtt sér ferðaávísanir, útilegu- og veiðikort, gjafabréf ferðaskrifstofa og flugfélaga auk þess sem hægt er að sækja um styrk vegna göngu- og bátsferða. Nánar um þetta á Orlofsvefnum.
Ertu með spurningu? Netfang Orlofssjóðs er orlof@ki.is.
Heildarlisti yfir sumarhús í boði sumarið 2022