Er eitthvað plan B?

Fréttir|28. október 2014

„Nú stendur til með einu pennastriki að veita stórum hópi ungs fólks sem vill mennta sig önnur úrræði en framhaldsskólann. Símenntunarmiðstöðvarnar eiga að taka við þessum hópi hópi með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn," segir Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, í nýjum vikupósti sem birtur er á vefsvæði FF. 

Guðríður gerir áform menntamálaráðherra um að fækka nemendaígildum framhaldsskólanna að umtalsefni í grein sinni. Til þess að ná fram þeirri fækkun eigi að vísa nemendum 25 ára og eldri annað. Guðríður spyr hvers þessi stóri hópur eigi að gjalda? „Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð verður lokað og Leikskólabrú Fjölbrautarskólans í Garðabæ verður lögð niður á næsta ári – hvort tveggja úrræði sem hafa nýst eldri nemendum, verið þeim ómetanlegt veganesti og stökkpallur í frekara nám. Og hvað tekur við? Erum við með plan B fyrir þennan hóp?“ segir meðal annars í grein í Guðríðar.