Er brjálað að gera?

Vitundarvakning VIRK hófst nýverið með auglýsingum sem vekja eiga athygli á forvarnarverkefni sem nú er unnið að innan VIRK.
Vitundarvakning VIRK hófst nýverið með auglýsingum sem vekja eiga athygli á forvarnarverkefni sem nú er unnið að innan VIRK. Markmiðið er að sporna við brotthvarfi af vinnumarkaði vegna heilsubrests.
Við lifum í samfélagi þar sem sífellt fleiri virðast heltast úr lestinni vegna tímabundinna eða langvarandi veikinda. Svo virðist sem hluti af þessum veikindum sé til kominn vegna langvarandi álags bæði í starfi og einkalífi.
Auk vitundarvakningarinnar og vefsíðunnar velvirk.is er einnig verið að undirbúa rannsókn á vegum VIRK. Rannsóknin miðar að því að einangra breytur sem hafa áhrif á endurkomu til vinnu eftir veikindafjarveru með það að leiðarljósi að hægt væri að nýta niðurstöðurnar til að fyrirbyggja brotthvarf af vinnumarkaði.
Vefsíða þar sem finna má upplýsingar og gagnleg ráð í forvarnarskyni.