Enn þrengt að framhaldsskólum

Fréttir|17. september 2014

„Metnaðarleysi hins opinbera gagnvart framhaldsskólastiginu er algjört, framhaldsskólinn er kominn yfir þolmörk og meiri samdrátt þolir hann ekki. Samkvæmt fjárlagfrumvarpinu eru stefnumið hvítbókar um endurskipulagningu starfsmenntunar, mótun heildstæðrar stefnu um náms og starfsráðgjöf og ráðstafanir til að sporna gegn brotfalli einungis orðin tóm," skrifar Guðjón Ragnar Jónasson, framhaldsskólakennari í MR, í nýjum Vikupósti á vef FF. 

Guðjón segir flesta hafa búist við að reynt yrði að efna ákvæði nýrra framhaldsskólalaga og fyrirheit hvítbókar um eflingu menntunar. „Fá sýnileg merki eru þar um og vandséð hvernig ákvæði áðurnefndra laga, til dæmis þau sem lúta að sérþörfum og námskostnaði nemenda, verði uppfyllt. Samhliða boðar ríkið svo auknar álögur á nemendur og fjölskyldur þeirra með því að hækka virðisaukaskatt á bækur," skrifar Guðjón.