Enn einn dagurinn
Varla líður sá dagur að ekki sé hann kenndur við hagsmuni eða hugðarefni einhvers hóps í samfélaginu. Þykir mörgum nóg um og fæstir nenna að klæðast fjólubláu vegna dags himinsins eða tileinka sér boðskap dags þríhjólsins svo skálduð séu upp dæmi.
Dagur leikskólans er þó uppáhaldsdagur margra og tugþúsundir Íslendinga, stórra og smárra, fagna honum með áþreifanlegum hætti um allt land. Tæp 20 þúsund leikskólabörn eiga væntanlega 40 þúsund foreldra og þar með 80 þúsund afa og ömmur og miðað við 2.5 barn á heimili þá erum við að tala um 30 þúsund systkini. Starfsmenn leikskólanna eru í rúmlega fimm þúsund stöðugildum og sveitarstjórnarfólkið sem allt brennur fyrir leikskólamálin á sínum stað hefur örugglega fagnað Degi leikskólans.
Það er komin rík hefð fyrir því að leikskólalífið á landinu komi sér í sviðsljósið þann 6. febrúar ár hvert. Leikskólalífið birtist í myndum og frásögnum í fjölmiðlum og starfsmenn, börn og foreldrar upplifa hver í sínum skóla ævintýri dagsins.
Dagur leikskólans 2015 var tileinkaður fjölgun leikskólakennara í kjölfar umræðna og átaks sem sett var á laggirnar í ráðuneyti mennta og menningarmála að frumkvæði stéttarfélaga leikskólafólks innan KÍ. Ásamt ráðuneytinu, FL og FSL eiga Samband sveitarfélaga og Heimili og skóli líka sinn þátt í því að halda daginn hátíðlegan og fulltrúar frá þessum aðilum skipa starfshóp um Orðsporið sem eru hvatningarverðlaun til handa þeim sem skara fram úr í þágu leikskólastarfs á Íslandi. Eins og fram hefur komið var Orðsporið í ár veitt sveitarfélögum sem hafa sett metnaðarfulla stefnu um að fjölga leikskólakennurum og framkvæmt hana með árangri.
Það getur hljómað mótsagnakennt að stéttarfélög berjist með kjafti og klóm fyrir því að fjölga meðlimum í stað þess að nýta lögmálið um framboð og eftirspurn og gera þá verðmeiri sem fyrir eru. En við sem skipum hóp leikskólakennara og stjórnenda leikskóla virkum ekki þannig. Hagsmunir heildarinnar eru okkur mikilvægir og við viljum að öll börn á Íslandi njóti náms í góðum leikskóla og gæði leikskóla byggjast á menntun og hæfni kennara og stjórnenda. Lögin segja að 2/3 starfsmanna við uppeldi og kennslu skuli hafa leyfisbréf til leikskólakennslu og við munum ekki unna okkur hvíldar fyrr en það verður uppfyllt. Úrtöluraddir benda gjarnan á að markmið laganna sé allt of fjarlægt og það verði að breyta lögunum til þess að færa þau nær raunveruleikanum. Þá bendum við á á móti á sveitarfélög eins og Seltjarnarnes, Akranes og Akureyri þar sem hlutfall leikskólakennara er hæst til sönnunar á því að þetta sé framkvæmanlegt.
Í leikskólanum Bergheimum í Þorlákshöfn, í verðlaunasveitarfélaginu Ölfusi, hafa 13 leikskólakennarar útskrifast eftir nám með vinnu. Ef 250 leikskólar landsins myndu ná að framleiða fimm leikskólakennara hver á næstu 15 árum þá væri markmiðinu um 1.300 leikskólakennara náð. Nú verða opinberir aðilar þ.e. ráðuneyti og sveitarfélög taka af allan vafa um áframhaldandi aðgerðir til eflingar leikskólastiginu og sjá til þess að fjármagn og tíma verði varið til þess.
Koma svo !!!
Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður Félags stjórnenda leikskóla
p.s. Ykkur til yndisauka er hér tengill á myndband frá leikskólanum Lundarseli á Akureyri. Þetta myndband komst í úrslit stuttmyndakeppni sem haldin var í tilefni Dags leikskólans fyrir nokkrum árum og ber heitið Umhyggja og virðing. Ég veit að dagurinn, hvað sem hann heitir, verður betri eftir áhorfið. Góðan dag alla daga!