Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur

Um rödd kennara og mikilvægi hljóðvistar fyrir kennara og nemendur.
Kennarar, röddin og gleðin
Röddin er atvinnutæki kennara, eða kjafturinn og krítin eins og góður kennari sagði eitt sinn. Reyndar heyra grænu krítartöflurnar sögunni til sem betur fer en röddin stendur enn fyrir sínu. Raddbeiting kennara er æði misjöfn og er okkur öllum eðlislægt að reyna að yfirgnæfa þann hávaða sem hamlar því að boðskapurinn berist nemendunum. Meðvitund um mikilvægi heilbrigðrar raddar og heyrnar er öllum kennurum mikilvæg því enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Pistill þessi er einkum hugsaður til vitundarvakningar þessarar gömlu vísu sem raddvernd er enda er efnið byggt á gömlu efni en sett í nýjan búning.
Hljóðvist í kennslurými
Með hljóðvist er átt við ómtíma og hljóðstig (desíbel, dB) í umhverfi, t.d. kennslurými. Hljóðvist skiptir máli fyrir hlustunarskilyrði og upplifun fólks af hljóðum í umhverfinu. Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) segir í viðmiðum sínum að þegar einstaklingur geri eitthvað sem krefjist þess að hann einbeiti sér að því að hlusta, eins og að stunda nám, læra eða hlusta á erlent tungumál eða símtal, megi bakgrunnshávaði ekki vera meira en 15 dB. Hljóðstyrkur meðalmanneskju, sem talar við einhvern í eins metra fjarlægð, er um 50 dB. Af því leiðir að bakgrunnshávaði í kennslustofu má ekki vera meiri en 35 dB.
Bakgrunnshávaði er hver sá óþarfa hávaði eða stöðugt hljóð sem er í rými, svo sem frá rafmagnstækjum á borð við tölvur, ljós, viftur og loftræstikerfi. Rödd kennara þarf að vera 15-20 dB hærri en hávaðinn til að börn heyri hana ólíkt fullorðnum sem greina rödd af sama styrkleika og hávaðinn er. Ef bakgrunnshávaðinn er of mikill kemur kennarinn ekki skilaboðum sínum á framfæri til nemenda þar sem röddin getur ekki verið nógu há. Ofan á þetta bætist svo að röddin dofnar eftir því sem fjarlægðin er meiri og því heyra þeir sem sitja aftar í skólastofunni enn síður til kennarans.
Erilshávaði er óútreiknanlegur, óstöðugur og ófyrirsjáanlegur hávaði. Hann kemur frá hreyfingum, athöfnum og búkhljóðum fólks. Erilshávaði er sjaldan mældur en rannsóknir sýna að þessi tegund hávaða virðist valda fólki meiri óþægindum heldur en bakgrunnshávaði. Mæla ætti erilshávaða oftar og hafa í huga fyrir hverja mælingin er. Staða mælitækja, hæð þeirra, lengd mælinga og hvenær dags þær eru gerðar skiptir mjög miklu máli. Í raun og veru ættu mælingar alltaf að fara fram þegar erillinn er hvað mestur. Að mörgu er að hyggja í rannsóknum á hávaða en einkum þarf að beina mælingum að nemendunum sjálfum en ekki þeim fullorðnu sem nýta rýmin.
Ómtími og bergmál í rými
Ómtími er mælikvarði á bergmál. Allt endurkast hljóðs er viðbót við það hljóð sem fyrir er og því skiptir miklu máli að draga sem best úr endurkasti hljóðs á vinnustöðum. Ómtími veltur á því hve vel veggir, loft, gólf og aðrir fletir og hlutir sem til staðar eru gleypa í sig hljóðið sem á þá fellur. Í leik- og grunnskólum á ómtími að vera á bilinu 0,6-1,5 sekúnda skv. byggingarreglugerð eftir því til hvers rýmið er notað.
Þegar skólahús eru byggð í dag er farið eftir þeirri flokkun sem sjá má á mynd 1. Viðmiðið fyrir skólahúsnæði er að lágmarki flokkur C en hugað er að tilgangi hvers rýmis við hönnun.
Mynd 1
Í erlendum rannsóknum hefur komið fram að ómtími í kennslurými barna þarf að vera 0,4 sekúndur til að koma í veg fyrir að hljóðgreining þeirra skerðist. Viðmiðunarmörk í reglugerðum hérlendis eru því of há (0,6-0,8 sekúndur) þar sem miðað er við fullorðna en hljóðgreining þeirra skerðist ekki fyrr en eftir u.þ.b. 1 sekúndu en skemmri tíma hjá börnum. Mynd 2 sýnir viðmiðunarómtíma mismunandi svæða í skólum eftir flokkunum á mynd 1. Eins og fram hefur komið er hér miðað við fullorðna ekki börn.
Mynd 2
Hver er hættan?
Lélegur hljómburður getur valdið því að öll aukahljóð í umhverfinu magnast upp og veldur þannig óþarfa óþægindum, hljóðgreiningarvanda og jafnvel skaða bæði hjá nemendum og kennurum.
Kennarar
Erlendir fræðimenn benda á að of langur ómtími geti dregið orku úr kennurum og þeir fundið fyrir langvarandi þreytu. Orkuleysi getur dregið úr starfsánægju og leitt að lokum til örmögnunar. Ekki stafar eingöngu hætta af orkuleysi því lök hljómgæði geta haft veruleg áhrif á raddheilsu kennara og leitt til alvarlegra raddvandamála. Samkvæmt íslenskum rannsóknum telja 50% kennara sig á einhverjum tímapunkti starfsævi sinnar hafa átt við raddvandamál að stríða. Slæm raddheilsa kennara getur leitt til skertrar lífs- og starfsánægju, leitt til minni félagslegrar þátttöku innan sem utan vinnu og aukið álag og kvíða. Enn fremur eru konur frekar í áhættuhópi en karlar einkum vegna þess að raddbönd þeirra eru í meiri notkun enda styttri og sveiflast mun hraðar en karla.
Röddin er aðalatvinnutæki kennara. Eðli fólks er að yfirgnæfa hávaða þegar það talar sem er verulega slæmt til langs tíma. Raddvandamál geta leitt til varanlegs heilsutjóns og komið í veg fyrir að kennari geti sinnt starfi sínu. Samkvæmt Valdísi I. Jónsdóttur, doktor í talmeinafræðum, eru fjórar helstu ástæður slæmrar raddheilsu kennara:
a) Of mikið álag á raddfæri
b) Starfstengd streita
c) Óvistvænir umhverfisþættir eins og lélegur hljómburður, of mikill bakgrunnshávaði og/eða of mikil fjarlægð til hlustenda.
d) Þekkingarleysi á raddheilsu, hlustunargetu og hvernig umhverfisþættir geta haft áhrif þar á
Með þetta í huga og aukinni meðvitund má vel koma í veg fyrir að raddheilsu hraki.
Nemendur
Rannsóknir sýna enn fremur að slök hljóðvist í kennslurými og hávaði sé ekki aðeins streituvaldur heldur getur líka haft veruleg áhrif á lífsgæði og námsgetu nemenda. Áður hefur verið minnst á hljóðgreiningu barna, hún skiptir verulegu máli í í öllu námi, sérstaklega lestrarnámi. Börn eru viðkvæmari fyrir hávaða en fullorðnir vegna styttri hlustar og óþroskaðrar heyrnarfærni. Það merkir að börn eiga erfiðara með að hlusta sér til gagns og hafa ekki sömu málfærni og fullorðnir. Hlustunarskilyrði þurfa að vera betri en hjá fullorðnum og rödd þess sem talar við börn þarf að yfirgnæfa þann hávaða sem er í rými. Oft er bakgrunns- og erilshávaði svo mikill að rödd hins fullorðna nær ekki að yfirgnæfa hávaðann.
Börn sem eru í kennslustofum með langan ómtíma standa sig verr en börn í kennslustofum með stuttan ómtíma, til að mynda eiga þau erfiðara með hljóðkerfisgreiningu, þ.e. að þekkja viss hljóð og vinna úr þeim. Einnig hefur komið í ljós að börn í stofu með langan ómtíma kvarta meira undan hávaða í stofunni og eru neikvæðari gagnvart samnemendum sínum og kennurum en þau sem eru í stofu með stuttan (eða miðlungs) ómtíma. Enn fremur virðist öll tengslamyndun við jafnaldra og kennara erfiðari.
Eins og fram hefur komið getur hávaði og slök hljóðvist haft skaðleg áhrif bæði á heyrn og aðra lífeðlisfræðilega, vitsmunalega og atferlislega þætti hjá börnum. Áhrif á heyrn geta komið fram sem minnkuð eða skert heyrn, minna þol fyrir hávaða eða suð fyrir eyrum. Hávaði getur einnig haft neikvæð áhrif á náms- og tungumálagetu barns, drifkraft og einbeitingu, auk þess að minnisgeta getur minnkað sem og hæfni til að takast á við flókin verkefni. Hávaði getur haft hamlandi áhrif á nám og heyrnarskynjun. Börn geta átt erfitt með að heyra mun á talhljóðum þannig að merking orðs næst ekki sem hefur um leið neikvæð áhrif á mál- og lesskilning.
Hávaði getur vakið upp streituviðbrögð hjá börnum sem m.a. koma fram sem aukinn hjartsláttur og hormónaviðbragð, auk þess sem hávaði getur truflað svefnmynstur og hindrað þannig nauðsynlega hvíld. Óbeint getur hávaði haft neikvæð áhrif á röddina, því um leið og barn neyðist til að tala hærra til að yfirgnæfa hávaða getur það leitt til hæsi og hnúta á raddböndum.
Evrópskar rannsóknir hafa sýnt fram á að langvarandi hávaði hefur neikvæð áhrif á heilsu og frammistöðu barna. Sumum hávaðauppsprettum er ekki hægt að komast hjá, en hægt er að koma í veg fyrir eða minnka neikvæð áhrif af þeirra völdum með góðu skipulagi, hönnun og úrbótum.
Ef þig grunar að hljóðvist sé lök í kennslurými er best láta stjórnanda vita og senda ábendingu til heilbrigðiseftirlits landsvæðisins. Það á að skoða réttmæti kvörtunar og rannsaka hljóðvist ef ástæða þykir til. Einnig er mögulegt að tilkynna Vinnueftirliti ríkisins um laka hljóðvist þar sem koma má á framfæri ábendingu varðandi vinnuumhverfi, öryggi eða heilsu starfsfólks. Það er mikilvægt að vera vakandi fyrir hljóðvistinni því hún skiptir alla, bæði kennara og nemendur verulegu máli.
Hvað er hægt að gera?
Vinnuumhverfisnefnd KÍ hefur gefið út gátlista sem eiga að gefa vísbendingar um ef einhverju er ábótavant í hljóðvist rýmis og sjálfspróf fyrir kennara svo huga megi betur að raddheilsu. Listana er að finna á vef KÍ undir flipanum Kennarastarfið - Vinnuumhverfismál. Gátlistarnir ná yfir hljóðvist í kennslurými, mögulegar breytingar á/í húsgögnum og rými, leikföng eru athuguð og skipulag skólastarfsins. Rannsóknir hafa sýnt að agastjórnun skiptir gríðarmiklu máli þegar hávaði er annars vegar. Niðurstöður rannsóknar sem gerð var árið 2018-19 leiddu í ljós að hávaði var minni í opnu kennslurými hvar reynslumiklir kennarar sem höfðu góð tök á agastjórnun kenndu en í hefðbundnum skólastofum þar sem reynsluminni einstaklingar kenndu. Enn fremur segja fræðin að agastjórnun skipti mestu máli fyrir nám og kennslu í hverju kennslurými. Góð stjórn á nemendum og skýrar og hnitmiðaðar reglur eru forsenda þess að kennari geti kennt á sem farsælastan hátt. Nemendum líður líka betur þegar þeir vita til hvers er ætlast af þeim og um leið má koma í veg fyrir þann streituvald sem hávaði er.
Stefna skóla og raddmenning er eitthvað sem stjórnendur skóla þurfa að gæta að. Ef viðhöfð er raddverndarstefna þar sem starfsfólki eru kynntar afleiðingar hávaða og rangrar raddbeitingar og raddmenning skólans er rædd reglulega verða allir meðvitaðri um áhrif hávaða á streitu og líðan. Einnig er mikilvægt hverjum kennara að kynna sér upplýsingar um raddvernd og raddbeitingu og skoða hvernig þeir beita sér. Slæma raddsiði má bæta með einföldum hætti og meta má ástand raddarinnar með tveimur sjálfsprófum sem finna má á vef KÍ.
Mjög mikilvægt er að huga að hljóðvist í kennslurými vegna áhrifa þess á námsgetu og líðan nemenda. Ætla má að það sé stjórnendum og kennurum keppikefli að hafa hljóðvist í kennslurýmum eins góða og kostur er því áhrif þess á streitu, námsgetu og hljóðgreiningu nemenda eru veruleg.
Heimildir:
Hafdís Dögg Guðmundsdóttir. 2009. Skólavarðan. Hljóðvist í leik- og grunnskólum. 7.tbl. 9. árg. sótt: 15.5.2020 af https://timarit.is/page/6663853?iabr=on#page/n9/mode/2up
Helga Kolbeinsdóttir. 2019. Álag á kennara vegna hávaða. Upplifun kennara af álagi og raddheilsu í tengslum við hávaða í ólíkum kennslurýmum. Kennaradeild Hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Sótt 15.5.2020 af https://skemman.is/bitstream/1946/34525/1/Helga_Kolbeinsd_M.Ed_%c3%81lag_%c3%a1_kennara.pdf
Mannvirkjastofnun. 2018, 28.6. Leiðbeiningar með byggingareglugerð nr.112/2012. sótt: 15.5.2020 af http://www.mannvirkjastofnun.is/library/Skrar/Byggingarsvid/Leidbeiningarblod/11.1.2%20Kr%C3%B6fur-1.1.pdf
Staðlaráð Íslands. 2016. ÍST 45 Hljóðvist - Flokkun íbúðar- og atvinnu-húsnæðis. Sótt 15.5.2020 af https://www.stadlar.is/verslun/p-50886-frst-45.aspx
Umhverfisstofnun. 2012. Hljóðvistarkröfur í umhverfi barna, leiðbeiningar. Sótt: 15.5.2012 af https://www.ust.is/library/Skrar/Einstaklingar/Heilbrigdi-og-orygg/Havadi/Lei%C3%B0beiningar_Hlj%C3%B3%C3%B0vistarkr%C3%B6fur%20%C3%AD%20umhverfi%20barna_2012.pdf
Úrræði vegna hávaða í skólum. E.d. Sótt 5.5.2020 af https://hti.is/images/baeklingar/Urraedi-vegna-havada-i-skolum.pdf
Dr. Valdís Ingibjörg Jónsdóttir. 2014. Kennsluumhverfið, hlúum að rödd og hlustun. Útg af KÍ, Mannvirkjastofnun, Vinnueftirliti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Sótt 6.5.2020 af https://www.rodd.is/wordpress/wp-content/uploads/2018/11/Handbok-Kennsluumhverfid-hluum-ad-rodd-og-hlustun.pdf
Dr. Valdís Ingibjörg Jónsdóttir. 2018. Talandinn, er hann í lagi? Vísindi á mannamáli. Bókaútgáfan Hólar, Reykjavík.