Enginn vandi óviðráðanlegur þótt ekki alltaf finnist lausn

„Ef við beinum allri orkunni sem fer í viðnámið, rökræðurnar og átökin frekar í að koma saman að borðinu og skoða hvernig við getum náð árangri, þá getum við náð sameiginlegum markmiðum okkar. Þar liggur hinn sanni kraftur,“ segir Dr. Jane Kise, ráðgjafi í leiðtogaþjálfun, þegar hún ávarpaði skólastjórnendur á námstefnu SÍ síðasta haust.
Dr. Kise kom til landsins í október til að taka þátt í Námstefnu Skólastjórafélags Íslands sem fór fram á Hilton Reykjavík Nordica. Þar hélt hún fyrirlestra um heildræna stjórnun, viðnám og valdeflingu kvenna í skólastjórnum, allt út frá sérsviði hennar, kenningum um skautun (The polarity thinking framework).
Skólavarðan hitti fyrirlesarann bandaríska á hótelbarnum við ráðstefnulok og ræddi við hana um skautunarhugsun, fræðin og ferlana.
Skautunarvandinn
Skautun, eða pólarísering, hefur verið áberandi á tímum sem litast af heimsfaraldri, stríði, skrautlegum Bandaríkjaforseta og sítengingu fólks. Hún birtist í fjölmiðlum, á Alþingi, í skólum, í samskiptum milli manna – hvort sem er í raunheimi eða stafrænum.
Skoðanir og afstöður virðast skiptast í tvennt, eins og eftir þráðbeinum skýrum línum sem má út milliveginn. Annað hvort A eða B er rétt, eftir því hver er spurður. Eitt útilokar annað. Það verða til fylkingar – við og hinir. Og bendlunin er skýr; við sem höfum rétt fyrir okkur og svo hinir sem eru á villigötum. Hart mætir hörðu. Og umræðurnar um málefnin eru eftir því – óskilvirkar og óheppilegar – og stundum á kostnað framkvæmda og framþróunar.
En nú er það einfaldlega þannig að í vissum álitamálum er einfaldlega ekki um annað að ræða en að velja annað hvort/eða. Sjónarmiðin eða valkostirnir stangast á, fara ómögulega saman og ekki er í boði að velja bæði. Vandinn er óleysanlegur. Að minnsta kosti við fyrstu sýn.
Það er hér sem Kise og kenningar hennar um skautunarhugsun koma inn í dæmið með þriðja valkostinn: Að vinna með vandann. Skipta út annað hvort/eða fyrir annað hvort og eða.
Því þótt sum vandamál séu í eðli sínu þannig að engin ein lausn sé til við þeim er ávallt hægt að stýra þeim og stjórna. Þau eru viðráðanleg ef skautunarhugsun er beitt.

Dr. Jane Kise: Skautunarhugsun snýst ekki um að finna lausn, heldur að hafa stjórn á og umsjón með þessu ferli og kerfi, sem sífellt er í mótun, og leiðir til þeirrar útkomu sem sóst er eftir
Mikilvægt að þekkja vandann
Fyrst skiptir máli að læra að koma auga á þau tilvik þar sem skautun kemur við sögu. Innan skólanna gæti það til dæmis verið við langtíma- og skammtímamarkmiðasetningu skólastjórnenda, segir Kise.
Á sama tíma og það er ómögulegt að vinna að hvoru tveggja samtímis; langtíma- og skammtímamarkmiðum, eru þau háð hvort öðru. Án skammtímamarkmiða verður langtímamarkmiðum ekki náð. Án langtímamarkmiða eru skammtímamarkmiðin stefnulaus og líklegt að þau missi marks.
Eins er líklegt að skautun komi upp í þeim tilvikum þar sem reynir á að vera hluti af heild (part in whole). Kennarar þurfa bæði að vinna sjálfstætt; undirbúa kennslustundir og fara yfir próf og verkefni, og sem hluti af heild; vera meðvitaðir um hvað á sér stað í hinum kennslustofunum. „Við vitum að samvinna á milli kennara bætir námsárangur, nemendur ná betri árangri þegar kennarar vinna saman,“ segir Kise.
Það þarf hvort tveggja og þá getur skapast spenna. Sumir óttast kannski að teymisvinnutíminn verði á kostnað einstaklingsvinnutímans og auki þar með á vinnuálagið. Aðrir gætu óttast að ofuráhersla á einstaklingsvinnu þýði að góðum hugmyndum og vinnuaðferðum verði ekki deilt á milli kennslustofa og nemendur verði af bestu mögulegu kennslu.
Viska í viðnámi
Hér er ekki í boði að velja annað hvort/eða. En eins og Kise bendir á er hægt að vinna með aðstæður, svo sem með því að skoða mismunandi afstöður innan hópsins; hvaða gildi, forgangsröðun og verðmætamat eru þar að baki og hvaða ótti liggur að baki viðnámi sem kann að koma upp innan hópsins.
Með slíkri greiningu er hægt að komast til botns í því hvaða fyrirkomulag virkar best í þessum tilteknu aðstæðum og fyrir þennan tiltekna hóp og finna út hvernig best er að skipta tímanum á milli einstaklingsvinnunnar og hópvinnunnar þannig að jafnvægi náist og ótti hvorrar hliðar verði ekki að veruleika.
Varnaglar veigamiklir
Næst er svo að greina hættumerkin. Það er að segja hvað það er sem gæti gefið til kynna að jafnvægi sé ekki lengur til staðar. Að of mikil áhersla sé lögð á eitt umfram og á kostnað hins, útskýrir Kise.
Í þessu tilfelli gæti það til dæmis verið merki um að of löngum tíma sé varið í teymisvinnu ef kennarar eru farnir að vinna mikla yfirvinnu eða fara yfir verkefni og próf þegar teymisvinnan á sér stað.
Ef hættumerkin gera vart við sig er hægt að grípa inn í í tæka tíð og leiðrétta ójafnvægið.
Árangurinn innan seilingar
Með skautunarhugsun og verkfærum hennar er þannig hægt að stíga frá annað hvort/eða hugsunarhættinum og ná árangri.
Með því að koma auga á vandann og skoða ólíkar afstöður; þau gildi og þær áhyggjur sem liggja þar að baki, greina hættumerkin, fylgjast með og bregðast við eftir þörfum þannig að jafnvægi haldist, geta leiðtogar, stjórnendur og kennarar unnið með vandamálin hverju sinni og náð þeim markmiðum sem lagt er upp með, segir Jane Kise.
Aðferðina þarf svo að sérsníða hverju sinni, að hverjum og einum hóp og hverju og einu vandamáli, því allar aðstæður eru ólíkar.
„Skautunarhugsun snýst ekki um að finna lausn, heldur að hafa stjórn á og umsjón með þessu ferli og kerfi, sem sífellt er í mótun, og leiðir til þeirrar útkomu sem sóst er eftir.“
- Viðtalið við dr. Jane Kise birtist fyrst í Skólavörðunni, 2. tbl. 2022.