Engin takmörk önnur en eigið hugmyndaflug

Fréttir|8. apríl 2022

Ríkari kröfur um upplýsingatækni í námi og kennslu á nýrri námsbraut við Háskólann á Akureyri.

Háskólinn á Akureyri hefur gegnt mikilvægu hlutverki við að auðvelda nemendum aðgengi að námi, m.a. með því að bjóða upp á sveigjanlegt nám og leggja áherslu á notkun upplýsingatækni. Skólinn hefur sett sér markmið um að vera leiðandi í kennsluháttum með notkun stafrænnar tækni. Stafræn tækni er mikilvæg í nútímasamfélagi og almenn notkun upplýsingatækni fer vaxandi á flestum sviðum þess. Þetta þýðir að æ ríkari kröfur eru gerðar til skólastarfs almennt um að innleiða og nýta upplýsingatækni í námi og kennslu. Við það eykst þörf á að við skóla starfi kennarar sem hafa hæfni til að takast á við áskoranirnar sem breytingunum fylgja á faglegan og árangursríkan hátt.

Við Háskólann á Akureyri er boðið upp á spennandi námsleið í framhaldsnámi kennaradeildar. Námsleiðinni er ætlað að mæta sívaxandi þörf fyrir menntun á sviði upplýsingatækni og efla þekkingu, leikni og hæfni þátttakenda í hagnýtingu stafrænnar tækni.​

Námið er í senn hagnýtt og rannsóknartengt. Þannig miða áherslur þess að því að hvetja þátttakendur til frumkvæðis og forystu um þróunarstarf með hagnýtingu stafrænnar tækni að leiðarljósi. Viðfangsefni námsleiðarinnar geta hvort heldur sem er tengst starfsvettvangi eða akademískum vettvangi. Lögð er áhersla á að beita kennsluháttum þar sem stafræn tækni er nýtt þannig að þátttakendum gefist tækifæri til að læra með því að nota slík verkfæri í náminu.​

Grasrótin - áhugasamir ­frumkvöðlar

Ekki var farin hefðbundin leið við að hanna og skipuleggja námsleiðina en vinnan fór af stað vorið 2014. Segja má að hugmyndin hafi komið bæði að utan og innan frá og sprottið úr hópi áhugasamra frumkvöðla sem sáu mikilvægi þess og gagnsemi að bjóða upp á nám af þessum toga, enda sívaxandi þörf fyrir menntun á sviði upplýsingatækni í öllum geirum samfélagsins.

Að hugmyndavinnunni komu kennarar úr kennaradeild HA, starfsfólk Kennslumiðstöðvar HA, sérfræðingar á Miðstöð skólaþróunar við HA, verkefnisstjóri í tölvunarfræði við HA, Símenntun HA og 3f – félag um upplýsingatækni og menntun. 3f félagasamtökin höfðu fyrr um vorið sent erindi til kennaradeildar með hvatningu um stofnun námsleiðar þar sem áhersla yrði lögð á leiðtoganám fyrir kennara á sviði upplýsingatækni í námi og kennslu. Vorið 2016 var námsleiðin komin inn í námskrá í framhaldsnámi kennaradeildar HA og hægt var að sækja um námið sem hófst um haustið sama ár.

Námið

Á námsleiðinni er boðið upp á þrjú sérsniðin námskeið. Í námskeiðinu Menntun og upplýsingatækni er fjallað um upplýsingatækni í sögulegu ljósi og hver þróunin getur orðið í nánustu framtíð. Sjónum er einnig beint að helstu rannsóknum á sviði upplýsingatækni sem tengjast menntun og hugleitt hvernig þær gagnist kennurum í starfi. Í námskeiðinu Þróun náms og kennslu og upplýsingatækni er fengist við viðfangsefni á sviði náms- og kennsluþróunar. Fjallað er um kennsluhætti og áhersla lögð á hagnýtingu upplýsingatækni til að mæta mismunandi áskorunum í skólastarfi.

Námsleiðinni er ætlað að mæta sívaxandi þörf fyrir menntun á sviði upplýsingatækni og efla þekkingu, leikni og hæfni þátttakenda í hagnýtingu stafrænnar tækni.

Í námskeiðinu Upplýsingatækni og starfsþróun til framtíðar er lögð áhersla á að nemendur læri grunnþætti forritunar og fái tækifæri til að hanna verkefni sem miða að því að þeir geti undirbúið sig sem best fyrir starfsþróun til framtíðar. Rík áhersla er lögð á að námsleiðin sé lifandi vettvangur þar sem nemendur taka þátt í að leggja línurnar í námskrá, stýra verkefnahönnun og vinna sjálfstætt að skapandi og hagnýtum viðfangsefnum. Mörg verkefnanna sem verða til í námskeiðunum fylgja nemendum út í samfélagið og nýtast fleirum.

Hvað segja nemendur um námið?

Umsjónarkennarar námskeiðanna hafa frá upphafi unnið í góðu samstarfi við nemendur að því að þróa námsleiðina og er það hluti af náminu. Hæfni nemenda til þátttöku í þróun námskeiða á námsleiðinni vex með tækifærunum sem þeir fá til áhrifa. Þátttaka í náms- og kennsluþróun hvetur m.a. til virkrar þátttöku nemenda, valdeflir þá, stuðlar að ábyrgð og hefur jákvæð áhrif á árangur og viðhorf.

Nemendur hafa lýst ánægju með að taka þátt í að skipuleggja námið og hanna viðfangsefnin sem oft eru hagnýt og tengd starfsvettvangi þegar það á við eða eins og einn þátttakandi komst að orði „ …námskeið sem er kjörið til að ná inn fólkinu sem er að vinna við þetta í skólunum“. Í náminu mynda nemendur góð tengsl sín á milli sem haldast eftir að námi lýkur þar sem eldri hópar tengjast nýjum nemendahópum, eða eins og einn þátttakandi sagði „byggja á netinu sem er að verða til hérna, tengslanetinu, þannig að þeir sem koma næst bætast við og svo koma næstu inn, skiljið þið, þannig að við erum að búa til flott tengslanet bara fyrir landið“. ​

Fyrir hverja er námið og hvernig er það skipulagt?

Námið er ætlað þeim sem vilja auka starfshæfni sína og sérþekkingu. Það gagnast öllum sem áhuga hafa á að efla menntun sína og starfshæfni á sviði upplýsingatækni, hvort heldur sem er á vettvangi leik-, grunn- eða framhaldsskóla eða annarra stofnana sem sinna fræðslu. Rík áhersla er lögð á virka nemendaþátttöku í öllum þáttum námsins.

Nemendur hafa lýst ánægju með skipulag námsins, viðfangsefnin og tengslanetið sem nemendur mynda.

Á námstímanum mæta nemendur í þrjár námslotur á hverju misseri. Í lotunum er lögð áhersla á samræður, samvinnu og viðfangsefnatengt nám. Á milli lota vinna nemendur að viðfangsefnum námsins í samvinnu við aðra nemendur og kennara námsleiðarinnar. Í lotunum er m.a. fengist við hagnýt og rannsóknartengd viðfangsefni, settir upp viðburðir, vefsíður og samræðuþing og að sjálfsögðu er tengslanetið styrkt.

Nemendur hafa lýst ánægju með skipulag námsins, viðfangsefnin og tengslanetið sem nemendur mynda, eða eins og einn nemandi komst að orði: „Ég er að taka fullt með mér út úr þessu námskeiði beint inn á gólf í skólanum hjá mér. Bæði mín eigin verkefni og ekki síst verkefni samnemenda. Það er bara stórkostlegt að fá að taka þátt í svona dýnamík og efla tengslanetið í gegnum svona námskeið.“

Það eru engin takmörk önnur en eigið hugmyndaflug þegar kemur að útfærslu viðfangsefna í náminu. Dæmi um viðfangsefni sem nemendur hafa unnið að og samfélagið notið góðs af eru m.a. netmenntabúðir um stafræna tækni í skólastarfi, veflægur upplýsingatæknihandraði, vefsíða um þjarka og forritun og þemað skapandi hugsun fyrir Vísindaskóla unga fólksins við Háskólann á Akureyri. Verkefnin sem nemendur vinna eru sprottin af áhugasviði þeirra og eru mjög fjölbreytt í útfærslu; nemandi lýsir fjölbreytni verkefna með þessum orðum: „Allir með rosalega spennandi verkefni og ólíkar nálganir t.d. í forritunarkennslu. Mikil breidd er í verkefnaskilum.“

Umsókn um námið

Hægt er að sækja um námið á vef Háskólans á Akureyri og er umsóknarfrestur til 5. júní.
Hægt er að velja námsleiðina sem hluta af námi til diplóma- eða meistaragráðu (MA, MT) en einnig er mögulegt að skrá sig í stök upplýsingatækninámskeið.

 

Greinin birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2022.