Endurtekinn upplýsingafundur í dag

Fréttir|28. október 2024

Upplýsingafundur um stöðuna í kjaramálum fer fram í dag á Teams klukkan 11.30.

Vegna eftirspurnar er boðað er til aukaupplýsingafundar með félagsfólki vegna stöðu kjaraviðræðna og verkfallsaðgerða sem hefjast í þrettán skólum í október og nóvember, hafi samningar ekki náðst.

Fundurinn, sem ætlaður er öllu félagsfólki, er á Teams, klukkan 11:30-12.20, mánudaginn 28. október.

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fer yfir stöðu mála í kjaraviðræðum KÍ við samninganefndir sveitarfélaga og ríkis.