Endurnýjun stofnanasamninga í framhaldsskólum

Formaður Félags framhaldsskólakennara óskar Fjölbrautaskólanum við Ármúla til hamingju með nýgerðan stofnanasamning.
Það er í frásögur færandi að síðastliðinn mánudag, 6. desember 2021, var fyrsti stofnanasamningurinn undirritaður þar sem samið er út frá bókun 2 í kjarasamningi sem FF og FS undirrituðu við ríkið þann 31. mars á þessu ári.
Bókun 2 hljóðar svo:
Markmið þessa samnings er m.a. að styrkja stofnanasamningskerfið í því skyni að efla samkeppnisstöðu framhaldsskóla og auka tækifæri starfsfólks til að hafa áhrif á eigin launaþróun, með því að færa launasetningu nær vettvangi og laga hana að þörfum hvers skóla fyrir sig. Þá er mikilvægt að framhaldsskólum sé gert kleift að skapa hvata til að styðja við stefnu og áherslur stjórnvalda um eflingu menntakerfisins og nýsköpun í skólastarfi.
Samningsaðilar eru sammála um að frá 1. janúar 2022 verði framhaldsskólum veittar 160 m.kr. á ársgrundvelli að meðtöldum launatengdum gjöldum til þess að auka virkni stofnanasamninga. Sérstaklega skal horft til nýliðunar, framþróunar í starfi, starfsþróunar og nýsköpunar í samræmi við þarfir hvers framhaldsskóla. Semja skal um útfærslu framlagsins í samstarfsnefndum framhaldsskóla.
Það var Fjölbrautarskólinn í Ármúla sem reið á vaðið og hefur FF nú birt þennan samning hér á vef KÍ þar sem við höldum utan um stofnanasamninga framhaldsskólanna og einnig höfum við uppfært reiknivélina okkar Launaröðun kennara í framhaldsskólum í takti við samninginn.
Í þessum tiltekna samningi eru skrifuð inn launatilefni sem hafa verið virk í launagreiðslum skólans en hafa hingað til ekki birst í stofnanasamningnum. Það þarf varla að taka fram hversu mikilvægt það er að umsamin launakjör birtist sem skýrast í öllum stofnanasamningum. Auk þessa náðust fram nýjar almennar kjarabætur og breytingar sem ekki eru sótt úr viðbótarfjármagninu úr bókun 2 en byggja á skýrum markmiðum samstarfsnefndarinnar sem sett eru fram í 3. kafla samningsins.
Kafli 7 í samningi FÁ fjallar sérstaklega um bókun 2 og ber nafnið Nýliðun, nýsköpun, framþróun í starfi og starfsþróun. Í kaflanum kemur skýrt fram að viðbótarfjármagnið gegnum bókun 2 er metið til alls 24ra launaþrepa við skólann árið 2022. Þannig voru þrep gerð að gjaldmiðli í samningaferlinu og verða það greinilega hér eftir. Í alls sex greinum er lagður grunnur að ráðstöfun þessara þrepa í takti við fyrirmæli bókunar 2. Fyrstu tvær greinarnar lúta að hækkaðri launaröðun nýliða og stuðningi við þá og næstu tvær snúa að því að launa kennurum álag vegna kennslu nýrra áfanga eða þróunarstarfs í áföngum. Síðari tvær greinarnar fjalla um umbun vegna rannsóknarverkefna, nýsköpunar í starfi eða sérstakrar starfsþróunar. Allar greinarnar fela í sér umbun í formi launaþrepa.
Án þess að ég vilji mæra samstarfsnefndina í FÁ umfram aðrar þá verð ég að lýsa ánægju með það að koma viðbótarframlaginu öllu fyrir í launaþrepum. Það verður mjög fróðlegt að sjá áhrif þessa fyrirkomulags á dagvinnulaun okkar fólks í FÁ. Einnig þykir mér ríkja gott jafnvægi milli þess að tryggja félagsfólki kjarabætur fyrir hluti sem nú þegar móta starf kennara við skólann og þess að hvetja fólk til endurnýjunar í starfi. Allir eru einhvern tíma nýliðar, flestir styðja einhvern tíma sérstaklega við nýliða, allir kenna af og til nýja áfanga og allir leita leiða til að endurnýja áfanga í smærri og stærri skrefum. Hér hefur skapast færi til að umbuna fyrir þessa þætti sem skapa mismikið viðbótarálag í starfi. Seinni tvær greinarnar hvetja fólk til þess að formgera nýsköpun eða endurnýjun í starfi og njóta umbunar fyrir.
Við óskum okkar fólki við FÁ til hamingju með nýjan samning og færum þeim með ánægju hrós dagsins :) Það verður auðvitað svo að þessi samningur og þeir sem næstir koma verða hafðir til hliðsjónar við samningagerðina í öðrum skólum.
Við í FF hlökkum mikið til að fá fleiri samninga í hendur og bíðum í ofvæni eftir að sjá mismunandi útfærslur á hverjum stað. Engin ein leið er réttust eða best en markmiðið er samt augljóslega að niðurstaðan hafi jákvæð áhrif á launaþróun á hverjum stað, stuðli að eflingu samstarfsnefnda og aukinni virkni stofnanasamninga.