Endurmenntunarsjóður grunnskóla hefur opnað fyrir umsóknir
Fréttir|21. mars 2014
Hlutverk Endurmenntunarsjóðs grunnskóla er að veita fé til endurmenntunar kennara og stjórnenda grunnskóla. Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir kennara og stjórnendur grunnskóla geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir. Frestur til að sækja um styrk til verkefna vegna skólaársins 2014-2015 er til og með 23. apríl 2014.
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að allt að þriðjungi ráðstöfunarfjár verði úthlutað til verkefna sem tengjast eftirfarandi áherslusviðum:
- Hagnýtt læsi og lesskilningur í öllum námsgreinum
- Þróun kennsluhátta
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar.