Endurmenntunar sjóður grunnskóla hefur opnað fyrir umsóknir

Fréttir|4. apríl 2016

Hlutverk Endurmenntunarsjóðs grunnskóla er að veita styrk til endurmenntunar félagsmanna í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ). Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir félagsmenn FG og SÍ geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, háskólar, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir. Frestur til að sækja um styrk til verkefna vegna skólaársins 2016-2017 er til og með 25. apríl 2016.

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að allt að þriðjungi ráðstöfunarfjár verði úthlutað til verkefna sem tengjast eftirfarandi áherslusviðum:

  • Þróun kennsluhátta sem stuðla að fjölbreyttum námsaðferðum í lestri/stærðfræði.
  • Kennsla nemenda af erlendum uppruna.
  • Lífsleikni.
     

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar. Ekki er tekið við viðbótargögnum og því verða allar uppl´hysingar að koma fram í umsókninni.