Endurmenntun erlendis mikilvæg

Fréttir|2. september 2014

Styrkir til þess að sækja námskeið í útlöndum skipta faggreinafélög tungumálakennara afar miklu máli. Námskeið sem haldin eru á málsvæðum erlenda tungumálsins eru öflug leið til þess að styrkja kennara í tungumálinu sem þeir kenna, auka faglega þekkingu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum Vikupósti FF eftir Kristínu Björgu Sveinsdóttur, formanns Félags þýskukennara. 

Kristín Björg segir mikilvægt að tungumálakennarar nýti sér sem flest tækifæri til endurmenntunar. „Námsferðirnar hafa í reynd verið stærsti vettvangurinn fyrir þann hugmyndabanka sem ég sæki í fyrir skipulagningu þeirrar kennslu sem ég stunda í dag,“ skrifar Kristín Björg meðal annars í grein sinni.