Elstu húsin á Flúðum fá andlitslyftingu

Orlofssjóður KÍ hefur séð félagsfólki fyrir sumarhúsum á Flúðum síðan á níunda áratug síðustu aldar. Nú er verið að gera endurbætur á tveimur af elstu húsunum.
Miklar endurbætur eru hafnar á tveimur af elstu sumarhúsum Orlofssjóðs KÍ í Ásabyggð á Flúðum. Nærfellt fjörtíu ár eru síðan Orlofssjóður festi kaup á fyrstu sumarhúsunum á þessum slóðum. Alls eru tólf hús í þessum kjarna en auk þess á OKÍ fjölda húsa í Heiðarbyggð.
Nokkur elstu húsanna hafa verið rifin og endurbyggð. Eftir standa sex hús af upphaflegu húsunum og síðastliðið vor var ákveðið að gera þau upp frá grunni í stað þess að rífa þau. Var það gert í anda sjálfbærni og nýtingar.
Linda Björk Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Orlofssjóðs KÍ, segir húsin sem um ræðir vera númer 38 og 39. „Við fengum hönnunarstofuna Fröken Fix til liðs við okkur og þau komu fram með afar hlýlega og fallega tillögu að endurbótum," segir Linda Björk.
Húsin eru ekki ýkja stór að gólffleti, 53 fermetrar, og var því brugðið á það ráð að fækka svefnplássum en stækka um leið íverurými, þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda rúmgott rými. „Við erum afar ánægð með endurbæturnar, þetta er í raun eins og að pússa upp silfur því í grunninn eru þessi hús hlý og vinaleg. Þau máttu hins vegar muna sinn fífil fegri," segir Linda Björk.
Framkvæmdir ganga vel og eru á áætlun. Áformað er að húsin verði fullbúin 1. desember næstkomandi. „Við vonum að félagsmenn muni njóta dvalar í þessum húsum og taka breytingunum fagnandi."