Elsti núlifandi leikskólakennarinn fagnaði 100 ára afmæli

Fréttir|20. júní 2016

Lára Helga Gunnarsdóttir, heiðursfélagi í Félagi leikskólakennara og elsti núlifandi leikskólakennari landsins, fagnaði aldarafmæli 17. júní síðasliðinn.

Lára er fædd árið 1916 í Bólstaðarhlíð í Húnavatnssýslu og ólst þar upp til 16 ára aldurs. Næstu árin bjó Lára á Mælifelli i Skagafirði eða þar til hún fékk brjósthimnubólgu nítján ára gömul en það er undanfari berkla. Hún dvaldi á Kristneshæli næstu tvö árin en þegar hún hafði náð heilsu flutti hún til Reykjavíkur.

Lára ákvað árið 1949 að skrá sig til náms í Uppeldisskóla Sumargjafar. Hún var elst í árganginum, 33 ára gömul, og meira að segja eldri en skólastjórinn, Valborg Sigurðardóttir. Þar að auki var hún fráskilin tveggja barna móðir sem á þessum árum gat torveldað námsframa kvenna. Lára segir frá þessum tíma í bókinni Spor í sögu stéttar sem kom út árið 2010. Hún segir námið hafa verið strangt en um leið bæði skemmtilegt og stórgott.

Að loknu námi fór Lára að vinna á Grænuborg. Þaðan hélt hún á Suðurborg og tók svo við Brákarborg. Þaðan lá leiðin í Barónsborg þar sem Lára var forstöðukona í átta ár. Hamraborg í Hlíðahverfi var næsti viðkomustaður Láru þar sem hún gegndi starfi forstöðukonu í fjórtán ár.

Þá réði Lára sig til Dagvistar barna þar sem hún starfaði þar hún varð sjötug. Lára var í hópi þeirra sem komu Fóstrufélaginu á legg í upphafi. „Þarna voru afbragðskonur sem unnu að því að stofna félagið. Stéttin var dugleg og framsækin og félagið alltaf líflegt og áhugasamt. Þarna var töluvert af hugsjónafólki sem byggði þetta nýja félag upp því það hafði skýra framtíðarsýn,“ segir Lára í bókinni Spor í sögu stéttar.

Framtíðarsýn stofnenda Fóstrufélagsins var að fá starf leikskólakennara viðurkennt sem þarft og mikilvægt starf. Á sínum langa ferli vann Lára mikið fyrir Félag leikskólakennara og var formaður þess árin 1953-1955 en eftir það beitti hún sér mjög í kjaramálum félagsins. „Ég barðist mjög fyrir starfskjörunum alla tíð og þau bötnuðu alltaf,“ segir Lára í fyrrnefndri bók. Að sögn Láru hafa leikskólakennarar alltaf verið seigir í launabaráttunni og stéttin hafi verið dugleg að sækja sitt, „enda sé ekki hægt að lifa á hugsjónunum einum saman“.

Kennarasamband Íslands óskar Láru heilla á þessum merkum tímamótum.

 

 

Fjallað var um aldarafmæli Láru í Morgunblaðinu 17. júní 2016.
Spor í sögu stéttar var gefin út í tilefni 60 ára afmælis Félags leikskólakennara árið 2010.
Höfundar eru Andrés Ingi Jónsson og Oddný Helgasdóttir. Útgefandi er Skrudda.