Ellefu umsóknir bárust í Rannsóknasjóð KÍ

Markmið Rannsóknasjóðsins er að veita styrki sem styðja við skólastarf og dagleg störf félagsmanna í KÍ.
Alls bárust ellefu gildar umsóknir í Rannsóknasjóð Kennarasambands Íslands fyrir skólaárið 2026-2027. Umsóknarfrestur rann út 1. febrúar síðastiðinn.
Árleg heildarstyrkupphæð er sjö milljónir króna og hámarksstyrkur á hvert verkefni er 1,5 milljón króna. Samantekin upphæð umsóknanna ellefu, sem nú eru til umfjöllunar er 14.039.000 krónur.
Sjóðsstjórn fer nú yfir umsóknirnar og áformað er að níunda úthlutun úr Rannsóknasjóðnum fari fram undir lok mánaðarins.
Á þriðja tug verkefna frá upphafi
Rúmlega þrjátíu rannsóknarverkefni hafa hlotið styrk úr Rannsóknasjóði KÍ frá stofnun hans árið 2019. Markmið sjóðsins er að veita styrki til rannsókna sem styðja við skólastarf og dagleg störf félagsmanna KÍ, þróa nýja fræðiþekkingu sem félagsmenn hafa þörf fyrir og stuðla að auknum gæðum í skólastarfi.