Ekki opnað fyrir hópstyrki...

Fréttir|30. janúar 2014

Ekki verður opnað fyrir hópstyrki eða skólaheimsóknir/kynnisferðir einstaklinga til útlanda að svo stöddu. Á fundi stjórnar Verkefna- og námsstyrkjasjóðs FG og SÍ 23. janúar 2014 var farið yfir stöðu sjóðsins og er ljóst að ekki er forsenda til þess að opna fyrir hópstyrki úr C hluta. Þessi ákvörðun gildir til janúar 2015, en þá verður þetta endurskoðað. Það sama á við um skólaheimsóknir/kynnisferðir einstaklinga til útlanda úr A hluta.