Ekki nóg að hafa áhrif, við þurfum að hafa erindi

Fréttir|23. október 2020

Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ, og Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ, hafa nú gegnt embætti í rúmlega tvö ár og kjörtímabil þeirra því rúmlega hálfnað. Þau tóku formlega við stjórnartaumunum á þingi KÍ sem fram fór í apríl 2018 og verður ekki annað sagt en það sem af er hafi verið afskaplega viðburðaríkur tími.

Ritstjórar Skólavörðunnar settust niður með Ragnari Þór og Önnu Maríu á dögunum. Þau voru fyrst beðin að líta aðeins um öxl og segja frá því sem þeim finnst standa upp úr frá því þau tóku við.

Ragnar Þór: Það er ekki að sjá að við séum á miðju kjörtímabili því það hafa orðið svo margháttaðar breytingar og við höfum umbylt svo mörgu í starfseminni. Skrifstofa KÍ var flutt í nýtt húsnæði í febrúar á þessu ári og mánuðina þar á undan var gerð tæknibylting á skrifstofunni. Það var mikið lán að við tókum þessi skref og einhentum okkur í að breyta því sem við töldum að þyrfti að breyta.

Anna María: Mér fannst við Ragnar koma að mjög góðu búi þegar við tókum við okkar embættum. Fráfarandi stjórn KÍ hafði unnið afar gott starf er varðar stefnumörkun og við fengum ansi magnaðan pakka til að vinna með eftir síðasta þing. Þá tek ég undir með Ragnari að flutningur starfseminnar í ný húsakynni var af hinu góða og almennt hefur nútímavæðing á skrifstofunni skilað meiri starfsánægju og betri starfsháttum. Það sem mér finnst persónulega standa upp úr er að hafa fengið tækifæri til að kynnast starfi á öllum skólastigum. Ég kem úr framhaldsskólanum og þekkti það skólastig best en nú blasir við mér hversu blússandi og blómstrandi starf er unnið á öllum skólastigum og í tónlistarskólum um landið allt.

Á þingi KÍ eru lagðar skýrar línur um hvernig unnið skuli að öllum málaflokkum næstu fjögur árin. Hvernig fannst ykkur að samsama ykkur hugmyndum og málum sem urðu til á síðasta þingi?

Ragnar Þór: Ég er sammála Önnu Maríu um að stefnumörkun síðasta þings KÍ hafi verið vönduð og góð. Þetta féll hins vegar ekki bara af himnum ofan, hér hafði ríkt ákveðin kreppa í menntamálum. Menntamálaráðherrar hafa verið misgóðir í áranna rás og sumir meira að segja skaðvaldar.

Anna María: Um það leyti sem við tókum við forystuhlutverkum hér hjá KÍ voru nokkur stór samstarfsverkefni í gangi eða að fara í gang. Ber þar hæst vinnu Samstarfsráðs um starfsþróun kennara og skólastjórnenda og starfshóp um Menntun fyrir alla. Verkefni sem voru að fara af stað voru til dæmis starfshópur um börn með annað móðurmál en íslensku, aðgerðir í menntamálum sem fólust meðal annars í verkefni um leiðsögn við nýliða og fjölgun kennaranema og svo vinna við Menntastefnu til 2030.

Það var frábært að finna strax á fyrstu dögum að verk­efni sem féllu að miklu leyti í skaut varaformanns voru afar áhugaverð og mikilvæg fyrir skólasamfélagið. Flest falla þessi verkefni saman við samþykktir síðasta þings KÍ en mig langar að nefna sérstaklega eitt verkefni sem mér þykir sérstaklega vænt um að við höfðum forgöngu um og það var frumkvæði KÍ að vinnu við vernd íslenskrar tungu og skólamálaþingið sem haldið var undir yfirskriftinni, Íslenska er stórmál. Fleira má nefna eins og hið yfirgripsmikla verkefni um Menntun fyrir alla og einnig annað gott viðfangsefni sem snýr að menntun barna með annað móðurmál en íslensku. Það var jákvætt að finna strax í upphafi að við vorum ekki í stjórnarandstöðu við ráðuneytið heldur var staðan sú að við gátum hafist handa við að vinna saman með fólki á hinum ýmsu stigum menntamála.

Ragnar Þór: Það er nefnilega þannig að lykilaðilar í menntakerfinu eru sammála um svo miklu fleira en þeir eru ósammála um. Menn höfðu dálítið dvalið við ágreining en það hefur einkennt síðustu misseri að við höfum séð mikinn þrótt í skólastarfinu sjálfu. Skólastarfið hefur ekki tíma til að það sé verið að leggja þránda í götu þess og að mínu viti hafa flestir aðilar komið samhentir að því að vinna með þá þætti sem við erum sammála um, má þar nefna Menntun fyrir alla, þar sem farið var hringinn um landið, haldnir fundir og efnt til samræðu við skólafólk. Áskoranirnar sem við stöndum frammi fyrir eru þess eðlis að ég held að fólk átti sig á að það gengur ekki að drepa orkunni á dreif. Við Anna María komum inn í það umhverfi og höfum hvorki lent í mikilli innri né ytri mótstöðu heldur fyrst og fremst í straumi fólks sem vill láta verkin tala.


Anna María: Það er af fleiru af taka þegar kemur að skólamálum og aðkomu KÍ. Fyrir þremur árum var ljóst að það þyrfti ekkert minna en stóraðgerðir til að koma í veg fyrir að kennarastéttin hreinlega hyrfi ekki. Staðan var sú að það vantaði minnst 1.700 nýja kennara fyrir árið 2030 og þá var ekkert annað að gera en sameinast í því að breyta þessu. Þetta verkefni hefur haft marga anga, svo sem að fjölga kennaranemum auðvitað, bjóða launað starfsnám og leiðsögn við nýliða. Svo hefur ný námsleið verið sett í gang, MT-gráða, sem nýtur þegar mikilla vinsælda og er til þess að fallin að fjölga kennurum svo um munar. Svo erum við alltaf með skólastefnuna í bakpokanum en hún ber yfirskriftina Menntun er mannréttindi. Þá má nefna vinnu við ný lög um hæfni og menntun kennara, leyfisbréfamálið svokallaða, en það reyndi verulega á að vinna okkur í gegnum það mál.


Skrum hefur ekkert vægi

Kennarasambandið er í senn stéttarfélag og fagfélag. Teljið þið að rödd KÍ sé sterk á báðum sviðum?

Ragnar Þór: Rödd KÍ er mjög sterk, það er engin spurning. Ég hef stundum haft á orði að það sé ekki nóg að Kennarasambandið hafi áhrif heldur verðum við að hafa erindi. Það er einfaldlega þannig að með skólastefnunni sem við vinnum eftir, en kannski fyrst og síðast með fagmennskunni sem einkennir allt skólastarf hér á landi, þá hefur Kennarasambandið lengi vel haft mikið erindi. Þeir ráðamenn sem ákveða að taka mark á því sem sagt er innan menntakerfisins taka betri og upplýstari ákvarðanir. Í þeim tilfellum þar sem skort hefur á þetta samstarf hefur farið illa, þar á ég við að þegar menntayfirvöld eða aðrir ætla að keyra mál áfram án þess að endurspegla þau í hinum stóra hópi kennara þá gera þeir mistökin. Á meðan menntayfirvöld treysta fagfólkinu sínu og leyfa því að hafa raunveruleg áhrif á skólastarf þá átta þau sig fljótt á að þannig næst mestur og bestur árangur.

Anna María: Kennarasambandið er vissulega bæði fagfélag og stéttarfélag. Ég tel að styrkur kjaralega vinkilsins helgist af því hvernig við stöndum okkur í hinum faglegu þáttum. Ef við erum ekki reiðubúin að taka faglega ábyrgð á okkar verkum þá komumst við ekki áfram í baráttunni fyrir bættum kjörum.

Á meðan menntayfirvöld treysta fagfólkinu sínu og leyfa því að hafa raunveruleg áhrif á skólastarf þá átta þau sig fljótt á að þannig næst mestur og bestur árangur.

Ímynd kennarastéttarinnar hefur oft verið til umræðu og talað um að það þurfi að lyfta henni. Hver er ykkar skoðun á því?

Ragnar Þór: Þegar fólki verður tíðrætt um ímynd stétta þá tel ég það stundum vera hættumerki. Ég held að sjálfsmynd stéttar skipti miklu meira máli. Við verðum að átta okkur á því að margt hefur verið gert á síðustu árum sem er metnaðarfullt fyrir hönd kennarastéttarinnar og skólastarfs almennt. Til dæmis hefur verið fest í lög að til að geta sinnt starfi kennara í breyttum heimi þarf meistaragráðu úr háskóla. Það eru ekkert rosalega mörg ár síðan þrasað var um hvort það þyrfti yfirhöfuð einhverja háskólamenntun til að vinna við kennslu. Sjálfsmynd okkar byggist á faglegum styrk okkar og viðhorfi okkar sjálfra til hlutverks okkar. Sú sjálfsmynd þarf að vera grundvöllur ímyndarinnar og við getum ekki búið til ímynd sem er ekki í tengslum við sjálfsmyndina. Ímyndarvinna sem ekki er sönn í veruleikanum er bara skrum. Það kann að vera að slíkt virki á einhverja þætti atvinnulífs og stjórnmála en í menntakerfinu hefur skrum ekkert vægi.

Sjálfsmynd okkar byggist á faglegum styrk okkar og viðhorfi okkar sjálfra til hlutverks okkar. Sú sjálfsmynd þarf að vera grundvöllur ímyndarinnar og við getum ekki búið til ímynd sem er ekki í tengslum við sjálfsmyndina.

Ragnar Þór kom beint úr kennslu í starf formanns KÍ, Anna María hafði starfað fyrir Félag framhaldsskólakennara samhliða kennslu. Hvað hefur komið ykkur mest á óvart í núverandi starfi?

Anna María: Það kom mér svolítið á óvart hversu fjölbreytt og erilsamt starf varaformanns er. Það eru forréttindi að fá að vinna að skólamálum, bæði inn á við og út á við. Varaformaður leiðir skólamálaráð KÍ þar sem sitja formenn skólamálanefnda aðildarfélaganna, öflugt fólk sem hefur metnað og dug til að koma málum áfram. Þetta er í alla staði mjög gefandi starf.

Þá hefur erlenda samstarfið verið afar lærdómsríkt og ánægjulegt að sjá hve mikill samhljómur er meðal Norðurlandaþjóðanna, þótt við séum ekki með allt eins. Við fáum mikið út úr þessu samstarfi þótt kannski megi segja að við séum svolítið smækkuð mynd af því sem kennarasamtökin á hinum Norðurlöndunum eru að gera; þau búa flest að því að hafa mikinn mannafla og stórar skrifstofur í hverjum málaflokki. Það vinna til dæmis 20 manns á skrifstofu trúnaðarmanna í Svíþjóð.

Ragnar Þór: Það hefur komið mér ánægjulega á óvart hversu mikið af mínu daglega starfi snýst um hluti sem skipta verulegu máli. Fyrir fram hefði ég ekki reiknað með að fá tækifæri til að beita mér með jafnvirkum hætti að þeim málaflokkum sem voru ástæða þess að ég bauð mig fram í embættið. Þar vil ég nefna það að fá að vera þátttakandi og hafa raunveruleg áhrif á stefnumótun í menntamálum og um leið halda á lofti þeim sjónarmiðum sem ég veit að eiga samhljóm í kennarastétt en hafa kannski ekki alltaf náð inn á stóra sviðið. Þá kom mér líka á óvart hversu mikinn meðbyr ég hef fengið í starfinu, og á ég þá bæði við innri og ytri aðstæður. Það hefur verið ánægjulegt að kynnast öllu því frábæra starfsfólki sem starfar á skrifstofu KÍ, þetta er fólk sem býr yfir sömu orku, metnaði og dugnaði og einkennir kennara um allt land. Starfið hefur því komið skemmtilega á óvart, hlutirnir gerast hratt en því er ég vanur úr skólanum.

Eigum að læra af reynslu annarra

Talið hefur nú borist að erlendu samstarfi. Anna María og Ragnar Þór eiga bæði sæti í stjórn Norrænu kennarasamtakanna (NLS). Anna María hefur líka unnið á vettvangi Evrópu og situr í stjórn Evrópsku kennarasamtakanna (ETUCE). Þá á KÍ aðild að Alþjóðasamtökum kennara (Education International) sem eru þau stærstu í heimi, með rúmlega 30 milljón kennara innanborðs.

Ragnar Þór: Það er ekkert rótfastara í starfi íslenskra kennarasamtaka en erlent samstarf. Kennarar hér á landi voru ekki fyrr farnir að bindast samtökum en þeir hófu samtal og samráð við hin Norðurlöndin. Hin norræna menntahugsjón er stórmerkilegt fyrirbæri á alþjóðavísu og Norðurlöndin eru umsvifameiri í alþjóðasamtökum kennara en mannfjöldi þessara þjóða segir til um. Þetta er hugmyndafræði sem á sér sterkan hljómgrunn víða í heiminum sem er gríðarlega mikilvægt, ekki síst nú þegar við höfum verið að hrinda af okkur svokallaðri umbótaplágu í menntamálum, plágu sem hefur einkennst af kaldrifjuðum viðskiptahugmyndum um menntakerfið. Á sama tíma hafa ráðherrar og ráðamenn á Norðurlöndunum haft með sér virkt samráð og í raun hefur ekki áður verið jafn mikilvægt að kennarasamtökin á Norðurlöndunum standi saman sem ein heild því þannig getum við beitt okkur markvisst að þeim umbótamálum sem uppi eru á hverjum tíma.

Við erum í víðara samráði á hinum evrópska vettvangi og þá hefur aukist að aðildarfélög innan KÍ séu í samstarfi við Vesturheim; Kanada og Bandaríkin. Við búum í miklu opnari heimi en áður og hugmyndir geta breiðst út miklu hraðar en fólk kannski óraði fyrir. Þá skiptir máli í hvers konar landslagi við lendum í og að góðu hugmyndirnar verði ofan á gagnvart hinum slæmu.

Anna María: Hin Norðurlöndin eru oft að takast á við nýjar áskoranir á undan okkur hérlendis. Dæmi um það er menntun barna af erlendum uppruna en þar má segja að samstarf við hin Norðurlöndin hafi stytt okkur leið við að takast á þau verkefni og vandamál sem fylgja þessum málaflokki.

Evrópusamstarfið hefur verið nefnt og óhætt að segja að sá vettvangur er einnig mikilvægur. Við mætum til leiks með fulltrúum annarra kennarasamtaka á Norðurlöndum. Við búum til dæmis yfir því að eiga sterkari hefð þegar kemur að jafnréttismálum og rekstri opinberra skóla og höfum því margt fram að færa í þeim efnum. Það er lærdómsríkt að sitja í stjórn ETUCE og til dæmis hefur stefnumörkun samtakanna vegna COVID-19 verið afar vönduð. Þannig fáum við innlit í hluti sem aðrir hafa skoðað og getum verið betur undirbúin undir það sem koma skal.

Samstarf Norðurlandanna er kemur að hinu faglega er mikið og gjöfult. En hvað með kjaramálin, kjarabaráttuna? Getum við lært eitthvað af öðrum?

Ragnar Þór: Eitt og annað þarf að breytast í íslensku samfélagi, svo sem það að við megum sýna meiri auðmýkt þegar kemur að reynslu annarra þjóða. Það á ekki að vera lífsspursmál að við prófum öll mistök á okkur sjálfum því þegar þjóðir hafa fundið leiðir til að takast á við áskoranir þá er okkur óhætt að taka mark á því. Þetta þykir mér eiga við bæði faglegt starf skólanna og kjaramálin. Við höfum hér á landi verið föst í vítahring höfrungahlaups og vantrausts sem hefur leitt af sér þá staðreynd að fólk, einkum og sér í lagi kennarar, búa við algjörlega afskræmda launaþróun miðað við alla aðra. Oft gerist lítið í okkar kjaramálum svo árum skiptir og þá safnast upp spenna sem á endanum brýst út í einhvers konar átökum og erfiðleikum sem jafnvel getur haft í för með sér mikinn skaða. Verkfall grunnskólakennara árið 2004 er dæmi um átök sem ollu miklum skaða í skólakerfinu. Kjaramál opinberra starfsmanna á Íslandi eru lík landslaginu að því leyti að það verða jarðskjálftar og gos með reglulegu millibili. Þetta á ekki við almenna markaðinn hér, þar sem launaþróun virkar ekki svona og heldur ekki í öðrum löndum; vinnubrögð af þessu tagi tíðkast ekki þar.

Allur vanþroski og ranglæti í íslensku samfélagi bitnar með einum eða öðrum hætti á menntastéttunum, þær eru skurðpunktur vandamálanna. Þetta verður aldrei leyst með einni lokaorrustu heldur með vandaðri vinnubrögðum og virðingu fyrir starfi fólks. Við höfum leitað til hinna Norðurlandanna að fyrirmyndum en þar eru vinnubrögð frábrugðin okkar. Þar hafa sveitarfélög, ríki og kennarasamtök komið sér saman um að bæta hlutfallslega kjör kennara til þess að mæta þeim áskorunum sem þau standa frammi fyrir, en þær eru nákvæmlega sama eðlis hér. Þessi vinnubrögð þyrftu að tíðkast hér á landi.

Eitt af því sem hefur einkennt okkar tíma hjá KÍ, og um leið verið áskorun, er að órói á vinnumarkaði hefur sjaldan verið meiri. Ólga hefur verið ríkjandi og við sjáum það nú að þótt nýbúið sé að gera kjarasamninga við þrjú af okkar aðildarfélögum þá eru tvö með lausa samninga og tvö með samning sem losnar um áramót. Út úr þessum vítahring þurfum við að brjótast og það mun ekki takast nema með breyttum vinnubrögðum.


Eruð þið bjartsýn á það takist að breyta vinnubrögðum eins og nefnt var hér að framan?

Anna María: Það hefur gætt ákveðins vanmats á störfum kennara en mér finnst að þetta sé að breytast; að bæði stjórnvöld og almenningur séu farin að gera sér grein fyrir hversu mikilvægt það er að hafa gott menntakerfi, kerfi sem virkar vel. Menntakerfið er mikilvæg grunnstoð í velferðarsamfélaginu og ef eitthvað gott kemur út úr COVID-19 þá er það að við höfum tekist á við gríðarlegar áskoranir á þessu ári. Það hefur runnið upp fyrir þjóðinni að skólastarf skiptir miklu máli og er í raun einn mikilvægasti hlekkurinn í velferð barna og unglinga. Skólagangan er eitt besta jöfnunartæki samfélagins og öll börn eiga rétt til fyrsta flokks skólagöngu.

Það hefur runnið upp fyrir þjóðinni að skólastarf skiptir miklu máli og er í raun einn mikilvægasti hlekkurinn í velferð barna og unglinga.

Ragnar Þór: Það er ástæða til hóflegrar bjartsýni ef horft er til þess að við sjáum vísa að ákveðnu samstarfi, til dæmis er kemur að jöfnun launa milli markaða – þar sem taka á á kerfislægum, ranglátum launamun á milli hins almenna markaðar og hins opinbera. Upplýsingagjöf hefur verið bætt og nægir að nefna starfandi kjaratölfræðinefnd sem nýlega sendi frá sér skýrslu.

Menntakerfið stóðst álagið

Kennarasambandið flutti úr hinu sögufræga Kennarahúsi snemma árs og mörgu í starfsháttum var breytt í leiðinni. Síðan brast á með heimsfaraldri COVID-19. Hvaða áhrif hafði þetta á starfsemina?

Ragnar Þór: Við höfðum nútímavætt okkar vinnubrögð fyrir flutningana af Laufásvegi yfir í Borgartún. Það kom okkur sjálfum svolítið á óvart hversu vel við vorum í stakk búin til að takast á við COVID-19 og á sama tíma rann okkur kalt vatn milli skinns og hörunds við tilhugsunina um hvernig starfseminni hefði verið haldið úti ef við hefðum ekki tekið þessi mikilvægu skref í tæknivæðingu. Skrifstofan hefði hæglega getað lamast en af því varð ekki og án vandræða gátum við skipt vinnustaðnum upp sem endaði svo með fjarvinnu allra í nokkrar vikur á vordögum.

Það mæddi mikið á skólakerfinu þegar fyrsta bylgja COVID-19 óð yfir landið. Hvernig sneri þetta að forystu KÍ?

Ragnar Þór: Það kom mér á óvart hversu mörgum kom á óvart hvernig skólafólk tæklaði COVID. Skólafólk er vant að takast á við áskoranir, erfiðleika og kreppu – og vill bara vinna sín verk. Þess vegna settu kennarar og skólastjórnendur undir sig hausinn og gengu til verka. Því miður höfðu ekki allir aðgang að nauðsynlegum tækjabúnaði og bjuggu ekki yfir reynslu og kunnáttu sem þurfti til – þannig varð þetta nýja ástand þeim mikil áskorun og olli auðvitað miklu álagi.

Hvaða hlutverki gegndi KÍ í þessu öllu saman?

Anna María: Við einsettum okkur strax á fyrstu dögum samkomutakmarkana að vera til staðar fyrir kennara og skólastjórnendur um land allt. Forysta Kennarasambandsins hélt fjarfundi á hverjum morgni svo vikum skipti og þannig gátu formenn aðildarfélaganna skipst á upplýsingum. Þá var strax sett í gang vinna við að svara þeim fjölmörgu og oft flóknu spurningum sem bárust frá félagsmönnum. Við gerðum allt sem í okkar valdi stóð til að svara þessum spurningum og settum upp sérstakt svæði á vef KÍ til að auðvelda félagsmönnum að kynna sér þessi mál.

Við komumst fljótt að því að verkefnin og vandamálin voru mismunandi eftir skólastigum. Formenn aðildarfélaganna unnu þétt með okkur Ragnari og starfsfólki KÍ og við lærðum hvert af öðru í þessu óvenjulega og erfiða ferli. Formennirnir reyndust afar öflugur og samhentur hópur á erfiðum tímum.

Ragnar Þór: Hvað varðar Kennarasambandið þá skipti mestu máli að sjá til þess að þeir sem tóku ákvarðanir á þessum tíma væru vel upplýstir. Ferill ákvarðana hefur aldrei verið skýrari, sóttvarnalæknir leggur fram tillögur sem ráðherra heilbrigðismála kemur til framkvæmda. Við þurftum að beita býsna hörðu við að tryggja að þeir sem tækju ákvarðanir væru upplýstir um raunveruleikann í skólunum en byggðu ekki ákvarðanir sínar á hlutum sem gætu ekki gengið upp.

Fyrstu viðbrögð yfirvalda við COVID-19 voru ákveðin afneitun gagnvart fjölbreytileika og erfiðleikum sem geta fylgt því að reka skóla. Fólk taldi að það væri bara ekkert mál að flytja skólastarf yfir á netið og viðhafa tveggja metra nándarreglu milli barna í leikskólum. Stjórn KÍ stóð saman í þessu öllu og þurfti oftsinnis að beita sér af hörku. Við fórum síðan í markvisst og mikið samstarf með menntayfirvöldum til að tryggja að ákvarðanir byggðu á raunsærri mynd og það er ekki vafi á því í mínum huga að þetta samstarf skilaði sér í betri ákvörðunum. Menntamálaráðherra var ákveðin lykilmanneskja í þessu öllu. Staðan var tekin daglega langt fram eftir vori og ég fullyrði að ekkert kerfi í samfélaginu hafi staðið sig betur en menntakerfið. Það skilaði sér í því að röskun á lífi barna og ungmenna var hvergi eins lítil og hér á landi – og var hún þó ærin.

Anna María: Þá er vert að geta þess að við buðum félagsmönnum sem upplifðu óöryggi, álag og streitu vegna COVID-19 að sækja sér sálfræðiþjónustu. Þetta gerðum við í samstarfi við menntamálaráðuneytið og báru félagsmenn engan kostnað af.
Skólastarf verður örugglega aldrei eins og það var fyrir COVID-19 og margt sem maður hefði talið óframkvæmanlegt fyrir faraldurinn reyndist allt í einu gerlegt. Við kynntumst þarna nýjum veruleika sem við byggjum á til framtíðar.

Skólastarf verður örugglega aldrei eins og það var fyrir COVID-19 og margt sem maður hefði talið óframkvæmanlegt fyrir faraldurinn reyndist allt í einu gerlegt.

Ragnar Þór: Lærdómurinn af COVID-19 hefur verið margvíslegur. Það sem kannski gekk verst var þegar fólk reyndi að viðhalda hinum venjulega veruleika og færa hann einhvern veginn yfir á netið. Í þeim tilfellum varð ekki sú gerjun sem þurfti til. Hins vegar má segja að styrkleikarnir sem komu í ljós hafi falið í sér lykla að möguleikum til skólaþróunar, sem sums staðar voru til staðar áður. Skólaþróun heldur áfram og COVID-19 er ekki upphafs-, vendi- eða lokapunktur í þeim efnum.

Mikilvægt að fá tækifæri til að dýpka sig í starfi

Starfsþróun og endurmenntun eru málaflokkur sem KÍ hefur lengi haft á sinni stefnuskrá. Hvar stöndum við í þeim efnum?

Anna María: Starfsþróun þarf að vera hluti af starfi kennarans á hverjum tíma. Það er gríðarlega mikilvægt að kennarar fái tækifæri til að dýpka sig í starfi og bæta við sig þekkingu um þau viðfangsefni sem blasa við, á þeim tíma sem þau koma upp.

Stundum er því haldið fram að skólakerfið hafi lítið breyst síðustu 100 árin en það er fjarri sanni. Börn eru til dæmis þrisvar sinnum lengur í skóla en fyrir sextíu árum. Almenn skólaganga byrjar oftast við tveggja ára aldur og endar nær tvítugu. Við hljótum að vera sammála um að öll börn þurfi á því að halda að fá tækifæri til menntunar, tækifæri sem henta þeim og að sama skapi þurfa kennararnir okkar að fá tækifæri til að þróa sig í starfi, alla starfsævina. Þá þarf að útfæra stoðkerfi sem styður við starfsþróun kennara, aðstæður og möguleika skóla til að hafa með höndum starfsþróun á vinnustað og við þátttöku háskóla í starfsþróun á vettvangi. Þá bind ég vonir við hið tiltölulega nýskipaða Kennararáð en því er meðal annars ætlað að veita ráðgjöf þegar kemur að starfsþróun kennara og skólastjórnenda – og um leið fylgjast grannt með því sem er að gerast í menntamálum úti í heimi.

Ragnar Þór: Ég tek undir með Önnu Maríu um að kennarastarfið hefur mikið breyst, á sama hátt og lífið hefur breyst. Því er ekki lengur svo farið að fólk mennti sig í einhverjum rosaspretti 20 prósent ævinnar og búi svo að því að nestið sé nóg til framtíðar. Samfélagið er þannig að við lifum lengur en áður og líkurnar á að fólk fáist við nákvæmlega sömu hluti alla ævina eru hverfandi. Þú þarft stöðugt að endurskapa sjálfan þig og læra nýja hluti og starfsþróun nú á tímum er að minnsta kosti jafn mikilvæg fyrir kennarastarfið og öflug grunnmenntun.

Fram undan er vetur óvissu þegar kemur að COVID-19 og áhrifum þess á skólastarf og samfélagið allt. KÍ hefur boðað til aukaþings, sem ber að halda á þessu ári, og verður það rafrænt. Á þinginu verður fjallað um skipulag KÍ.

Ragnar Þór: Já, við höfum boðað til aukaþings í lok nóvember. Þar verða teknar mikilvægar ákvarðanir um starfsemi Kennarasambandsins og í framhaldinu verður farið að undirbúa breytingar sem hafa verið í farvatninu um hríð og byggja meðal annars á úttektum sem hafa verið gerðar á starfseminni. Það er ljóst að Kennarasambandið þarf að þróast, rétt eins og skólakerfið.

Anna María: Við erum stödd úti í miðri á og verkefnin eru mörg og stór. Við höfum haldið vel á spöðum í stórum málaflokkum og unnið okkur í gegnum ákvarðanir síðasta þings. Það munum við gera áfram hvað sem framtíðin ber í skauti sér.

 

Viðtalið birtist í Skólavörðunni haustið 2020.