Ekkert breytist án þrýstings
Fréttir|31. mars 2015
Alþjóðasamtök kennara (Education International) safna þessa dagana saman undirskriftum kennara til að þrýsta á ráðamenn að tryggja að öll börn geti gengið í skóla. Kennarasambandið hvetur kennara til að skrifa undir og taka þar með þátt í verkefninu.
Alþjóðasamtökin benda á að milljónir barna hrökklast úr skólum vegna m.a. barnaþrælkunar, stríðsátaka og almennra mismununar. Sérstök athygli er vakin á þeirri nöturlegu staðreynd að árásum á skóla og skólabörn hefur fjölgað síðustu misseri.
Hér er hægt að lesa nánar um átakið og skrifa undir bænaskjal Education International.