Eitthvað fyrir alla hjá Endurmenntun

„Þú styrkist í starfi. Þú færð verkfæri sem þú getur byrjað að nota strax í kennslu. Þú eflist við að hitta fólk sem er að vinna í sama fagi og þú.“ Svona lýsir Ingibjörg Systa Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, ávinningi þess að kennarar sæki námskeið á þeirra vegum.
Skólavarðan tók Systu, eins og hún er alltaf kölluð, tali. Systa hefur fyrst og fremst umsjón með námskeiðum í uppeldi og kennslu og heilbrigðis- og félagsmálum. „Við byggjum okkar vinnu mjög mikið á samstarfi við fagaðila á hverju sviði. Ég sjálf er kennari í grunninn þannig að mitt fagsvið er uppeldi og kennsla og svo hef ég mjög góða samvinnu við fagfélög,“ segir Systa og á þar meðal annars við aðildarfélög Kennarasambands Íslands, ásamt til dæmis fagfélögum þroskaþjálfa og náms- og starfsráðgjafa.
Víðtækt samráð um námsframboðið
Endurmenntun fær hugmyndir og tillögur að námskeiðum frá fagfélögum og meðlimum þeirra og þetta samráð gerir verkefnastjórunum kleift að sérsníða námskeiðin að kennurum og margvíslegum þörfum mismunandi kennarahópa – og fleira kemur til.
„Við verkefnastjórar í þróun námskeiða höfum fjölmargar leiðir til að þróa námskeiðaframboðið hjá okkur,“ segir Systa. Auk samráðs við fagfélögin og reglulegar kannanir sem sendar eru út til kennara, er horft til samfélagsumræðunnar hverju sinni og fylgst með fréttum og umræðum kennara og skólafólks á samfélagsmiðlum, eins og kennarasamfélaginu á Twitter. Þess utan er fylgst með því hvaða fræðslu skólarnir eru þegar að bjóða sínu starfsfólki upp á. „Við tökum mið af allskonar við að ákveða hvað við getum boðið upp á hjá okkur.“
Núna ber til dæmis mikið á eftirspurn eftir námskeiðum um félagsfærni og börn sem búa við erfiðar aðstæður, námskeiðum sem tengjast beint umræðu og þróun svokallaðra farsældarlaga mennta- og barnamálaráðuneytisins.
Ólíkt hvað hentar hverjum og einum kennara
Skólastig og skólastarf eru mismunandi og hver kennari er einstakur. Þar af leiðandi er mismunandi hvers konar endurmenntun og námsfyrirkomulag hentar hverjum og einum. „Það er misjafnt eftir því hvaða stigi kennari kennir, hvaða aldri, hvaða fög hann kennir, og hvernig hópur hans er samsettur - hvort það eru einstaklingar þar sem þurfa á einhverju sérstöku að halda,“ segir Systa. „Við erum alltaf að reyna að finna hvað hentar best fyrir hópana og við getum breytt námskeiðunum og framboðinu samkvæmt því.“
Reynt er að taka mið af sem flestu, svo sem hvaða lengd námskeiða henti, hvaða tími dags og hvaða námskeiðsfyrirkomulag virki best í hverju tilviki og hvort námskeið eigi að vera staðbundið eða fara fram á netinu. Sumir hafa þörf fyrir að mæta á námskeið, hitta kollega sína, spjalla í hléi og mynda tengslanet. Á sama tíma hefur eftirspurn eftir fjarnámskeiðum aukist. „Fjarnámskeiðin eru líka gríðarlega mikilvæg í flokki uppeldis og kennslu. Það eru leikskólar og grunnskólar á hverjum einasta stað úti um allt land.“
En hvers vegna er mikilvægt fyrir kennara að sækja sér endurmenntun? „Það er bara þannig að í þessu síkvika umhverfi sem við lifum við í dag er rosalega mikilvægt að sækja sér stöðugt fræðslu,“ segir Systa. „Þú útskrifast sem kennari eftir fimm ára nám í dag. Þú færð fullt af verkfærum, en þú finnur það mjög fljótt þegar þú ferð að starfa að það er líka ýmislegt sem þig vantar og það er ýmislegt sem breytist frá ári til árs. Og þá þarftu alltaf að sækja þér fræðslu.“

Við erum alltaf að reyna að finna hvað hentar best
Fræðsla lykilatriði í síkviku samfélagi
En hvers vegna er mikilvægt fyrir kennara að sækja sér endurmenntun? „Það er bara þannig að í þessu síkvika umhverfi sem við lifum við í dag er rosalega mikilvægt að sækja sér stöðugt fræðslu,“ segir Systa. „Þú útskrifast sem kennari eftir fimm ára nám í dag. Þú færð fullt af verkfærum, en þú finnur það mjög fljótt þegar þú ferð að starfa að það er líka ýmislegt sem þig vantar og það er ýmislegt sem breytist frá ári til árs. Og þá þarftu alltaf að sækja þér fræðslu.“
„Við erum alltaf að sækjast eftir því að verða sem best í því sem við erum að gera og þá er fræðsla lykilatriði,“ bætir hún við. Árangurinn er þessi: „Þú styrkist í starfi. Þú færð verkfæri sem þú getur byrjað að nota strax í kennslu. Þú eflist við að hitta fólk sem er að vinna í sama fagi og þú.“
Verkfæri sem strax er hægt að nýta
„Okkar styrkleikar liggja fyrst og fremst í því að við bjóðum upp á stutt og hagnýt námskeið, allt frá tveggja til tólf tíma námskeiðum,“ segir Systa. Markmiðið er að kennari geti strax nýtt og notað það sem hann lærir á námskeiðinu við kennslu.
Fimm klukkutíma svokölluð TRAS námskeið eru gott dæmi um þetta. Kennari sækir þá þriggja klukkustunda námskeið þar sem hann fær nýtt gagnlegt verkfæri í hendurnar. Hann notar svo verkfærið við kennslu í þrjár vikur og mætir að lokum á tveggja tíma námskeið þar sem hann getur deilt sinni upplifun af því að nota verkfærið, heyrt hvernig öðrum gekk og fengið endurgjöf og hagnýt ráð upp á framhaldið.
Þú ert strax að vinna með eitthvað verkfæri sem nýtist þér í vinnunni. Það er mjög mikil áhersla á það hjá okkur að þetta séu hagnýt námskeið sem nýtist strax.
Endurmenntun á tíðum hvati til frekara náms
Styttri námskeið Endurmenntunar geta svo verið kveikjan að því að kennarar sæki í lengra einingarbært nám hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. „Okkar fræðsla er þessi stutta hagnýta,“ segir Systa. „Við getum hreyft okkur hratt og mætt eftirspurninni hverju sinni og jafnvel boðið upp á hluta eða part úr námskeiði sem er þá lengra og stærra hjá Menntavísindasviði. Þá fær fólk jafnvel kveikju að því að fara í meira (einingarbært) nám hjá Menntavísindasviði, eða þá að þetta verkfæri dugir þeim.“
„Það þarf að vera hvoru tveggja,“ segir Systa. „Þegar ég var sjálf starfandi kennari hugsaði ég oft – hvaða verkfæri vantar mig akkúrat núna? Þá reyndi ég svolítið að sækja fræðslu eftir því í hverju mér fannst ég þurfa að styrkja mig á þeim tímapunkti. Þá var ég ekki að leita í eininganámskeið heldur meira í stutt námskeið sem ég vissi að ég gæti nýtt mér strax í kennslunni.“
„Við viljum líka benda á að hjá okkur eru námsbrautir sem er hægt að taka, bæði námsbrautir þar sem boðið er upp á diplómanám og stuttar námsbrautir, eins og verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun,“ segir Systa. Það er til dæmis bæði hægt að taka nám í jákvæðri sálfræði sem diplómanám eða styttri námslínu. Þá er ökukennaranám, sem hefjast á í haust, einnig í þróun í breyttri mynd og margir kennarar sem hafa sýnt því áhuga.
Endurmenntun skilar sér hiklaust út í samfélagið
Hvað er fram undan hjá Endurmenntun? Hver eru markmiðin fyrir framtíðina? „Þessi námskeið fyrir uppeldi og kennslu, þeim hefur verið að fjölga, þessi flokkur hefur verið að styrkjast undanfarin ár og við viljum stækka hann. Við höfum verið með á bilinu 15 til 20 námskeið sem tengjast uppeldi og kennslu á hverri önn, en við viljum fjölga þeim upp í 20 til 25 og við erum að halda áfram að vinna með fjarnámskeiðin hér sem annars staðar hjá okkur.“
„Framboðið okkar dekkar alls ekki alla þörfina, en það er mjög mikilvægt að kennarar láti okkur vita af efni sem þeim finnst vanta fræðslu í því við erum með tengslanet, kennara, tengsl mjög víða inn í háskólann og erlendis, og það er þá okkar að leita að góðum kennara fyrir þetta tiltekna efni sem kennarar vilja fræðslu í,“ segir Systa. „Þannig að þetta samtal á milli okkar og faghópanna er gríðarlega mikilvægt til þess að framboðið okkar sé virkilega fyrir þá sem vilja efla sig í starfi.“
Systa bendir þó á að allskonar önnur námskeið Endurmenntunar geti hentað kennurum og hún hvetur allt skólafólk til að kynna sér framboðið, sem telur hátt í tvö hundruð námskeið á hverju misseri.
„Þetta skilar sér alveg hiklaust, og eins og ég hef lagt áherslu á þá skilar það sér fyrir þig sem kennara að koma á stutt námskeið, hitta fólk sem er í sömu stöðu og þú, ræða málin og ganga út með hagnýta fræðslu, hagnýtt verkfæri sem þú getur jafnvel beitt strax á morgun í þinni vinnu sem kennari. Það er hagur allra að sækja svoleiðis.“
Greinin birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.