Eitt verkefni hlýtur styrk úr Rannsóknasjóði KÍ

Markmið Rannsóknasjóðs KÍ er að veita styrki til rannsókna sem styðja við skólastarf og dagleg störf félagsmanna KÍ. Umsóknir voru fáar í ár og aðeins eitt verkefni hlaut brautargengi.
Stjórn Rannsóknasjóðs KÍ hefur gefið út hvernig úthlutun styrkja verður háttað þetta árið. Þetta er í sjötta sinn sem sjóðurinn veitir fé til rannsókna.
Umsóknir þetta árið voru fáar eða fimm talsins. Það er mun minna en fyrir ári en þá voru þær þrettán.
Eitt verkefni hlýtur brautargengi að þessu sinni en það er rannsóknarverkefni Eyþórs Eiríkssonar, kennara í Menntaskólanum í Kópavogi. Verkefni Eyþórs ber yfirskriftina Mat á gæðum kennslu í hugsandi skólastofu – sjónarhorn kennara.
Eyþór hlýtur styrk að upphæð 630.000 krónur.
Rannsóknasjóður hefur sjö milljónir króna til umráða á ári hverju og er það von stjórnar sjóðsins að umsóknir um verkefni verði mun fleiri á næsta ári. Félagsfólk er hvatt til að kynna sér áherslur og viðmið sjóðsins.