Einu sinni var... Vörðubrot

Fréttir|27. desember 2023

Mikill styr hefur verið í umræðu um námsefni og hvort það þyki viðeigandi. Það eru ekki bara bækurnar sem hafa farið fyrir brjóstið á fólki. Vert er að nefna verk Kristjáns Guðmundssonar, Vörðubrot, frá 1970.

Verk Kristjáns var gert úr um 85 heilhveitibrauðhleifum sem raðað var upp í eins konar vörðu á Skólavörðuholtinu og vísaði í gömlu Skólavörðuna sem þar stóð. Vörðubrot vakti bæði hneykslan og reiði almennings, varpaði ljósi á átök „gamalla gilda og nýrra sjónarmiða í listum“, eins og það var orðað í Lesbók Morgunblaðsins árið 2009. Að lokum leiddi samfélagsumræðan um verkið til þess að lögreglan „fjarlægði það af vettvangi á Skólavörðuholtinu af heilbrigðisástæðum“, eins og sagði í Lesbókinni.

Það gerði verkið að sjálfsögðu aðeins alræmdara, eða eins og Kristín G. Guðnadóttir listfræðingur sagði í samtali við RÚV árið 2017: „Á sínum tíma var Vörðubrotið eitt þekktasta myndlistarverk íslenskrar myndlistarsögu vegna þess að það var fjarlægt af sýningunni. Ég held að heilhveitibrauð hafi aldrei nokkurn tímann, hvorki fyrr né síðar, verið talið eins hættulegt og þarna.“

Kristján hafði árinu áður komið inn í íslenskan myndlistarheim með hvelli, með sýningu sem hann hélt 1969 þar sem þungamiðjan var straubretti þakið óhreinindum og hænsnaskít. Þrátt fyrir að aðeins 47 manns hefðu sótt og séð sýninguna vakti hún mikla hneykslan meðal almennings. Þó keypti Listasafn Íslands engu að síður það sem eftir var af innsetningunni 1988 og setti hana aftur upp tveimur árum síðar – og þá aftur við mikið fjaðrafok.

Bera Nordal, þáverandi forstöðumaður safnsins, neyddist til að birta athugasemd í fjölmiðlum í ljósi viðbragðanna þar sem fram kom að það væri „lögum samkvæmt hlutverk safnsins að afla verka sem endurspegluðu nýja strauma og stefnur í íslenskri myndlist“ og að „þetta verk væri mikilvægur fulltrúi ákveðinna listviðhorfa og stefnu sem fram kom á sjöunda áratugnum,“ eins og útskýrt var í Lesbók Morgunblaðsins 2009. Kristján Guðmundsson skipaði sér stall meðal virt-ustu listamanna Norðurlanda og tók, árið 2009, eins og minnst er á í Lesbókinni, á móti Carnegie-verðlaununum af Margréti Danadrottningu.

Útisýningar á Skólavörðuholti 

Kristján sýndi verkið sem hluta af útisýningum skólafélags Myndlistarskólans í Reykjavík sem haldnar voru á, þá hráu, Skólavörðuholtinu á árunum 1967 til 1972. „Sýningarnar brutu blað í sýningasögu íslenskrar myndlistar, því þarna fékk almenningur tækifæri til að sjá myndlist í almenningsrými, án þess að fara inn í þar til gerða Sali,“ eins og segir í frétt RÚV um sýningarnar frá 2017, en þá voru fimmtíu ár frá fyrstu sýningunni.  

„Borgarbúar tóku virkilega eftir þessum sýningum og skiptust í tvo hópa; þeir sem voru með sýningunum og hinir sem voru á móti. En allir fóru að skoða þær,“ sagði Inga S. Ragnarsdóttir í samtali við RÚV. Nokkur verk sem sýnd voru á útisýningunum skipuðu sér sess í myndlistarsögu Íslands, eins og Flugan hans Magnúsar Tómassonar, Þvottavélin hennar Rósku og svo auðvitað Vörðubrotið hans Kristjáns Guðmundssonar. 

 

Lesa Skólavörðuna