Einu sinni var enska kennd í tölvupósti

Fjarkennsla fagnar þrjátíu ára afmæli um þessar mundir. Hugmyndin kom upp í Verkmenntaskólanum á Akureyri og þótti býsna byltingarkennd.
Fjarnám og fjarkennsla eru hversdagsleg orð í dag enda fyrirbærið vel þekkt og stundað í fjölda framhaldsskóla og háskóla hér á landi. Þá nýttist tæknin sérlega vel á tímum heimsfaraldursins og grunnskólanemendur kynntust þessari tegund kennslu.
Fjarkennsla fagnar þrjátíu ára afmæli um þessar mundir. Hugmyndin kom upp í Verkmenntaskólanum á Akureyri og þótti býsna byltingarkennd. Að baki hugmyndinni stóðu þeir Adam Óskarsson og Haukur Ágústsson.
Bernharð Haraldsson, sem var fyrsti skólameistari VMA, lýsti því í viðtalið á vefsíðu skólans að fjarnámið hafi verið eitt af því sem hann væri hvað stoltastur af. Hann sagði líka að hann ekki haft hugmynd um hvað þeir Adam og Haukur voru að tala um þegar þeir viðruðu hugmyndina fyrst. „Ég hef ekki hugmynd um hvað þið eruð að tala en ég skal styðja ykkur,“ sagði hann við þá félaga á fyrrnefndum fundi.
Skömmu síðar fór fjarkennslan af stað, fjórtán nemendur skráðu sig til náms, en fyrst um sinn var enska kennd í gegnum tölvupóst. Bernharð segir í sama viðtali að fjarkennslan hafi verið mikið gæfuspor, nemendum fjölgaði hratt og á nokkrum árum voru þeir orðnir rúmlega sjö hundruð. Hann bætir við að hann hafi mátt þola skammir í menntamálaráðuneytinu þar sem sumir töldu þetta allt saman fráleita vitleysu.
Tölva sími og mótald
Fyrsta fréttin um fjarkennslu á Íslandi birtist í Mogganum 30. desember 1993.
Upphaf fréttarinnar er svohljóðandi:
Fjarkennsla í tveimur áföngum í ensku hefst við Verkmenntaskólann á Akureyri eftir áramótin. Nemendur geta verið hvar sem er á landinu, en þeir verða að hafa aðgang að tölvu, síma og mótaldi. Sömu kröfur verða gerðar í fjarkennslunni um verkefnaskil og annað eins og þegar um nám í dagskóla er að ræða. Kennt verður í gegnum Íslenska-menntanetið; ismennt-netið.
Þrír enskuáfangar voru í boði á vorönn 1994 og gekk vel að halda þeim úti að sögn Hauks.
„Við þykjumst að sumu leyti vera að brjóta upp nýja leið, einstaklingum gefst nú kostur á að velja þann tíma sem hentugast er til námsins og nemendur geta verið hvar sem er á landinu," sögðu Haukur og Adam við Morgunblaðið í þessari grein um fyrstu skref fjarkennslunnar í skólanum.
Fyrir marga var fjarnám framandi hugmynd fyrir þrjátíu árum en það átti eftir breytast hratt. Fjarnám er nú víða við lýði í framhalds- og háskólum.
Við gefum Bernharð skólameistara síðasta orðið en þetta sagði hann árið 1997.
„Við höfum yfirunnið hin landfræðilegu landamæri þess að geta menntast. Nemendur okkar eru ekki bara frá Akureyri eða koma til Akureyrar til að sitja í misskemmtilegum tímum hjá misskemmtilegum og fróðleiksfúsum kennurum. Nú geta menn setið heima hjá sér og unnið verkefni sín þegar þeim hentar best. Það skiptir ekki máli hvar nemandinn er, hann getur verið á Sauðárkróki eða Seyðisfirði, í innstu dölum, úti við sjávarsíðuna, eða jafnvel á togara allt norður í Smugu."
Heimildir: Vefur VMA (vma.is) og Morgunblaðið 30. desember 1993.