Einu sinni var ... Sterkt sameiningartákn

Fréttir|30. maí 2025

Aldarfjórðungur er síðan merki Kennarasambandsins leit dagsins ljós. Áhugavert er að rifja upp tilurð merkisins og þýðingu á nú 25 ára afmæli sambandsins.

Stjórn Kennarasambandsins auglýsti eftir tillögum að merki sambandsins um mitt sumar árið 2000 en þá hafði sambandið starfað í hálft ár. Í auglýsingu, sem birtist í dagblöðum á þessum tíma, kom fram að merkið skyldi vera í lit en að möguleiki væri á svarthvítri útgáfu. Tillögum skyldi skila á A3 pappír. Þá var heitið 150 þúsund króna verðlaunum fyrir besta verkið en á verðlagi dagsins í dag er það rétt tæp hálf milljón.

Til þess að gera langa sögu stutta þá bar grafíski hönnuðurinn Stephen Fairbairn sigur úr býtum. Hann var þekktur hönnuður á þessum tíma og hafði starfað hér á landi í þrjá áratugi. Hann er meðal annars þekktur fyrir aðkomu sína að peningaseðlunum okkar,
en í því verkefni vann hann ásamt Kristínu Þorkelsdóttur.

Dómnefnd KÍ var sammála um að merki Stephens væri sterkt sameiningartákn fyrir Kennarasambandið auk þess sem það byði upp á möguleika á aðgreiningu félaganna sex með mismunandi litanotkun.

Eiríkur Jónsson, þáverandi formaður KÍ, afhendir Stephen Fairbairn verðlaun fyrir merki KÍ í september árið 2000.

Aðildarfélög KÍ á þessum tíma voru Félag grunnskólakennara, Félag framhaldsskólakennara, Félag tónlistarskólakennara, Skólastjórafélag Íslands, Félag stjórnenda í framhaldsskólum og Félag kennara á eftirlaunum. Hvert félag fékk sinn lit og er svo enn í dag.

Glöggir lesendur sakna væntanlega leikskólans hér en Félag leikskólakennara varð aðildarfélag KÍ árið 2001 og fékk þá sinn græna einkennislit. Níu árum seinna bættist svo Félag stjórnenda leikskóla í hópinn og fékk úthlutað grænum, öllu dekkri en þeim sem FL notar.

Brátt mun enn ein útgáfan líta dagsins ljós því nýstofnað félag nýliða í kennslu, Rökvís, mun fá sína útgáfu af merkinu.

En hvað segir merkið okkur? Stephen Fairbairn sagði merkið myndað úr forminu sem skapast á milli K og Í. Ekki þarf að horfa lengi á merkið til að sjá það. Þá er borðanum í merkinu skipt í sex fleti sem að sögn Stephens táknuðu aðildarfélögin sex.

„Þetta er sterkt og einfalt merki sem býður upp á fjölda útfærslumöguleika,“ sagði í umsögn dómnefndar. Þetta eru orð að sönnu enda ber merkið aldurinn vel.