Einu sinni var ... fyrsti fjölbrautaskólinn

Fréttir|17. desember 2025
Fjolbraut Breidholti

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti fagnaði fimmtíu ára afmæli á dögunum. Stofnun skólans markaði tímamót í skólasögu þjóðarinnar.

Fyrsta skólasetningin fór fram 4. október 1975 að viðstöddu fjölmenni, þar á meðal menntamálaráðherra, borgarstjóra og borgarfulltrúum. „Megi fjölbrautaskólinn verða lifandi og þroskavænleg menntastofnun,“ sagði Birgir Ísleifur Gunnarsson borgarstjóri í ræðu við athöfnina. Hann sagði að með stofnun fjölbrautaskóla væri hrint í framkvæmd hugmyndum og hugsjónum sem margir skólamenn hefðu haft um áraraðir.

Hugmyndirnar sagði hann eiga sér margvíslegar rætur: Þær byggjast meðal annars á nýjum skilningi á menntun, að menntun sé ekki fyrir fáa útvalda, heldur að starfsemi þjóðfélagsins, atvinnulíf þess og starfshættir hvíli á því að hæfur maður sé í hverju rúmi,“ sagði borgarstjóri í ræðu sinni.

Bókin Fjölbraut í 50 ár kom út í tilefni stórafmælisins í síðasta mánuði. Andri Þorvarðarson er höfundur bókarinnar sem er vel unnin og áhugaverð lesning. Hér á eftir verður gripið niður frásögn Andra af hvernig þetta byrjaði allt.

„Menntun er ekki fyrir fáa útvalda, heldur hvílir starfsemi þjóðfélagsins, atvinnulíf þess og starfshættir á því að hæfur maður sé í hverju rúmi“

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti (FB) var fyrsti sinnar tegundar hér á landi. Breiðholtið var í hraðri uppbyggingu á þessum tíma, svo hraðri að sumum þótti nóg um. Fábreytni einkenndi menntaskólana sem fyrir voru, nema kannski Menntaskólann við Hamrahlíð sem var stofnaður 1966. Á sama tíma var ungt fólk í nokkrum uppreisnarhug, vildi losna undan borgaralegum gildum en líka gegn „skólakerfi sem talið var úrelt og staðnað“ eins og segir orðrétt í bókinni Fjölbraut í 50 ár.

Borgarstjórn Reykjavíkur hlustaði greinilega á þessi viðhorf því árið 1970 var samþykkt tillaga Kristjáns J. Gunnarssonar borgarfulltrúa og síðar fræðslustjóra um nýjan framhaldsskóla. Skólanum skyldi fundinn staður í Efra-Breiðholti og var honum ætlað að vera í góðum tengslum við grunnskólana í Breiðholti.

Guðmundur Sveinsson var ráðinn skólameistari en hann þótti „ástríðufullur umbótamaður í menntamálum og hafði tröllatrú á áfangakerfinu,“ segir í fyrrnefndri bók. Guðmundur lét af störfum sem skólameistari árið 1987. Þá tók Kristín Arnalds við sem skólameistari og gegndi því embætti til ársins 2009. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir tók þá við sem skólameistari og hefur gegnt embættinu síðan.

Skólavarðan sendir afmæliskveðjur til FB og óskar skólanum farsældar um langa framtíð.