Einstakt tækifæri til endurmenntunar fyrir STEM-kennara

Ásdís Ingólfsdóttir, kennari og rithöfundur, skrifar um Science on Stage menntahátíðina 2024 sem haldin var í Turku, Finnlandi í nýrri Skólavörðu.
Dagana 12. til 15. ágúst í fyrra fór fram í Turku í Finnlandi svokölluð menntahátíð á vegum Science on Stage Europe. Var þetta í þrettánda sinn sem slík hátíð er haldin. Menntahátíðin er endurmenntunarráðstefna þar sem kennarar koma saman og kynna eigin verkefni hver fyrir öðrum auk þess að sitja fyrirlestra og vinnustofur. Að þessu sinni voru þátttakendur um 800 sem sýndu STEM-verkefni af öllum skólastigum í Háskólanum í Turku þar af þrír íslenskir kennarar.
Science on Stage eru evrópsk samtök sem starfa í 34 löndum og hafa að markmiði að bæta STEM menntun í Evrópu, efla vísindalæsi og hvetja nemendur til að íhuga feril í vísindum, upplýsingatækni og verkfræði. Það gera þau með því að styðja og hvetja starfsþróun STEM-kennara á öllum skólastigum. Samtökin standa fyrir svokallaðri menntahátíð annað hvort ár og er hún stærsta ráðstefna STEM-kennara í Evrópu.
Þátttakendur eru valdir í gegnum samkeppnisviðburði á landsvísu í aðildarlöndunum af landsnefndum Science on Stage í hverju landi fyrir sig. Hér á landi hafa Félag raungreinakennara og Samlíf, félag líffræðikennara haldið utan um Science on Stage nú í samvinnu við Nýmennt sem stóð fyrir menntabúðum til að velja verkefni til þátttöku haustið 2023.
Íslensku verkefnin vöktu athygli
Frá Íslandi fóru að þessu sinni þrír fulltrúar sem kynntu tvö mismunandi kennsluverkefni á tveimur kynningarbásum. Hanna Gréta Pálsdóttir, kennari við Langholtsskóla, kynnti verkefni þar sem fléttað er saman kennslu í náttúrufræði og keramik.
Hitt verkefnið var frá FB, þar sem kennarinn Sigurður Fjalar Jónsson og Hrafnhildur Gísladóttir þroskaþjálfi kynntu heildstætt náms- og kennaraefni í þrívíddarforritinu Tinkercad. Efnið samanstendur af viðamiklu verkefnasafni og eru verkefnin hönnuð á myndrænan hátt og því hentar kennsluefnið vel nemendum sem eiga í erfiðleikum með lestur eða hafa íslensku sem annað mál. Framsetning er þannig að mögulegt er að nota efnið á öllum skólastigum. Vöktu framlög íslensku kennaranna verðskuldaða athygli.
Þátttakan í menntahátíðinni hefur opnað fyrir margvísleg tengsl við erlenda kennara. Alls voru um 240 kynningarbásar á menntahátíðinni að þessu sinni svo nóg framboð var af áhugaverðu efni.

Orðið látið berast
Með í för að þessu sinni var landsnefnd Science on Stage, sem samanstendur af Ásdísi Ingólfsdóttur raungreinakennara og námsefnishöfundi, Helgu Snæbjörnsdóttur kennara, Martin Swift frá Nýmennt og Birgi Martin Barðasyni eðlisfræðikennara.
Nefndin hafði það hlutverk að skoða sýninguna, búa til og efla tengsl við aðra náttúrufræðikennara og safna góðum kennsluaðferðum og verkefnum saman. Í framhaldinu munu verða kynnt verkefni sem nefndinni fundust vera framúrskarandi, m.a. verður þeim deilt á samfélagsmiðlum og hverjum þeim vettvangi sem býðst.
Nú þegar er hafinn undirbúningur fyrir næstu undankeppni sem verður haldin haustið 2025 og stefnan er að senda allt að fjögur verkefni á næstu ráðstefnu Science on Stage sem haldin verður 2026.