Eins metra regla tekur gildi í framhaldsskólum

Heimilt verður að hafa einn metra á milli einstaklinga í framhaldsskólum. Engin nálægðarmörk eru þegar kemur að börnum fæddum 2005 eða síðar. Eins metra reglan gildir hins vegar um kennara og starfsfólk skólanna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi á miðnætti.
Reglur um nálægðartakmörk í framhaldsskólum og háskólum verða rýmkaðar á miðnætti. Þannig verður nú heimilt að hafa einn metra á milli einstaklinga án þess þeir beri grímu. Þetta á þó ekki við um börn fædd árið 2005 eða síðar, eða börn á leikskóla- og grunnskólaaldri. Kennarar og starfsfólk skólanna þurfa þó að halda minnst metra fjarlægð sín á milli í skólastarfi.
Tveggja metra reglan gildir að öðru leyti áfram í samfélaginu og lögð er áhersla á einstaklingsbundnar sóttvarnir og almennar smitvarnir með tíðum og reglumbundnum þrifum þar sem fólk kemur saman. Fjöldatakmörk miðast áfram við 100 manns að hámarki.
Þetta er meðal þess sem kemur fram á vef stjórnarráðsins og í nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Hinar nýju reglur gilda til miðnættis 27. ágúst næstkomandi. Markmiðið er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19.
- Nálægðartakmörkun í framhalds- og háskólum
Í framhalds- og háskólum verður heimilt að hafa 1 metra á milli einstaklinga án þess að andlitsgrímur séu notaðar. Þar skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti minnst einu sinni á dag og áhersla skal lögð á einstaklingsbundnar sóttvarnir. - Börn
Börn fædd árið 2005 eða síðar eru undanskilin þessum ákvæðum. - Íþróttir
Þrátt fyrir meginregluna um 2 metra nálægðartakmörkun verða snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum. Aftur á móti skal virða 2 metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Aðrir, meðal annars þjálfarar, starfsmenn og sjálfboðaliðar, skulu ávallt virða 2 metra regluna. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands skal setja sérsamböndum sínum nánari reglur í samráði við sóttvarnalækni, meðal annars um einstaklingsbundnar sóttvarnir, sótthreinsun búnaðar, framkvæmd æfinga og keppna. - Andlitsgrímur
Við aðstæður þar sem skylt er að nota andlitsgrímur líkt og skilgreint er í auglýsingunni skal aðeins nota grímur sem uppfylla kröfur evrópsku staðlasamtakanna (CEN) og hefur sóttvarnalæknir jafnframt sett nánari leiðbeiningar þar að lútandi.
Leiðbeiningar væntanlegar
Á vef stjórnaráðsins segir að unnið sé að uppfærðum leiðbeiningum um „framkvæmd skólastarfs á öllum skólastigum í góðri samvinnu við sóttvarnaryfirvöld og framkvæmdaaðila og verður þeim miðlað á allra næstu dögum."
Þar er jafnframt vitnað í Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, sem segir keppikefli að skólastarf á öllum stigum geti farið fram með sem hefðbundnustum hætti þrátt fyrir COVID-19. „Það kallar á sveigjanleika og þrautseigu af hálfu okkar allra. Skólarnir eru hjartað í okkar samfélagi, við viljum standa vörð um þeirra mikilvæga starf og þrátt fyrir að við upplifum flókna tíma nú er markmiðið einfalt – að tryggja nemendum menntun. Við eigum öll okkar hlutverki að gegna í því – unga fólkið, kennarar, foreldrar, aðstandendur og stjórnendur,“ segir ráðherra í frétt á vef stjórnarráðsins.