Eineltismál í skólum
Námskeið fyrir skólastjórnendur og aðra lykilstarfsmenn í grunnskólum
Einelti er ein tegund ofbeldis sem getur haft verulega alvarlegar afleiðingar á þolendur og aðstandendur þeirra. Börn sem upplifa einelti og fá ekki aðstoð frá fullorðnum geta upplifað vantraust í þeirra garð. Það er því mikilvægt að fullorðið fólk og þá sérstaklega starfsmenn skóla hafi þekkingu á einelti og kunni að bregðast við. Ekki er síst mikilvægt að skólastjórnendur bregðist rétt við. Á námskeiði Officium ráðgjafar verður farið yfir helstu atriði sem mikilvæg eru í forvörnum og viðbrögðum við einelti.
Börn og unglingar lifa í rafrænum heimi og því mikilvægt að skólar taki heildrænt á einelti. Eineltið sem börnin verða fyrir í skóla heldur áfram þegar þau koma heim og því mikilvægt að hafa gott samstarf við heimilin.
Skólastjórnendum ber skylda til að hlúa að börnunum í skólanum sem er þeirra vinnnustaður og hafa virkt aðgerðaplan sem gripið er til ef barn verður fyrir líkamlegu, andlegu eða félagslegu ofbeldi. Barn á að upplifa öryggi og vellíðan í skólanum.
Markmið
Markmið námskeiðsins er að styrkja skólastjórnendur í aðgerðum varðandi eineltismál barna og unglinga í grunnskólunum og kenna þeim aðferðir til að takast á við vandann með markvissum hætti.
Námskeiðið
Námskeiðið er kennt tvisvar á ári, einu sinni að hausti og einu sinni að vori. Lengd námskeiðs er 4 klst. ( frá kl. 8:30 – 12:30). Kennsla fer fram með fyrirlestrum, reynslusögum og virku samtali við þátttakendur. Fyrsta námskeið ársins er haldið 26. Febrúar nk. (staðsetning auglýst síðar).
Námskeiðið kostar 12.900 (verð pr. þátttakanda) og bendir Officium á að leita til stéttarfélags vegna niðurgreiðslu. Skráning er hafin á officium@officium.is og í síma 519-7979.