Einelti, kynferðisleg / kynbundin áreitni og ofbeldi á vinnustöðum

Fréttir|24. maí 2016

Ný reglugerð – ný atriði sem þarf að vinna með

Í nóvember 2015 tók gildi ný reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Reglugerðin inniheldur margt nýtt er varðar öryggi, líðan og samskipti starfsfólks í vinnunni, meðal annars við aðila sem ekki er samstarfsfólk en hefur tengsl við vinnustaðinn (s.s. nemendur og foreldra). Nýja reglugerðin er mikilvæg. Í henni er sett fram skýr stefna þar sem þessum alvarlegu málefnum er sköpuð umgjörð og kveðið á um réttindi og skyldur starfsfólks og stjórnenda.
Skólastjórnendum og trúnaðarmönnum í KÍ var sendur tölvupóstur í lok desember 2015 þar sem athygli var vakin á nýju reglugerðinni og gerð grein fyrir helstu atriðum. Þau eru:

  • Ný skilgreining á hugtakinu einelti (3. gr.).
  • Skilgreiningar á öðrum hugtökum; kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi (3. gr.).
  • Í áhættumati skal taka tillit til hegðunar starfsmanna og yfirmanna á vinnustað sem geta leitt til eineltis, áreitni og/eða ofbeldi. Einnig hegðunar annarra einstaklinga sem tengjast vinnustaðnum (s.s. foreldra og nemenda í skólum) (4. gr.).
  • Áhættumat skal taka tillit til ýmissa andlegra og félagslegra þátta, s.s. aldurs, kynjahlutfalls, ólíks menningaleg bakgrunns o.fl. (4.gr.).
  • Ítarlega er lýst hvað áætlun um aðgerðir gegn einelti, áreitni og ofbeldi skal innihalda, þ.m.t. hvernig taka skuli á slíkum málum á vinnustaðnum ef þau koma upp (5. gr.).
  • „Atvinnurekanda ber að sýna varfærni og nærgætni í aðgerðum sínum með virðingu og einkahagi hlutaðeigandi starfsmanna í huga, meðal annars með því að veita ekki óviðkomandi aðilum upplýsingar um mál...“ (6. gr.).
  • Vanda þarf meðferð upplýsinga og gagna sem tengjast meðferð máls, m.a. með tilliti til laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
  • Ef mat á aðstæðum leiðir í ljós rökstuddan grun, skal bregðast við strax. Atvinnurekandi skal einnig bregðast við, ef mat á aðstæðum leiðir til þess að atburður/hegðun hafi ekki átt sér stað til að taka sé á þeim (samskipta)vanda sem þó greinilega er til staðar á vinnustaðnum (7. gr.).
  • Þegar máli er lokið af hálfu atvinnurekanda skal hann upplýsa um það. Ef hlutaðeigandi óska eftir skriflegri staðfestingu á málalokum, skal atvinnurekandi verða við þeirri beiðni, svo fremi sem honum hafi borist beiðnin innan 6 mánaða frá því að hann upplýsti um málalok (7.gr.).
  • Ekki er gerð krafa um skriflega tilkynningu frá meintum þolanda um einelti, áreitni eða ofbeldi. Sá sem tilkynnir skal hins vegar tilbúinn að skýra mál sitt nánar (9.gr).

Reglugerðin eins og sér er þó ekki nóg. Velferðarráðherra hefur ákveðið að veita 10 milljónum króna til Vinnueftirlitsins árið 2016 vegna verkefna tengdum henni og verður helmingurinn nýttur í að auka fræðslu á þeim sviðum sem reglugerðin tekur til. Við getum því átt von á að heyra meira um þessi málefni á næstu misserum. Kennarasambandið mun leggja sitt lóð á vogaskálarnar og miðla upplýsingum og fræðslu til félagsmanna sinna, trúnaðarmanna og skólastjórnenda. Vonandi mun það skila sér í aukinni umræðu og aðgerðum til að gera skólana að betri og öruggari vinnustöðum – bæði fyrir nemendur og starfsfólk þeirra.

Einelti á vinnustað
Tíðni eineltis hér á landi hefur verið mæld meðal nokkurra starfshópa og ætla má að um 8-20% starfsmanna telja sig hafa upplifað einelti á vinnustað.
Í ræðu Velferðarráðherra á morgunverðarfundi Vinnueftirlitsins og velferðarráðuneytisins þann 17. maí 2016 kom fram að „Í könnun meðal opinberra starfsmanna frá árinu 2008 kom fram að 10% töldu sig hafa upplifað einelti á sl. 12 mánuðum og um fjórðungur starfsfólks sagðist hafði orðið vitni að einelti. Um þriðjungur þeirra sem sögðust hafa upplifað einelti sögðu að eineltið hefði varað í 2 ár eða lengur. Einungis 12% þeirra sem töldu sig hafa upplifað einelti lagði fram formlega kvörtun, og þá töldu þeir einstaklingar sem lögðu fram kvörtun að í langflestum tilfellum hefði kvörtunum þeirra ekki verið fylgt eftir með viðeigandi hætti. Algengustu áhrif eineltis á líðan þeirra sem telja sig hafa orðið fyrir einelti í starfi á síðustu 12 mánuðum lýsa sér í kvíða fyrir því að koma til vinnu, skertu sjálfstrausti, minnkuðu starfsframlagi og svefnröskunum.“

Vinnuumhverfisnefnd KÍ vinnur nú að því að teknar verði saman upplýsingar um algengi eineltis, áreitni og ofbeldis meðal félagsmanna KÍ. Þær upplýsingar vera grunnur að eflingu markvissrar fræðslu og vinnu KÍ fyrir félagsmenn varðandi þessi málefni.
Á heimasíðu KÍ er að finna gagnlegar upplýsingar um einelti á vinnustað.

Kynferðislega og kynbundin áreitni á vinnustað
Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars sl. gáfu KÍ, ASÍ, BHM, BSRB, Jafnréttisstofa og Jafnréttisráð út bækling um kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.

Í bæklingnum er farið yfir skilgreiningu kynbundinnar áreitni, kynferðislegrar áreitni og ofbeldis. Þar má finna dæmi um þá hegðun sem fellur undir þessar skilgreiningar og skyldur atvinnurekenda vegna slíkrar hegðunar. Þá er einnig farið yfir úrræði fyrir einstaklinga sem telja sig hafa orðið fyrir slíkri hegðun.

Afleiðingar kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni og ofbeldis geta verið margvíslegar. Slík hegðun getur haft afleiðingar fyrir einstaklinga, vinnustaði og samfélagið allt. Einstaklingar geta meðal annars fundið fyrir verri heilsu, streitu, þunglyndi, niðurlægingu, pirringi og lent í tekjutapi vegna fjarveru frá vinnu. Á vinnustöðum geta starfsmannavelta og veikindi aukist, auk þess sem áhrifin á orðspor vinnustaða geta verið mikil. Í samfélaginu ýtir hegðun af þessu tagi til dæmis undir misrétti, kynbundinn launamun og aukinn útgjöld af ýmsu tagi.

Ofbeldi á vinnustað
Skilgreiningu á ofbeldi á vinnustað er að finna í nýju reglugerðinni. Þar segir að ofbeldi sé „Hvers kyns hegðun sem leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda sviptingu frelsis.“

Margt starfsfólk skóla þarf á einhverjum tímapunkti að takast á við erfiða og óvænta atburði og þeim fylgir oft hræðsla, kvíði og óöryggi. Þegar slíkt gerist þarf starfsfólk skólans að vera fært um að bregðast við fljótt og á faglegan hátt. Því er afar mikilvægt að búið sé að ræða viðunandi og óviðunandi hegðun nemenda, foreldra og annarra í skólanum. Hvaða hegðun upplifum við sem áreitni, líkamlegt og andlegt ofbeldi? Við hvaða aðstæður upplifum við að við séum í óþægilegum eða áhættusömum aðstæðum? Hversu oft koma slíkar aðstæður upp? Það er mikilvægt að allt starfsfólk skólans hafi sameiginlegan skilning á hvaða aðstæður eru óviðunandi eða skapa.
Í aðstæðum þar sem ofbeldi eða áföll koma upp er nauðsynlegt að bregðast skjótt og rétt við. Þess vegna er afar mikilvægt að í skólum sé til viðbragðsáætlun sem allir þekkja og skilja. Ákvæði um hótanir, ofbeldi og áreitni gagnvart starfsfólki skóla skulu auk þess að vera í skólareglum. Koma þarf fram hvaða hegðun er óleyfileg, hvernig ofbeldisatvikum verður fylgt eftir og hvaða viðurlög gildi. Sérstaklega er mikilvægt að skólastjórnandi taki og sýni ábyrgð, sé sýnilegur leiðtogi. Skólastjórnandinn þarf að hafa yfirsýn og stjórna viðbrögðum.

Sé starfsmanni skóla hótað til dæmis eða hann beittur ofbeldi af hálfu nemanda skal:

  • Tilkynna atvikið til skólastjórnanda og trúnaðarmanna.
  • Hafa samband við foreldra viðkomandi nemanda (skylda ef nemandi er yngri en 18 ára) og segja frá hegðun hans. Ef atvikið er alvarlegt er nemandanum komið í hendur foreldra.
  • Skrá atburðinn formlega og undantekningarlaust.
  • Skólastjórnandi tryggja að viðkomandi starfsmanni sé boðin viðunandi aðstoð.
  • Tilkynna atburðinn til viðeigandi aðila, lögreglu og/eða barnaverndar, ef við á. Slíkt er afar mikilvægt ef um er að ræða alvarlegan atburð til að tryggja að allir aðilar máls eigi kost á réttlátri málsmeðferð og varðandi bótarétt ef einhver slasast.Tryggja þarf samnemendum öryggi og aðstoð. Tala þarf við nemendur um atvikið, útskýra hvað gerðist, hvernig verði brugðist við og hvað mun gerast í framhaldinu. Allt eftir aldri þeirra og þroska. Einnig þarf að hafa samband við fjölskyldur nemenda og og útskýra hvað gerðist. Í sumum tilvikum er bréf nóg en í öðrum væri góð hugmynd að boða til fundar.

Á trúnaðarmannanámskeiðum KÍ sl. haust var Hafdís D. Guðmundsdóttir, sérfræðingur KÍ í jafnréttis- og vinnuumhverfismálum, með fræðsluerindi sem bar heitið „Ofbeldi, hótanir og áreitni. Að tryggja kennurum öruggt starfsumhverfi“. Þar var farið í hvað skuli gera vegna áreitni og ofbeldis sem upp kemur í skóla og sérstaklega ef starfsfólk skóla verður fyrir slíku.

Ávef KÍ má finna upptöku af erindinu og glærur.

Að lokum
Ef einhverjar spurningar vakna vegna ofangreindra málaflokka er ykkur velkomið að leita til KÍ. Hafa má samband við viðkomandi aðildarfélag og/eða Hafdísi D. Guðmundsdóttir, sérfræðing í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum, netfang hafdis@ki.is.

Greinin í PDF-útgáfu