Eigum að standa vörð um verðmæti sem halda gildi sínu
Fullt var út úr dyrum á Samstöðufundi Kennarasambandsins til stuðnings tónlistarkennurum sem fram fór í Norðurljósum Hörpu fyrr í dag. Baráttuhugur var ríkjandi á fundinum og ljóst að tónlistarkennarar, sem hafa verið í verkfalli í fjórar vikur, njóta mikils stuðnings félaga innan KÍ sem og annarra.
Þórður Hjaltested, formaður KÍ, hélt ávarp við upphaf fundar. Hann gerði mikilvægi tónlistar í samfélaginu að umtalsefni og sagði tónlistarskóla landsins gegna lykilhlutverki í að skapa grunninn að því ríkulega tónlistarlífi sem byggt hefur verið upp hér á landi á undangengnum áratugum.
„Nú hefur þetta mikilvæga starf í tónlistarskólum landsins legið niðri í alltof langan tíma – heilar fjórar vikur. Ég lýsi hér með furðu minni á andvaraleysi sveitarstjórnarmanna á deilunni og litlum vilja þeirra til að leysa hana.“
Þórður sagði að hefjast þurfi þegar í stað handa við að lagfæra kjör tónlistarskólakennara. „Kennarinn er sérfræðingur sem á að hafa sambærileg laun og aðrir sérfræðingar. Við krefjumst þess að launin séu leiðrétt strax,“ sagði Þórður.
Sigrún Grendal, formaður FT, sagði tónlistarskólakerfið hér á landi hafa verið í tómarúmi um nokkurt skeið. „Átökin eru hafin um hvers konar Ísland við viljum byggja eftir efnhagshrunið; eigum við að byggja á hrungildunum, græðgi og hroka, eða eigum við læra af reynslunni og standa vörð um verðmæti sem halda gildi sínu, verðmæti sem mölur og ryð fá ekki grandað,“ sagði Sigrún.
Hún sagði tónlistarkennara eiga það sameiginlegt að þeir geri sér grein fyrir mikilvægi og gildi starfsins. Kennarar vilji hafa áhrif á þróun samfélagsins. „Við viljum ekki að skammtímasjónarmið eyðileggi þá auðlind sem felst í okkar tónlistarskólakerfi.“
Sigrún sagði erfiða tíma hjá tónlistarkennum í verkfallinu en á sama tíma væri samhugur stéttarinnar um allt land einstakur. „Einhugurinn og samstaðan um að hér sé verkefni sem við verðum að leggja allt okkar í er algjör,“ sagði Sigrún.
Menntun er grunnstoð í samfélaginu, sagði Sigrún, og á erlendum vettvangi er menningu og listum stillt upp sem helstu grunnstoðum sjálfbærrar þróunar. „Menntun, menning og listir hafa einnig sjálfstætt eigið gildi. Hér erum við útverðir og leiðandi afl. Það eru merki um að við þurfum enn frekar að þétta raðirnar. Kennarastarfið hefur aldrei verið mikilvægara en í dag og menntun er sú breyta sem ræður hvað mestu um hvert stefnumiðið verður inn í nýja öld skapandi tíma. Tónlist og tónlistarmenntun skipar þar stórt hlutverk og þar eru tónlistarkennarar grunnurinn,“ sagði Sigrún Grendal meðal annars í ávarpi sínu.
Auk þess ávörpuðu fundinn þau Haraldur Freyr Gíslason, formaður FL, Egill Helgason sjónvarpsmaður og foreldri, og Aðalheiður Steíngrímsdóttir, varaformaður KÍ. Fjöldamargir frábærir tónlistarmenn stigu á svið og glöddu viðstadda með söng og hljóðfæraleik.
Í lok fundar var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Sú mikla gróska sem einkennt hefur tónlistarlíf hér á landi undanfarna áratugi er ekki sjálfsprottin heldur á hún rætur í því metnaðarfulla starfi sem fram fer daglega í tónlistarskólum landsins. Starfi tónlistarskóla er nú stefnt í hættu af kjörnum fulltrúum sem á annan áratug hafa setið aðgerðarlausir á meðan kjör tónlistarkennara hafa smám saman dregist aftur úr kjörum sambærilegra hópa.
Nú fara tónlistarkennarar fram með þá sanngjörnu kröfu að störf þeirra verði metin til jafns á við aðra kennara og að laun þeirra verði leiðrétt. Þeirri kröfu hefur fram að þessu verið svarað með skeytingarleysi og hrópandi þögn þrátt fyrir að tónlistarkennarar hafi nú verið í verkfalli í fjórar vikur og nám tónlistarnemenda beðið mikinn skaða.
Sveitarstjórnarmenn stæra sig á tyllidögum af blómlegu menningarlífi. En með hverjum deginum sem líður án þess að samið sé við tónlistarkennara sést að orð þeirra eru innantóm.
Mál er að linni. Við krefjumst þess að samið verið strax við tónlistarkennara svo að þeir geti snúið aftur til sinna mikilvægu starfa.