Eigum að hlusta á raddir barna

Fréttir|21. október 2020

UNESCO, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, starfrækir alþjóðlegt samstarfsnet skóla sem kallast UNESCO-skólar. Meginmarkmið UNESCO er að stuðla að friði og öryggi í heiminum með því að efla alþjóðlega samvinnu á sviði menntunar, vísinda- og menningarmála.

Að vera UNESCO-skóli felur í sér samkomulag og samvinnu milli skólans og UNESCO þar sem skólinn innleiðir verkefni tengd einhverjum af fjórum þemum UNESCO-skóla. Þemun eru: alþjóðasamvinna, starfsemi Sameinuðu þjóðanna og heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun og/eða frið og mannréttindi, “ segir Kristrún María Heiðberg, verkefnastjóri UNESCO-skóla á Íslandi. „Skólanet UNESCO hefur verið starfrækt frá árinu 1953 og nú eru um 10 þúsund skólar sem tilheyra netinu og starfa í 181 landi um allan heim. Á skólanetinu, sem er öllum opið, er fjölbreytt námsefni sem fellur vel að grunnþáttum aðalnámskráa grunn- og framhaldsskóla.“

UNESCO skólar á Íslandi eru Landakotsskóli, Salaskóli, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti og Kvennaskólinn í Reykjavík. Félag Sameinuðu þjóðanna fer fyrir skólanetinu á Íslandi í samstarfi við íslensku UNESCO nefndina. Verkefnið er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

„Heimsmarkmiðin eru eitt af stóru verkefnum UNESCO-skóla. Um er að ræða 17 markmið og 169 undirmarkmið sem taka til alls heimsins og ber ríkjum að ná þeim fyrir árið 2030. Íslenska ríkisstjórnin hefur skipað verkefnastjórn sem nú vinnur að innleiðingu markmiðanna og eitt af forgangsmarkmiðum hennar er að efla menntun og fræðslu á sviðum sjálfbærni, friðar og mannréttinda.“ Kristrún segir innleiðingu á kennsluefni um heimsmarkmiðin gefa nemendum innsýn í ferlið og auka skilning þeirra á alþjóðamálum. „Markmiðið er að nemendur þjálfist í gagnrýnni hugsun og öðlist nauðsynlega þekkingu og færni til að ýta undir sjálfbæra þróun í heiminum.“  

Að sögn Kristrúnar skuldbinda UNESCO skólarnir sig til að halda árlega upp á tvo ólíka alþjóðadaga Sameinuðu þjóðanna. „Þar má t.d. nefna alþjóðadaga læsis, mannréttinda, hafsins, einhverfu, barnsins, friðar, jarðarinnar og vísinda. Skólarnir eiga jafnframt að standa árlega fyrir einum viðburði sem tengist Sameinuðu þjóðunum. Þetta geta verið þemadagar eða viðburðir sem tengjast gildum Sameinuðu þjóðanna eða heimsmarkmiðunum. Á hverju ári skila síðan skólarnir yfirliti yfir þau verkefni sem skólinn hefur sinnt innan vettvangs skólanetsins. Félag Sameinuðu þjóðanna aðstoðar skóla í umsóknarferlinu og veitir ráðgjöf við innleiðingu verkefnisins.“

Mikilvæg fræðsla

Kristrún, sem er sjálf kennari, er með M.Ed. gráðu í náms- og kennslufræði frá Háskóla Íslands. Lokaritgerðin hennar fjallaði um mannréttindakennslu í grunnskólum. Hún er einnig með B.A. gráðu í blaðamennsku og stjórnmálafræði frá Metropolitan State University of Denver. „Ég hef starfað sem grunnskólakennari frá árinu 2010 og hef lengi haft áhuga á mannréttindum. Ég hef ávallt lagt mikla áherslu á mannréttindi í minni kennslu og hef kennt sérstaka áfanga um mannréttindi, lýðræði, jafnrétti og gagnrýna hugsun.“ Kristrún segir mikilvægt að nemendur fræðist um mannréttindi og að þeir séu meðvitaðir um gildi þeirra. Að þeir þekki og skilji lýðræði, jafnrétti, samkennd, samvinnu og gagnrýna hugsun. „Skólinn sem menntastofnun gegnir veigamiklu hlutverki í uppeldi, námi og þroska barna. Mannréttindi eru ekki sjálfsögð og því verður að standa vörð um þau og varðveita það sem áunnist hefur. Margir skólar eru að gera góða hluti í að notast við fjölbreyttar kennsluaðferðir og efla þar með félagsfærni nemenda. Í kjölfarið hafa nemendur tekið meiri þátt í kennslustundum sem er auðvitað jákvætt og gott. Það er mikilvægt að vekja nemendur til umhugsunar og kalla eftir umræðum í skólastofunni.“

Heimsins stærsta kennslustund

Kristrún segir ábyrgðarhlutverk núverandi kynslóðar gagnvart komandi kynslóðum vera mikið og þar komi hlutverk skólans sterkt inn í. „Mikilvægt er að heyra hvað nemendur hafa fram að færa og hvaða skoðanir þeir hafa á málum. Grundvallarþættir Barnasáttmálans eru jafnrétti, lýðræði og mannréttindi. Þar er einnig kveðið skýrt á um rétt barna til að tjá skoðanir sínar og taka þátt í ákvarðanatöku er varðar hagsmuni þeirra. Í verkefnum tengdum heimsmarkmiðunum er m.a. lögð áhersla á að fá börnin að borðinu í ákvarðanatöku. Þau eru spurð álits.“

Börn hafa svo margt til málanna að leggja.

Heimsins stærsta kennslustund (World Largest Lesson) er árlegt átak sem snýr að kennslu á heims­­markmiðunum og er styrkt af UNESCO og UNICEF (Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna). Að sögn Kristrúnar er markmiðið að efla vitund nemenda og hvetja þá til aðgerða er kemur að sjálfbærri þróun og heimsmarkmiðunum. „Í ár verður lögð áhersla á loftslagsmál og hvernig ungt fólk getur lagt sitt af mörkum til að styðja við aðgerðir í loftslagsmálum. Unga fólkið hefur verið duglegt við að vekja athygli á þessum málaflokki sem er gott mál. Umhverfisvernd skipar æ meiri sess í lífi fólks og það vekur von.“

Að sögn Kristrúnar þarf að hlusta meira á raddir barna. „Börn hafa svo margt til málanna að leggja. Það er alltof oft sem verið er að taka ákvarðanir um börn án þess að þau séu spurð. Það er gaman að sjá hvernig börn sjá heiminn fyrir sér, þau sjá hlutina oft með öðrum augum en fullorðnir, jafnvel nýja og athyglisverða fleti. Framtíðin er þeirra og þá er ekki nema eðlilegt að þau séu spurð álits.“

Kristrún segir starf kennara vera mjög annasamt og að mörgu að hyggja. „Eitt af því sem kennarar hafa ekki mikið af er tími. Þess vegna er mikilvægt að þeir hafi aðgang að skólaneti eins og því sem UNESCO skólanetið býður upp á. Auk þess hafa kennarar UNESCO- skóla aðgang að sérstakri FB-síðu þar sem þeir skiptast á skoðunum og deila m.a. námsefni og góðum kennsluhugmyndum. Slíkt tengslanet er mikilvægt og lærdómsríkt.“

Kristrún hvetur skóla endilega til að hafa samband hafi þeir áhuga á að gerast UNESCO- skólar. Netfang Kristrúnar er kristrun@un.is.

 

Greinin birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2020.