Eigum að hætta að tala niður verknám

Það er enginn barlómur í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Aðsókn í skólann er góð og nemendur í vetur eru nær eitt þúsund talsins. Grunndeildir skólans eru fullskipaðar og vísa hefur þurft nemendum frá.
Þetta er ekki alveg í takt við almenna umræðu um að iðn- og verknám sé á fallanda fæti hér á landi. Skólavarðan heimsótti Verkmenntaskólann á Akureyri (VMA) og hitti fyrir Baldvin Ringsted, sviðsstjóra verk- og fjarnáms.
Baldvin var fyrst spurður almennt um stöðu iðn- og verknáms í skólanum.
„Staðan hér er góð. Ég hef lengi barist fyrir því að við hættum að tala niður verknámið. Það er alltof algengt að talað sé um iðn- og verknám eins og það sé fatlaður bróðir sem allir eigi að vera góðir við. Við þurfum að hætta þessu vorkunnarhjali strax en við þetta má svo sem bæta að það hefur enginn áhuga á jákvæðri umfjöllun um þetta nám. Ég hef reynt ýmislegt til að vekja athygli fjölmiðla á því sem vel gengur hér – en áhuginn er ekki fyrir hendi, því miður,“ segir Baldvin.
VMA var stofnaður árið 1984 en þá voru Iðnskólinn, Húsmæðraskólinn og framhaldsdeildir Gagnfræðaskólans sameinaðar. Talið var í fyrstu að skólinn yrði aldrei stærri en svo að nemendur væru 700. Nú eru þeir nærri þúsund og flestir hafa þeir verið um 1.300.
Baldvin hefur verið kennari í VMA frá árinu 1991. Hann er blikksmíðameistari og með BA-próf í ensku. Kennslugreinar hans eru og hafa verið enska, grunnteikning, stærðfræði og vélfræði.
„Við höfum ekki yfir neinu að kvarta í grunndeildunum; raf- og rafeindavirkjun, málm- og véltækni og byggingagreinum. Við erum auk þess með grunndeild í matvælagreinum og nýlega endurreista deild í hársnyrtiiðn. Vandinn við hársnyrtideildina er skortur á nemaplássum og okkar nemendur hafa sumir farið til Noregs til að klára starfsþjálfun. Þá er gaman að segja frá því að við höfum útskrifað einn kokkahóp og erum með efnivið í annan hóp. Hvað verður í þessari grein vitum við þó ekki, ef dregur úr ferðamannastraumi hingað gæti aðsóknin minnkað,“ segir Baldvin.
Skipting nemenda í þremur stóru grunndeildunum er að sögn Baldvins þannig að helmingur er nýnemar og helmingur eldri nemendur sem hafa náð sér í reynslu í atvinnulífinu. „Svo fáum við fjölmarga stúdenta inn á rafmagnssviðið. Þeir koma úr hinum og þessum skólum, frá Laugum, MA og FNV á Sauðárkróki, svo dæmi séu tekin,“ segir Baldvin.
Hann segir mikinn metnað innan rafmagnssviðsins og að reynt sé að velja góða nemendur inn; nemendur sem séu líklegir til afreka og hafi staðið sig vel í grunnskólanum. Ein ástæðan séu ríkar kröfur í stærðfræði alveg frá fyrstu önn. „Þeir sem koma beint inn í deildina fara flestir í stúdentsprófið. Það er mikill jafningjaþrýstingur.“
Miklar kröfur gerðar til nemenda
Þá segir Baldvin bifvélavirkjun hafa tekið miklum og hröðum breytingum síðustu árin. „Þetta er orðin hátæknigrein, enda bílar nútímans tölvustýrðir. Fyrirkomulagið er þannig að nemendur taka eitt ár í grunndeild þar sem þeir læra járnsmíði og suðu, vélfræði, teikningu og ensku. Nemendur verða að ná góðum tökum á ensku því þegar komið er á þriðju önn er allt námsefnið á ensku og þannig er það líka úti í atvinnulífinu. Þessir nemendur búa við mikið álag og við gerum kröfu um 90% mætingu, enda námið kennt í lotum,“ segir Baldvin.
Hann segir VMA hafa skrifað eigin námskrá í bílgreinum sem hafi fengið samþykki. Nýja námskráin er nokkuð frábrugðin þeirri sem var gefin út í Aðalnámskrá. „Við leggjum meiri áherslu á smíðaþáttinn, við viljum að nemendur kunni járnsmíði og að sjóða og séu færir um að taka að sér jeppabreytingar, til dæmis. Við höfum auk þess bætt við áföngum og lengt námið um eina önn; úr fimm önnum í sex. Nú kennum við nútímatækni, svo sem á leiðsögukerfi, stýringar og búnað í bílum, loftpúða og fleira,“ segir Baldvin og bætir við að einnig sé kennt á rafmagnsbíla. Síðastnefndi þátturinn mun að mati Baldvins vaxa á næstu árum enda bílaflotinn að breytast.
Það er alltof algengt að talað sé um iðn- og verknám eins og það sé fatlaður bróðir sem allir eigi að vera góðir við
Nám til stúdentsprófs hefur sem kunnugt er verið stytt úr fjórum árum í þrjú. Það á hins vegar ekki við verknámið. „Iðnnám hefur lengst af verið tvö og hálft til þrjú ár á skólabekk. Nú er það oftast fimm til sjö annir og svo starfsþjáĺfun frá 24 vikum upp í ríflega ár ,“ segir Baldvin.
Aðspurður hvort til standi að stytta verknám í annan endann segist Baldvin ekki reikna með því. „Það kemur reyndar fram í Hvítbók Illuga og víðar að það eigi að stytta þetta nám. Það hefur bara enginn sagt hvernig. Hvað á að skera niður? Iðnnámið er lengra en nám til stúdentsprófs og það finnst engum neitt athugavert við það.“
Leiðandi í námskrárgerð
Baldvin segir mikið starf hafa verið unnið í VMA við að skrifa námskrár fyrir iðnnám. Þegar hafa verið samþykktar brautir í húsasmíði, rafvirkjun og stálsmíði, bifvélavirkjun og rafeindavirkjun. „Við höfum verið leiðandi í námskrárgerð og það hafa ekki allir nýtt það tækifæri sem felst í að endurskoða námskrána, einkum með tilliti til þess sem er að gerast í viðkomandi fagi. Við höfum lagt okkur fram við að fylgjast með þróuninni í hverri grein og bifvélavirkjunin er gott dæmi um það – endurskoðun námskrár leiddi til þess að námið lengdist,“ segir Baldvin.
Nýjar brautir eru ekki á teikniborðinu akkúrat núna. „Ég hef sett saman nýjar brautir en það er enginn tilbúinn að samþykkja braut sem ekki hefur verið til áður. Dæmi um þetta er bifhjólavirkjun sem ég kynnti mér vel í Danmörku. Ég fékk dönsku námskrána og speglaði hana inn í okkar námskrá að viðbættum vélsleðum og smávélum. Ég sá þetta fyrir mér sem eins árs námsbraut ef nemendur hefðu undirbúning við hæfi. Það falla tólf þúsund ökutæki hér á landi undir þetta en hugmyndinni var hafnað af viðtakendum,“ segir Baldvin.
Hann segir einnig að umsókn um námsbraut í megatróník hafi verið hafnað. Baldvin segir erfitt að koma inn með nýjungar, því miður.
Við erum með fjórtán manna hóp pípara sem gerist nú ekki á hverjum degi. Aðsókn í pípulagnir og múrverk hefur aukist síðustu misseri
Jákvæðar fréttir úr iðnnáminu eru hins vegar að í vor mun útskrifast hópur pípulagningarmanna. „Við erum með fjórtán manna hóp pípara sem gerist nú ekki á hverjum degi. Aðsókn í pípulagnir og múrverk hefur aukist síðustu misseri og við erum einnig að útskrifa flottan hóp stálsmiða í vor. Um 35 leggja nú stund á stálsmíði, sem er gott,“ segir Baldvin og bætir við að að sama skapi hafi aðsókn í húsgagnasmíði dregist saman. Svona sveiflast eftirspurnin og síðustu tvö ár hafa ívið færri útskrifast af verknámsbraut í VMA en af stúdentsbraut. „Við höfum gjarnan verið með 50 til 60 prósent útskrifaðra okkar megin en það hefur hallað á okkur síðustu tvö árin. Líklega er það stytting náms til stúdentsprófs sem hefur áhrif, þeir nemendur sigla hraðar í gegn.“
Efins um eitt leyfisbréf
Nýtt frumvarp sem unnið er að í menntamálaráðuneytingu gerir á þessari stundu ráð fyrir að gefið verði út eitt leyfisbréf fyrir kennara á öllum skólastigum. „Mér hugnast þessi breyting ekki sérlega vel, verði hún að veruleika. Ef við horfum bara á námið hér í VMA þá er það mjög greinabundið og kennarar eru afar sérhæfðir í sínum greinum. Það kennir enginn faggreinar án þess að hafa til þess faglega þekkingu, svo einfalt er það. Það sem mætti sjá fyrir sér væri skörun á milli efstu bekkja grunnskóla og fyrstu bekkja framhaldsskólans. Faggreinakennari á unglingastigi gæti hugsanlega kennt 1. þreps áfanga í framhaldsskóla en hann færi ekki mikið lengra en það,“ segir Baldvin.
Eins og greint var frá í upphafi greinarinnar þá er hugur í forráðamönnum VMA. „Ég hef svo lengi sem ég hef starfað hér barist fyrir því að fólk hætti að tala verknámið niður. Við eigum að sameinast um að efla verknám enn frekar og hætta að flytja sífellt neikvæðar fréttir af því,“ segir Baldvin Ringsted.
Viðtalið við Baldvin Ringsted birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2019.