Ég held ég geti nýtt mér það að vera flóttabarn

Fréttir|27. júní 2022

Ljiridona Osmani er kennari í Stapaskóla og býr að þeim bakgrunni að hafa flúið stríðið í Kósóvó þegar hún var lítil.

Ljiridona Osmani er umsjónarkennari 5. bekkjar í Stapaskóla. Hún útbjó verkefni á þemadögum skólans í fyrra þar sem hún samdi sögu tengda reynslu sinni en hún er frá Kósóvó og flúði fjölskyldan stríðið þar á sínum tíma. Hún segir að nemendur skólans sem tóku þátt í verkefninu hafi meðal annars lært að fólk sem býr á Íslandi þurfi ekki að vera íslenskt til að geta gert það sem það vill gera.

„Þetta verkefni í skólanum fór í gang út frá þemadögum í Stapaskóla 17. - 19. nóvember í fyrra,“ segir Ljiridona Osmani, umsjónarkennari í 5. bekk. „Ein grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fjallar um börn á flótta og ég ákvað að nýta reynslu mína og búa til skemmtilegt verkefni út frá þessari grein sáttmálans,“ segir Ljiridona en hún er frá Kósóvó og flúði fjölskyldan stríðið þar þegar hún var lítil.

Ljiridona og einn samkennari hennar unnu svo saman að verkefninu og bjuggu til spurningar út frá sögunni, sem fjallar einmitt um unga stúlku sem flýr stríðsástandið með fjölskyldu sinni. Nemendur 5. - 10. bekkjar skólans lásu síðan söguna á þemadögum og í kjölfarið voru þeir spurðir spurninga út frá sögunni svo sem hvar þeir héldu að stúlkan í sögunni byggi í dag. „Það vissi enginn að þetta væri ég.“

Nemendur lásu söguna á iPad og svöruðu síðan spurningunum rafrænt. Þemadagarnir voru á miðvikudegi og fimmtudegi og Ljiridona og samkennari hennar fóru yfir svörin og kynntu þau jafnframt fyrir þátttakendum.

Ástæðan fyrir þessu verkefni var að koma því á framfæri að þó ég sé ekki Íslendingur og ekki með íslenskt nafn þá get ég alveg verið kennari

„Mér fannst merkilegt að lesa svör nemendanna sem voru 170 talsins. Það kom í ljós að ótrúlega margir halda að innflytjendur á Íslandi, svo sem flóttafólk, geti bara unnið til dæmis í fiskvinnslu, á kassa í verslun eða á skyndibitastöðum. Enginn svaraði að þessi manneskja gæti til dæmis verið lögfræðingur, sálfræðingur eða verkfræðingur. Um 20 krakkar sögðu að stúlkan í sögunni gæti í dag verið kennari en restin nefndi að hún gæti verið að vinna á kassa í verslun eða í fiski. Þannig að samfélagið er búið að búa til ákveðna staðalímynd. Mér finnst ég þá koma vel út sem dæmi um að innflytjandi eða flóttamanneskja þurfi ekki endilega að vinna í fiski, á skyndibitastað eða í öðrum láglaunastörfum,“ segir Ljiridona sem er með BA-próf í uppeldis- og menntunarfræði og er í fullri vinnu í Stapaskóla, auk þess sem hún er í fullu námi en hún stundar meistaranám í náms- og starfsráðgjöf.

Vegna Covid gátu kennararnir ekki hitt nemendur 5. - 10. bekkjar í sal skólans til að ræða um niðurstöðurnar heldur var notast við Teams. „Ég tilkynnti þá nemendum að ég væri stelpan í sögunni. Þetta var svo gaman og ég fékk alls konar spurningar. Krakkarnir spurðu til dæmis hvort ég hefði átt vini í Kósóvó, hvers vegna ég væri svona góð í íslensku og hvernig ég hefði lært íslensku.“

Ljiridona er spurð hvað henni finnist nemendur hafa lært af þessu verkefni.

Það vissi enginn að þetta væri ég

„Að fólk sem býr á Íslandi þarf ekki að vera íslenskt til að geta gert það sem það vill gera. Fólk er misjafnt og útlendingar geta ekki bara unnið viss störf og Íslendingar önnur störf. Mér finnst ég vera ótrúlega gott dæmi; ég er ekki sjálfselsk þegar ég segi þetta en mér finnst að ég sé gott dæmi og góð fyrirmynd fyrir bæði innflytjendur og Íslendinga um að það sé allt hægt bara með því að leggja sig fram og ekki pæla í því sem aðrir segja, svo sem ef fólk setur út á eitthvað eða segir að fólk geti ekki gert eitthvað. Maður nær alltaf að gera það sem maður vill gera ef maður vill ná þangað. Ástæðan fyrir þessu verkefni var að koma því á framfæri að þó ég sé ekki Íslendingur og ekki með íslenskt nafn þá get ég alveg verið kennari. Og það er alveg hægt að vera til dæmis lögfræðingur eða sálfræðingur; fólk getur náð eins langt og það vill óháð því hvort það sé innflytjandi, dökkt á hörund eða hvað sem er.“

Flúðu til Ástralíu

Ljiridona fæddist í Serbíu og var tveggja ára þegar Kósóvóstríðið skall á. Þess má geta að í Kósóvó eru 93 prósent íbúanna Albanar og 5 prósent Serbar. Ljiridona man ekkert eftir stríðinu þar sem hún var svo lítil en getur sagt frá því sem foreldrar hennar hafa sagt henni.

Fjölskyldan bjó í Serbíu þegar stríðið skall á; nánar tiltekið á heimili föðurömmu og -afa Ljiridona en þau eru öll Albanar.

„Þau vissu að það kæmi einhver inn á heimilið og földu allt sem tengdist Albaníu, svo sem fána og glös með albanska fánanum, af því að það mátti ekkert slíkt finnast. Mamma, pabbi, amma og afi grófu margt ofan í jörðina eða földu til dæmis inni í ofnum; þau fundu alls konar felustaði. Svo var komið inn á heimilið og spurt hver tæki það á sig að verða drepinn ef eitthvað fyndist. Pabbi tók það á sig. Það fannst ekkert en pabbi var aftur á móti tekinn og við sáum hann ekki í nokkra daga. Ég og mamma vorum settar í nokkurs konar gáma með fullt af öðrum konum og vorum þar í einhverja daga og mamma vissi ekki hvort pabbi væri á lífi eða ekki. Svo birtist hann nokkrum dögum síðar.“

Og hjónin ákváðu að flýja. Þau lögðu fótgangandi af stað með tveggja ára dóttur sína og komust frá Serbíu.

„Við gistum úti í vondu veðri með lítinn sem engan mat og varla með neitt að drekka. Við enduðum í Makedóníu og þar fengu foreldrar mínir pening frá ættingjum til þess að kaupa mat og fleira. Rauði krossinn kom okkur síðan gjaldfrjálst til Ástralíu. Það var stór hópur Albana að flýja þangað.

Ein grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fjallar um börn á flótta og ég ákvað að nýta reynslu mína og búa til skemmtilegt verkefni út frá þessari grein sáttmálans

Við bjuggum þar í nokkra mánuði en síðan fluttum við til Kósóvó þegar stríðið var búið eða í kringum 2000. Við bjuggum þar í tvö ár áður en við fluttum til Íslands. Aðstæðurnar í Kósóvo voru ekki sérlega góðar. Við bjuggum eiginlega í fátækrahverfi og það var ekki til mikill peningur; pabbi var eitthvað að vinna en hann var með mjög lág laun. Mamma var heimavinnandi. Þetta dugði ekkert með tvö lítil börn, en bróðir minn er yngri en ég. Ástandið var eiginlega mjög slæmt. Það var til dæmis slæmt ástand á sjúkrahúsum og varla aðstaða fyrir konur til að fæða börn. Sumar konur áttu börn sín í herbergjum þar sem fleiri sjúklingar voru.“

Getur nýtt reynslu sína

Ljiridona segir að það hafi aldrei verið ætlunin að fara til Íslands.

„Bróðir pabba flutti til Íslands 1997 og var búinn að vera að vinna hérna. Hann flutti bara einn en átti konu og lítinn strák í Kósóvó. Hann fór síðan út og sótti fjölskyldu sína og þá sá hann hvað aðstæðurnar sem við bjuggum við voru slæmar og fór í það þegar hann kom aftur til Íslands að reyna að koma okkur til landsins, sem tókst í janúar 2002. Hann talaði við konuna sem hann vann hjá á þeim tíma og hún í rauninni borgaði flugmiða fyrir okkur fjögur og við fluttum síðan norður á Árskógsströnd. Pabbi og mamma komu hingað með atvinnuleyfi.“ Þar bjó fjölskyldan fyrstu árin en flutti síðan í Garðinn og svo til Keflavíkur.

Ljiridona er spurð hvaða áhrif saga fjölskyldunnar hafi haft á hana.

„Ég held að þetta hafi mótað mig sem manneskju. Ég held að ég geti nýtt mér það að vera „flóttabarn“ og notað reynslu mína til að sýna að þótt aðstæðurnar séu svona slæmar þá er alltaf eitthvað gott sem getur gerst. Mér finnst líka gott að geta kannski verið fyrirmynd þeirra barna sem búa á Íslandi og hafa gengið í gegnum margt; að sýna að það sé hægt að verða eitthvað mikið. Það er hægt að klára framhaldsskóla óháð því hvort um sé að ræða barn á flótta, innflytjanda eða barn sem er dökkt á hörund. Mér finnst leiðinlegt að samfélagið sé búið að búa til ákveðnar staðalímyndir gagnvart þessum einstaklingum og mér finnst þá vera gott að taka mig sem dæmi og nota sögu mína og reynslu í að búa til miklu betri staðalímynd gagnvart útlendingum, innflytjendum og börnum á flótta.“

Greinin birtist í Skólavörðunni vorið 2022