Ég fékk póst…

Fréttir|11. maí 2015

Fyrir skemmstu fékk ég póst frá gömlum nemanda mínum. Sú er nú orðin móðir og á tvær ungar dætur.

Þetta var einlægur og skemmtilegur póstur en í honum segir hún mér frá því að dóttir hennar, sem varð fimm ára í janúar, hafi svo mikinn áhuga á að læra að lesa. Hún segir að sig vanti einhver verkfæri til að hjálpa henni og spyr mig ráða.

Að kenna ungum börnum að lesa hefur gefið mér alveg einstaklega mikið sem yngri barna kennara til næstum 30 ára. Að sjá ljósið kvikna þegar barn áttar sig á að það getur tengt saman hljóð og lesið orð er einstök upplifun. Upplifun sem verður ekki metin til fjár.

Ég varð afskaplega glöð með þennan póst, ekki bara vegna þess að gamall nemandi mundi eftir mér, heldur fékk ég þarna tækifæri til að leiða litla dömu áfram inn í heim lestursins, ævintýranna þar sem allt getur gerst. Gera draum hennar að veruleika.

Til að byrja með sagði ég móðurinni frá mikilvægi þess að stelpan þekki bæði tákn og hljóð. Svo hvatti ég hana til að láta stúlkuna teikna mynd og skrifa sögu eða texta við hana því í allmörg ár hef ég kennt lestur gegnum ritun. Mínir nemendur skrifa sig inn í lesturinn. Þeir teikna mynd og skrifa svo orð eða texta við í takt við eigin þekkingu. Sumir byrja á því að skrifa leyniletur eða bókstafalíki, sem enginn annar en viðkomandi getur lesið. Svo vex kjarkurinn smám saman og það koma stafir, orð og svo setningar. Til að meta ritunina og setja hverjum nemanda markmið styðst ég við þrep í þróun ritunar.

Pávagaur að borða

Í svarinu mínu við póstinum hvatti ég móðurina til að láta stelpuna segja orðin sem hún ætlaði að skrifa, hlusta vel á hljóðin sem hún heyrði og skrifa þau. Láta eyrun hjálpa sér. Það væri engin ástæða til að hafa áhyggjur þó svo að það vantaði stafi eða hljóð inn á milli. Það væri eðlilegt á þessu stigi. Að kenna lestur gegnum ritun fer vel með hljóðréttu máli íslenskunnar og lestrarkennsluaðferðinni hljóða-aðferð. Leiðin er hvetjandi og auðveldar vinnu með hvert barn á eigin forsendum. Einstaklingsmiðuð lestrarkennsla er einmitt mikilvæg til að ná sem bestum árangri.

Ekki leið á löngu þar til ég fékk svar til baka og þar segir orðrétt:

„Hún er mikið að raða stöfum saman en spyr mikið og er óviss svo mér finnst eins og hún sé ekki komin á það stig að skrifa sjálf. En ég ætla að prufa og sendi þér mynd. En jú hún kann stafina og hvað þeir segja“.

Svo kemur annar póstur og í honum segir orðrétt:

„Barnið var að skrifa þetta! Hún tók mynd sem pabbi hennar hafði teiknað, litaði hana og skrifaði: pávagaur að borða! Ég er hálf orðlaus, ég hef alltaf hugsað þetta þannig að maður læsi áður en maður skrifar!“

í póstinum stendur líka: „Þetta er svo ótrúlegt! Ég var klárlega að hugsa þetta öfugt. Þetta er svo sniðugt. Ég skil ekki að ég hafi ekki fattað þetta sjálf. Því hún var alltaf að spyrja hvernig þetta og hitt er stafað.

Þetta er svo skemmtilegt. Svo stafaði hún allan kvöldmatinn. Hún er bara svo ofboðslega stolt. Alveg ljómar!“ Ofangreint gladdi svo sannarlega mitt lestrarkennarahjarta. 

Samvinnan skiptir máli

Umræddur póstur minnir rækilega á hversu mikilvægir foreldrar eru í lestrarnáminu. Þeir eru fyrstu kennararnir og jafnframt þeir mikilvægustu og gegna algjöru lykilhlutverki. Því lestrarnám barns hefst í raun löngu áður en það byrjar í skóla. Að lesa fyrir barn, að tala við barn, skiptir máli. Málþroski barns skiptir máli. Barn þarf að skilja það sem það les. Það er að mörgu að hyggja.

Góð samvinna á milli foreldra og kennara skiptir miklu máli. Kennari þarf að vera í stakk búinn til að leiðbeina foreldrum og vinna náið með þeim í lestrarferlinu. Foreldrar eiga að vera óhræddir að spyrja og leita ráða. Það er mikilvægt að þeir sýni metnað og áhuga. Þeir þurfa að sinna heimalestri sem er afar mikilvægur og þá ekki aðeins fyrstu mánuði eða ár barns í skóla heldur lengur. Lögð er áhersla á að lesturinn sé daglegur. Það er með ráðnum hug gert. Börn þurfa að ná ákveðinni leikni, þau þurfa þjálfun. Heimalestur á ekki að vera kvöð, kvöl eða pína. Það er mikilvægt að hér sé um gæðastund að ræða. Stund sem tryggir árangur. Til að svo geti orðið þarf hann að vera viðráðanlegur og réttur miðað við stöðu barnsins.

Sameiginlegt markmið kennara og foreldra ætti að vera auk þess að gera barn læst að gera upplifunina af lestrarnáminu jákvæða. Öll börn eiga að upplifa sig ofboðslega stolt og þau eiga öll að fá að ljóma!

Um leið og ég þakka póstinn frá gömlum nemanda mínum óska ég litlu stúlkunni góðs gengis í lestrarnáminu. Ég óska öllum öðrum ungum börnum þess sama. Að kunna að lesa og að skilja innihald texta er mikilvægt. Það geta allir sammælst um.

Svava Þ. Hjaltalín, grunnskólakennari.