Efnt til umræðu um menntamál

Fréttir|29. janúar 2016

Umræðuhefti um menntamál hefur verið sent til félaga KÍ. Í ritinu er að finna samantekt Skólamálaráðs KÍ á stefnu í menntamálum eins og hún birtist í hvítbók menntamálaráðherra sem kom út í júní 2014, aðgerðaáætlunum og ákvörðunum um framkvæmd.

Hvernig getur íslenskt menntakerfi veitt börnum og ungu fólki sem besta menntun og velferð fyrir lífið? Í hvaða átt þarf íslenskt menntakerfi að þróast og hvernig? Hvert er hlutverk skólafólks og kennarasamtakanna í þeirri þróun og hvernig? Á hvaða vegferð erum við í menntamálum? Hvaða útlínur má greina? Eru þær til framdráttar menntun, velferð og skólastarfi?

Félagsfólk er hvatt til að kynna sér efnið, íhuga og ræða kosti og galla í samhengi við skólastarf, kennslu og velferð barna og ungmenna, og senda frá sér ábendingar, pistla og þanka. Pistlar sem berast verða birtir í miðlum KÍ.

 

Umræðuheftið og bréf til trúnaðarmanna og formanna svæða- og félagsdeilda.