Eflum stéttarfélög, lyftum kennarastéttinni og verjum lýðræðið

Um 1.200 fulltrúar kennara sóttu nýafstaðið 10. heimsþing alþjóðasamtaka kennara í Buenos Aires í Argentínu. Á meðal ráðstefnugesta voru þrír formenn Kennarasambands Íslands.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Jónína Hauksdóttir varaformaður og Sigurður Sigurjónsson, formaður FSL, sóttu 10. heimsþing alþjóðasamtaka kennara, EI, fyrir hönd Kennarasambandsins. Þau voru á meðal um 1.200 fulltrúa kennara sem sóttu þingið, sem að þessu sinni fór fram í höfuðborg Argentínu og stóð í fimm daga undir yfirskriftinni: Eflum stéttarfélög, lyftum kennarastéttinni, verjum lýðræðið.
- Hér er hægt að lesa meira um þingið.
Umfjöllunarefnin voru mörg og margvísleg. Má þar nefna málstofur um faglegt sjálfstæði kennara og hvernig megi endurheimta það, hvernig tryggja má betri kjör og efla atvinnuöryggi. Þá var fjallað um áskoranir í tengslum við gervigreind, umhverfismál, mannréttindi og vellíðan með tillitil til árangurs í starfi. Alvarlegur kennaraskortur á heimsvísu var einnig til umfjöllunar ásamt því sem ný stjórn EI var kjörin og nýr forseti, dr. Mugwena Maluleke, kennari, stéttarfélagsfulltrúi og aktívisti, tók við embætti.

Dr. Mugwena Maluleke, kennari, aktívisti og nýr forseti EI.
Opinber menntun og fullfjármögnuð menntakerfi
„Helsta áskorun okkar í stjórn EI felst í því að berjast fyrir opinberri og ókeypis menntun, jafnrétti, mannlegri reisn og friði. Okkur hlakkar til að vinna með ykkur að markmiðinu um fullfjármagnaða opinbera menntun án aðgreiningar með það fyrir augum að efla og auka mannréttindi, jöfnuð, lýðræði og frið,“ sagði Mugwena Maluleke, nýr forseti EI.
Herferðin Go Public! er eitt helsta baráttumál hans og samtakanna um þessar mundir. Herferðin er ákall til stjórnvalda um heim allan um að fullfjármagna opinber menntakerfi heimsins og fjárfesta í kennarastéttinni. Með átakinu er markmiðið að berja á áform um einkavæðingu og niðurskurð í opinberum skólakerfum víða um heim, meðal annars í Argentínu, þar sem þingið var haldið, en þar í landi er áformað að lækka laun kennarastéttarinnar og skera niður fjármagn til skólakerfisins.
Einn liður í átakinu voru mótmæli þingfulltrúa sem fóru fram á vegum EI í miðborg Buenos Aires á meðan á þinginu stóð. Mótmælin vöktu mikla athygli og var sagt frá þeim víða í fjölmiðlum. Fulltrúar KÍ létu sig ekki vanta og skörtuðu spjöldum með slagorði herferðinnar Go Public! á spænsku.

Magnús Þór, Jónína og Sigurður við mótmælin.
Fjallað er um átakið á vefsíðu Education International og þar segir brýnt að kennarasamtök um allan heim taki höndum saman um að byggja upp gæðamenntun fyrir alla. Berjast verður gegn niðurskurði og einkavæðingu í skólakerfum. Þess í stað eru stjórnvöld heims hvött til að fjárfesta í opinberri menntun og kennurum, stuðla að grundvallarmannréttindum og almannaheill. Þannig náist markmið um gæðamenntun.
„Menntasamtök um allan heim taka höndum saman um að byggja upp gæðamenntun fyrir alla. Við erum að virkja okkur til að fjármagna opinbert menntakerfi að fullu og standa gegn niðurskurði, niðurskurði og einkavæðingu. Við vinnum þvert á landamæri að því að tryggja rétt hvers einasta nemanda; þannig að hann hafi hæfa kennara og gott námsumhverfi,“ segir á vef EI.
