Efling leiklistarkennslu í skólastarfi er stóra málið

Fréttir|14. janúar 2026
Camille Roux CP0XLYNI2B4 Unsplash

Félag um leiklist í skólastarfi, FLÍSS, fagnar tuttugu ára afmæli á þessu ári. Félagið, sem heldur úti öflugu starfi fyrir félagsmenn og aðra sem hafa áhuga á leiklist í skólastarfi, segir helsta dragbít námsgreinarinnar vera skort á menntuðum leiklistarkennurum.

Félag um leiklist í skólastarfi, FLÍSS, fagnar tuttugu ára afmæli á þessu ári. Félagið var stofnað af leiklistarkennurum árið 2005 í kjölfar aukinnar leiklistarkennslu í grunnskólum landsins. Í upphafi hafði félagið það að leiðarljósi að efla leiklist í námi á öllum skólastigum í íslensku skólakerfi og að leiklist yrði tekin upp sem ein af listgreinum grunnskólanna. Það markmið varð að veruleika árið 2013 með nýjum grunnskólalögum, en þá komst leiklist inn í Aðalnámskrá grunnskóla sem sérstök námsgrein innan listgreina.

Í dag er FLÍSS fagfélag innan Kennarasambands Íslands og félagsmenn eru um hundrað. Markmið félagsins er að vinna að eflingu leiklistarkennslu á öllum skólastigum í íslensku skólakerfi, auk þess að efla og fylgja eftir kennslu leiklistar sem sjálfstæðrar listgreinar í skólum og gæta þess að samfella sé á milli skólastiga. Leiklistarkennarar starfa í fjölmörgum skólum landsins og stuðla þannig að eflingu leiklistar í skólum.

Gjöfult alþjóðlegt starf

FLÍSS er félagi innan alþjóðasamtakanna IDEA, International Drama/Theatre and Education Association. Félagar í FLÍSS sækja ráðstefnur á vegum IDEA út um allan heim, til þess að afla sér frekari þekkingar í faginu og koma á samstarfi við aðra leiklistarkennara. Félagsmenn FLÍSS hafa einnig látið að sér kveða í þessu alþjóðlega samstarfi og hafa stjórnarmenn í FLÍSS gegnt ýmsum embættum á vegum samtakanna, svo sem embætti gjaldkera og forseta aðalfundarnefndar. Núverandi varaforseti samtakanna er Ólafur Guðmundsson, leikari og leiklistarkennari og undirrituð er forseti General Council Meetings aðalfundarnefndar einnig.

IDEA heldur stórar alþjóðlegar ráðstefnur víða um heim á þriggja ára fresti. Ein slík ráðstefna var haldin á vegum FLÍSS og Háskóla Íslands hér á Íslandi árið 2022 undir yfirskriftinni: Drama for all, tall and small. Fjöldi þátttakenda flykktist til Íslands að taka þátt í ráðstefnunni, læra og njóta og fá í leiðinni að kynnast landi og þjóð.

Thumbnail IMG 9216

Afmæli þú átt í dag, út af því við syngjum lag......FLÍSS á 20 ára afmæli í ár. Fögnum því.

Fjölbreyttar vinnusmiðjur

FLÍSS heldur úti öflugu starfi fyrir félagsmenn og aðra sem hafa áhuga á leiklist í skólastarfi. Nokkrar vinnusmiðjur eru haldnar hvert ár, reynt er að fá kennara frá öllum heimshornum til þess að kenna og þannig auka fjölbreytni. Sem dæmi má nefna að á þessu ári höfum við fengið kennara frá Ástralíu að kenna okkur hvernig sameina má kennslu um sjálfbærni, umhverfisvernd og leiklist og kennara frá Kína sem kynnti fyrir félagsmönnum kínverskan sagnaarf og heimspeki í gegnum leiklist. Vinnusmiðjurnar eru fjölbreyttar, þær innihalda til dæmis, skapandi skrif, leiki, verkfærakistu leiklistarkennarans og lífsleikni á unglingastigi.

Félagið vill hvetja félagsmenn til að flykkjast á ráðstefnu Drama Boreale sem haldin verður í Helsinki í ágúst á næsta ári, en það er norræn ráðstefna sem alltaf er með heillandi vinnusmiðjur og gagnlega fyrirlestra sem gott er að bæta í verkfærakistuna.

Þurfum fleiri leiklistarkennara

Efling leiklistarkennslu í íslensku skólastarfi er mikilvægasti þátturinn í starfi FLÍSS. Margt hefur áunnist í gegnum árin.

Leiklist er kennd í mörgum skólum á landinu en helsti dragbítur á námsgreinina leiklist er skortur á menntuðum leiklistarkennurum. Þannig hefur menntun leiklistarkennara verið eitt af lykilmarkmiðum félagsins. Í dag bjóða Listaháskóli Íslands og Menntavísindasvið HÍ upp á menntun fyrir leiklistarkennara. Margir af þeim sem lært hafa í þessum skólum skila sér inn í skólakerfið sem leiklistarkennarar en betur má ef duga skal. Félagið bindur meðal annars vonir við að niðurfelling skólagjalda við Listaháskóla Íslands verði til þess að fleiri af þeim sem hafa menntað sig í leiklist og sviðslistum sæki í meistaranámið við Listkennsludeild LHÍ til að fá kennsluréttindi.

Thumbnail IMG 9220