Efla þarf nám í náttúrufræði
Stjórn Samlífs (Samtaka líffræðikennara) segir það valda vonbrigðum að ekki séu gerðar tillögur um úrbætur um vægi náttúrufræðikennslu í hvítbók menntamálaráðherra. Í hvítbókinni sé að finna samantekt um stöðu íslensks menntakerfis og af henni megi ráða að 15 ára ungmenni hér á landi séu fyrir neðan meðallag í samanburði við aðrar þjóðir – og tekið er fram að bæta verði stöðu íslenskra nemenda í náttúrufræði. Þetta kemur fram í nýjum Vikupósti á vefsíðu FF.
Stjórn Samlífs telur jafnframt áhyggjuefni ef skólar stefni að því að fækka náttúrufræðieiningum á öðrum brautum náttúrufræðibrautum. „Ef rýnt er í niðurstöður PISA könnunarinnar má sjá að náttúfræðiþekkingu er ábótavant. Því ættu menntamálayfirvöld að leggja áherslu á að í framhaldsskólum sé öllum nemendum sem útskrifast með stúdentspróf tryggður góður grunnur í náttúrufræði," segir meðal annars í grein Samlífs.