Dýrmætt að hitta kennara á heimavelli

Hringferð Kennarasambands Íslands er lokið en um var að ræða fundarherferð þar sem skólastefna og skipulag KÍ var kynnt sem og starfsemi endurmenntunarsjóða.
Fulltrúar KÍ heimsóttu sjö kaupstaði úti á landi síðustu tvær vikurnar og héldu tvo fundi á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík og í Garðabæ.
Blásið var til fundaherferðarinnar til þess að kynna skipulag og skólastefnu Kennarasambandsins, starfsemi endurmenntunarsjóða og hlutverk útgáfusviðs.
Vönduð skólastefna að leiðarljósi
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem skólastefna KÍ er kynnt með svo formlegum hætti. Skólastefnan er efnismikil og ávallt er vandað til hennar – en hún er unnin og afgreidd á þingum KÍ. Aðalstef gildandi skólastefnu er menntun er mannréttindi. Það á vel við enda eru mannréttindi ein mikilvægasta grunnstoð velferðarkerfisins. Þá fjallar skólastefnan um faglega forystu kennara, skólastjórnenda, nemendur og sérfræðiþekkingu þeirra.

Vel mætt á fund í Árskóla á Sauðárkróki
Þá þótti tilefni til að kynna starfsemi endurmenntunarsjóða sambandsins en það eru ekki allir sem vita hversu umfangsmiklir þeir eru. Til dæmis má nefna að á síðasta ári voru afgreiddir tæplega 18 þúsund styrkir og var heildarupphæðin um 1,4 milljarður króna. Stefnir í mun hærri upphæð á þessu ári. Starfsþróun og endurmenntun er afar mikilvæg í starfi kennara.
„Þakklát félagsfólki sem gaf sér tíma til að mæta á fundina“
Hringnum um landið lokað
Haldnir voru fundir í Reykjanesbæ, á Selfossi, í Borgarnesi, á Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri og Egilsstöðum. Þá var fundað tvisvar á höfuðborgarsvæðinu. En það er ekki allt búið enn því síðasti fundurinn verður í fjarfundaformi og fer fram næstkomandi þriðjudag, 26. september.
Varaformaður KÍ, Jónína Hauksdóttir, fór fyrir sendinefnd KÍ, en auk hennar voru fulltrúar útgáfusviðs og sjóða með í för.
„Mér fannst virkilega skemmtilegt að fara um landið og fá að heimsækja ólíka skóla af öllum skólastigum og skólagerðum. Einnig er ég mjög þakklát því félagsfólki sem gaf sér tíma til að mæta á fundina og kynnast starfsemi Kennarasambandsins, skólastefnu þess, endurmenntunarsjóðum og útgáfusviði,“ segir Jónína.

Fundað í Menntaskólanum á Ísafirði
Gefinn var tími til umræðna á fundunum og þar bar margt á góma. Tæknin var einnig nýtt og félagsfólki boðið að senda inn hugleiðingar og spurningar í Slido. Umræður fundanna voru oft og tíðum fjörugar og farið var um víðan völl; rætt var um kjaramál, jöfnun launa milli markaða, starfsemi sjóðanna, félagsgjald, kennaramenntun, starfsaðstæður kennara, húsnæðismál skólanna og svo mætti áfram telja.
Unnið úr fundunum
Útgáfusvið mun á næstu vikum taka saman þau atriði sem helst brunnu á félagsfólki og unnið verður áfram með efnið innan stjórnar KÍ og sambandsins.

Úr heimsókn í leikskólann Holt í Reykjanesbæ
Sendinefndin fékk góðar viðtökur hvarvetna og á hverjum stað voru heimsóttir skólar þar sem hægt var að kynna sér starfsemina í návígi. Þessar heimsóknir voru afar upplýsandi og ánægjulegar. „Það er dýrmætt að fá tækifæri til að hitta kennara á þeirra heimavelli,“ segir Jónína.
Kennarasambandið þakkar öllum þeim sem buðu fulltrúum KÍ í heimsókn innilega fyrir og þá fá félagsmenn sem sóttu fundina sérstakar þakkir, ekki síst fyrir áhugaverðar umræður í lok funda. Að lokum ber að þakka því skólafólki sem tók að sér að hýsa fundina og aðstoða með tækni og veitingar.